Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 76
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR60
bio@frettabladid.is
> SAGÐI NEI TAKK
Benicio Del Toro hefur hafn-
að stóru hlutverki í Star Trek 2.
Del Toro átti að leika aðalskúrk
myndarinnar en ekki náð-
ust samningar milli leikar-
ans og Paramount-kvik-
myndaversins. JJ Abrams
mun hins vegar sitja í
leikstjórastólnum.
Fátt gerist í Hollywood án
umboðsmanna, þeir eru
upphaf og endir alls. Hafi
einhver umboðsmaður
meiri völd en annar heitir
sá umboðsmaður Ari
Emanuel.
Financial Times birti fyrir
skemmstu nokkuð merkilegt við-
tal við Ari Emanuel og samstarfs-
félaga hans, Patrick Whitesell, um
fyrirtæki þeirra William Morr-
is Endeavor Entertainment, en
Emanuel og Whitesell eru tald-
ir vera í hópi valdamestu manna
í Hollywood um þessar mund-
ir. Hlutverk umboðsmanna er
fyrst og fremst að sjá um rétt-
indi umbjóðenda sinna og á því
sviði þykir Emanuel vera sá besti.
Hann hefur í auknum mæli tryggt
stjörnunum sínum meiri réttindi
og aukna hlutdeild í höfundarverk-
um sínum. „Á tímum niðurhals og
dræmrar sölu DVD-diska hefur
innihaldið aldrei skipt jafn miklu
máli. Af þeim sökum eru hand-
ritshöfundar, stjörnurnar og leik-
stjórar í bílstjórasætinu,“ hefur
Financial Times eftir Emanuel og
Whitesell.
Í grein FT er uppgangur Emanu-
els rifjaður upp en sú saga verð-
ur að teljast merkileg. Hann lá á
miðri götu í Beverly Hills fyrir
sautján árum, að drepast úr
verkjum eftir að hafa lent í bíl-
slysi, og tók ákvörðun sem átti
eftir að breyta valdaþrepunum í
Hollywood. Emanuel yfirgaf eina
stærstu umboðsskrifstofu Holly-
wood þá, ICM, og stofnaði Endea-
vor. Reyndar fer tvennum sögum
af því hvernig brotthvarf Emanu-
els og fjögurra annarra umboðs-
manna vildi til, sumstaðar er því
haldið fram að þeir hafi verið
reknir fyrir þjófnað.
Endeavor-skrifstofan stækk-
aði hratt og örugglega, starfsemi
hennar fór í fyrstu fram fyrir
ofan hamborgarabúllu í miðborg
Los Angeles en fyrirtækið hefur
nú höfuðstöðvar skammt frá einu
fínasta hóteli draumaborgarinnar,
The Beverly Wilshire. Emanuel
og Whitesell tóku síðan yfir eina
elstu og virtustu umboðsskrif-
stofu Hollywood árið 2009, Willi-
am Morris og til varð stærsta
umboðsskrifstofa Bandaríkjanna:
William Morris Endeavor. Á við-
skiptaráðstefnu fyrir ári útskýrði
Emanuel yfirtökuna. „Með henni
brutum við okkur leið inn á tón-
listar- og bókamarkaðinn. Við vilj-
um haga umboðsmennsku þeirra
listamanna á svipaðan hátt og
við höfum gert fyrir kvikmynda-
stjörnur,“ en fyrirtækið sér meðal
annars um öll mál Lady Gaga. Á
fundinum kom jafnframt fram að
fyrirtækið væri að gera tilraunir
með Facebook-síður stjarnanna og
hvernig hægt sé að nýta þær til að
kynna væntanlegar kvikmyndir
þeirra.
Emanuel er ákaflega skrautleg-
ur karakter og er þekktur fyrir
óheflaða framkomu og rudda-
legt orðfæri. Umboðsmaðurinn
Ari Gold í Entourage er alfarið
byggður á honum enda er fram-
leiðandi þáttanna, Mark Wahlberg,
einn traustasti skjólstæðingur
Emanuels. „Þetta var maður sem
ég vildi hafa mínu liði. Ari er ein
af ástæðum þess að ég er í sjón-
varpsbransanum og á sjálfur það
efni sem ég framleiði,“ hefur Fin-
ancial Times eftir Wahlberg. Leik-
arinn er síður en svo eina svokall-
aða A-stjarnan í persónulegum
kúnnahópi Emanuels, meðal þeirra
eru Martin Scorsese, Michael Bay,
Charlize Theron og Steven Spiel-
berg auk Denzels Washington og
Michaels Douglas.
Emanuel er enginn venjulegur
maður, hann vildi að Hollywood
sparkaði Mel Gibson úr samfélagi
sínu eftir að leikarinn gerðist
sekur um gyðingahatur á sínum
tíma og völd hans verða að teljast
umtalsverð. Bróðir hans, Rahm
Emanuel, var fyrsti starfsmanna-
stjóri Baracks Obama í Hvíta
húsinu en er núna borgarstjóri í
Chicago. freyrgigja@frettabladid.is
Maðurinn á bak við tjöldin
Michael Bay er byrjaður í viðræðum við
Paramount-kvikmyndaverið um að leik-
stýra bæði fjórðu og fimmtu myndinni um
Umbreytingana eða Transformers og dvöl
þeirra hér á jörðu samkvæmt kvikmynda-
vefnum collider.com. Þrátt fyrir misjafnar
viðtökur gagnrýnenda við síðustu tveimur
kvikmyndum hafa þær þénað milljónir doll-
ara í miðasölu og því ekkert skrýtið að kvik-
myndaverið Paramount skuli vilja tryggja sér
áframhaldandi þjónustu Bay.
Hins vegar var ekki margt sem benti til
þess að Bay myndi setjast í leikstjórastólinn í
fjórða sinn. Hann hafði lýst því yfir að mynd-
irnar ættu bara að vera þrjár og hann hygðist
einbeita sér að fremur ódýrri, svartri gaman-
mynd sem Dwayne Johnson hefur verið orð-
aður við, Pain and Gain. Og gulrótin reyndist
vera sú mynd því Paramount hefur lýst
sig reiðubúið til að fjármagna þá kvik-
mynd og leyfa leikstjóranum að gera hana
fyrst með því skilyrði að hann geri tvær
Umbreytinga-kvikmyndir til viðbótar.
Ekki liggur fyrir hver verður söguþráð-
ur fjórðu myndarinnar en samkvæmt
heimildum vefsíðunnar er talið ólík-
legt að um forleik sé að ræða. Hins
vegar þykir það liggja nokkuð ljóst
fyrir að Shia Labeouf verði ekki á
sínum stað. Og þrátt fyrir að Bay
hafi ekki skrifað undir þá bendir
allt til þess að verkefnið verði að
veruleika enda hefur framleiðandi
myndanna, Steven Spielberg, lýst því
yfir að hann vilji sjá Bay leikstýra fleiri
myndum um Optimus Prime og félaga.
Meira af Umbreytingum hjá Bay
Teiknimyndin Puss in Boots, The Rum Diary og A
Very Harold and Kumar 3D Christmas eru þær kvik-
myndir sem verða frumsýndar um helgina í kvik-
myndahúsum borgarinnar.
Vinsældir teiknimyndarinnar Puss in Boots hafa
komið flestum í opna skjöldu. Myndin er „spin-off“
af Shreck-kvikmyndunum sem nutu talsverðra vin-
sælda. Að þessu sinni er það stígvélaði kötturinn
sem er í kastljósinu en þessi hugrakki riddari glímir
jafnt við illmenni og kattareðli sitt. Myndin er sýnd í
bæði tvívídd og þrívídd með ensku og íslensku tali. Í
ensku útgáfunni er það að sjálfsögðu Antonio Bande-
ras sem talar fyrir köttinn en Salma Hayek fyrir
aðal-læðuna.
A Very Harold and Kumar 3D Christmas er þriðja
myndin um þessa misgáfuðu félaga. Að þessu sinni
er myndin í þrívídd en þeir John Cho og Kal Penn
eru á sínum stað ásamt Neil Patrick Harris úr sjón-
varpsþáttunum vinsælu How I Met Your Mother.
Óþarfi er að fara nákvæmlega ofan í saumana á
söguþræði myndarinnar en í stuttu máli fylgist
myndin með jólaundirbúningi Harolds og Kumars
sem er, eðli málsins samkvæmt, nokkuð óvenjulegur.
Þriðja myndin er síðan The Rum Diary með
Johnny Depp og Aaron Eckhart í aðalhlutverkum.
Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Hunters
S. Thompson og segir frá drykkfelldum blaðamanni
sem fer í mikla rannsóknarferð til Púertó Ríkó en
þar kemst hann meðal annars í kynni við romm og
fagrar frúr.
Stígvélaður köttur og romm
Angelina Jolie hefur, samkvæmt
vefútgáfu Empire-tímaritsins, sam-
þykkt að leika aðalhlutverkið í nýj-
ustu kvikmynd franska leikstjórans
Luc Besson. Lítið er vitað um kvik-
myndina, henni hefur ekki einu sinni
verið gefið nafn, en talið er líklegt
að hún verði í vísindaskáldsögu-
legum stíl. Og að hún verði ákaflega
umfangsmikil. Besson hefur ekki
alveg verið upp á sitt besta að undan-
förnu í leikstjórastólnum en honum
virðist sýknt og heilagt takast að
tæla til sín stærstu stjörnurnar.
Besson hefur að undanförnu aðal-
lega einbeitt sér að framleiðslu
kvikmynda en mun á næstunni
frumsýna ævisögulegu kvik-
myndina The Lady, sem fjallar
um Aung San Suu Kyi, frelsis-
leiðtoga Búrma. Með hlutverk
Kyi fer Michelle Yeoh en það
er hins vegar David Thewlis
sem leikur eiginmann hennar.
Jolie er hins vegar sjálf að kynna
fyrsta leikstjóraverkefnið sitt, In the
Land of Blood and Honey. Þá er fram
undan hið risavaxna verkefni hennar
og Davids Fincher um Kleópötru. - fgg
Jolie með
Besson
Í HASARSTUÐI
Michael Bay mun
væntanlega
leikstýra fjórðu
og fimmtu
kvikmyndinni um
Umbreytingana eða
Transformers.
UMDEILDUR Ari Emanuel er síður en svo allra í Hollywood. Hann fór þess á leit við
kvikmyndabransann að Mel Gibson yrði sparkað út úr samfélagi mannanna eftir að
hafa gerst sekur um gyðingahatur. Hann er einn valdamesti maðurinn í Hollywood
enda á hann og rekur eina stærstu umboðsskrifstofu draumaborgarinnar.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FRESSIÐ FRÆGA Stígvélaði kötturinn er einn óvæntasti
smellurinn í Bandaríkjunum en þar glímir kötturinn frægi jafnt
við illmenni og kattareðli sitt.
Á FRANSKA VÍSU Angelina Jolie mun að öllum
líkindum leika aðalhlutverkið í nýrri hasarmynd
Luc Besson.
Jólaveislan
á UNO er byrjuð
UNO uno.is