Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 88
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR72
STEINI/PÉSI
&GAUR Á TROMMU
Miðasala á gamlabio.is og midi.is. Sími 563 4000.
Opið mán.-mið. 14:00-18:00 og fim.-sun. 14:00-20:00.
Fimmtudagur 08.12.11 22:30
Fimmtudagur 15.12.11 20:00
Föstudagur 16.12.11 22:30
Aukasýning!
Aukasýning!
Síðustu sýningar fyrir jól!
25% jólaafsláttur fyrir námsmenn í desemberí miðasölu Gamla bíós.
Sala á árlegu dagatali
slökkviliðsmanna hefst í
dag. Ágóðann nota þeir til
að komast á heimsleika
slökkviliðsmanna.
„Þetta gengur rosalega vel, hefur
alltaf selst upp,“ segir Pálmi Hlöð-
versson slökkviliðsmaður. Hann og
félagar hans sem stefna á heims-
leika slökkviliðsmanna gefa líkt
og fyrri ár út dagatal til að safna
fyrir ferðinni á leikana. „Við byrj-
uðum á þessu árið 2007, þá vorum
við akkúrat tólf sem vorum að fara.
Það er hrikalega dýrt að fara út og
við vorum að vesenast með fjár-
mögnunina þegar einhver fékk
þessa snilldarhugmynd. Síðan þá
höfum við getað fjármagnað ferð-
ina eingöngu með þessari sölu,“
segir Pálmi, en árlega prenta þeir
3.000 eintök af dagatölum sem með-
limir slökkviliðsins prýða.
Pálmi játar því að þeir séu að
venjast fyrirsætustörfunum.
„Menn voru svona hálffeimnir
fyrst, að vera berir að ofan hang-
andi uppi á vegg hjá fólki í heilan
mánuð. Ísland er lítið land og allir
þekkja alla, en þetta hefur vanist
mjög vel. Núna komust færri að en
vildu.“
Góð stemning ríkir í kringum
dagatalsgerðina innan slökkviliðs-
ins og Pálmi segir mikið rætt og
hlegið innan hópsins. Í ár ákváðu
þeir að stíga næsta skref og fengu
fjölda fagmanna til liðs við sig,
þar á meðal Veru Pálsdóttur ljós-
myndara. „Það var mikið fjör í tök-
unum. Menn lögðu alveg allt í söl-
urnar. Við vildum ekkert Photoshop
þannig að sumir fóru berir að ofan
út í sjó og aðrir fengu smá bruna-
sár á bakið – við erum náttúrulega
ekki vanir að vaða berir að ofan inn
í eld, og mælum ekkert með því.“
Pálmi vonast til þess að hærra
fari af þátttökunni á næstu leik-
um, en síðan íslenskir slökkviliðs-
menn mættu fyrst árið 1999 hafa
þeir unnið til fleiri en tuttugu verð-
launa, bæði í hefðbundnum íþrótta-
greinum og slökkviliðstengdum
greinum. „Hérna heima vita fæstir
af þessu. Við smyrjum bara á okkur
olíu, seljum dagatal og förum út.“
Þeir sem vilja tryggja sér eintak
af dagatalinu geta hitt á slökkvi-
liðsmennina fyrir framan versl-
anir Eymundsson á Skólavörðustíg
og Austurstræti í dag og á morgun
á milli 16-19. Þar fer fram sérstök
forsala, Sjávargrillið býður gestum
og gangandi upp á jólasúpu og Te
og kaffi hellir upp á hátíðarkaffi.
bergthora@frettabladid.is
BÚNIR AÐ VENJAST FYRIRSÆTUSTÖRFUNUM
VATNSELGUR Mikið er lagt á sig til að geta tekið þátt í heimsleikunum.
MYNDIR/VERA PÁLSDÓTTIR
HETJUDÁÐ Slökkviliðsmenn mæla ekki
með því að vera ber að ofan í nálægð
við eld.
HRAUSTLEGIR Æfingar fyrir keppnina eru
teknar alvarlega og af miklum metnaði.
FLOTTAR MYNDIR Fyrirtækið Viðvera
aðstoðaði slökkviliðsmennina í ár og
útkoman er flott.
„Ég má bara eiginlega ekkert tjá mig um málið. Ég er bundinn trúnaði
og það er bara eins gott að standa við það,“ segir Guðmundur Magni
Ágústsson kvikmyndatökumaður. Hann stjórn-
aði tökum í sjónvarpsseríu BBC, breska
ríkissjónvarpsins, um sænska lögreglumann-
inn Wallander sem Kenneth Branagh leikur.
Wallander-þættirnir eru byggðir á bókum
eftir Henning Mankell og hafa notið tals-
verðra vinsælda í Bretlandi en margir Íslend-
ingar ættu að kannast við sænsku útgáfurnar
sem hafa verið sýndar á RÚV. „Ég held að þetta
verði ekki sýnt fyrr en á næsta ári,“ segir
tökumaðurinn en tökurnar fóru fram í
Svíþjóð.
Magni, eins og hann er jafnan kall-
aður, hefur verið búsettur í Bret-
landi undanfarin ár og unnið sem
kvikmyndatökumaður þar við góðan
orðstír. Hann var meðal annars
kvikmyndatökumaður sjónvarps-
seríunnar Spy sem sýnd var á Sky 1
og svo Free Agents á Channel 4 en
þeir þættir fengu prýðilegar viðtök-
ur og voru meðal annars endurgerðir í
Bandaríkjunum.
Magni hefur ekki mikið gert af því að
vinna hér á landi. „Ég kem þó alltaf í heim-
sókn reglulega,“ segir tökumaðurinn en hann
stjórnaði þó kvikmyndatökum á heimildar-
mynd Sigur Rósar, Heima, og svo íslensku
kvikmyndinni Brim. „Ég vann líka með Berki
Sigurþórssyni að stuttmyndinni Come to
Harm,“ segir Magni en sú mynd hefur vakið
töluverða athygli. - fgg
Magni vinnur með
Kenneth Branagh
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Magni Ásgeirsson stjórnaði tökunum í bresku útgáfunni af
Wallander en þar fer Kenneth Branagh með hlutverk sænska lögreglumannsins.