Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 6
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR6
Gagnaver á Íslandi:
Tækifæri til framtíðar
Málstofa í Háskólanum í Reykjavík,
á morgun, 9. desember kl. 9-11.
Við pallborð sitja auk
fyrirlesara:
Ómar Benediktsson,
framkvæmdastjóri Farice
Þórður Hilmarsson, forstöðu-
maður Invest in Iceland
Magnús Orri Schram,
þingmaður Samfylkingarinnar
Helgi Þór Ingason, dósent
við Háskólann í Reykjavík
Gestur Gestsson,
forstjóri Skýrr
Fundarstjóri er Magnús
Bjarnason, framkvæmda-
stjóri markaðs- og viðskipta-
þróunar hjá Landsvirkjun.
Málstofan fer fram í stofu
M209.
Aðgangur ókeypis, allir
velkomnir.
Markmið opinna funda
Landsvirkjunar er að stuðla
að gagnsærri og faglegri
umræðu um málefni tengd
starfsemi fyrirtækisins.
Landsvirkjun, í samstarfi við Háskólann í Reykjavík,
efnir til málstofu og pallborðsumræðna um framtíð
gagnaversiðnaðar á Íslandi.
Gagnaversiðnaður á Íslandi: Möguleikar
og markaðstækifæri
Halldór Sigurðsson, Jr. partner hjá McKinsey
Data Centers: Iceland’s Game to Win or Lose
Isaac Kato, CFO hjá Verne Global
Gagnaversiðnaður á Íslandi: Framtíðarsýn
og aðgerðaáætlun
Ríkarður Ríkarðsson, viðskiptastjóri hjá Landsvirkjun
LÖGREGLUMÁL Lögreglan rannsakar nú
hlaupsagaða haglabyssu sem ýmislegt
bendir til að notuð hafi verið í skotárás á
bifreið í Reykjavík 18. nóvember síðast-
liðinn. Þegar fjórði maðurinn var handtek-
inn vegna rannsóknar málsins síðastliðinn
föstudag fannst slík byssa, ásamt skot-
færum, heima hjá honum. Við rannsókn
tæknideildar lögreglu kom í ljós að eitt
skothylkjanna sem fannst þar er eins að
útliti og lögun og skothylkin sem fundust á
vettvangi árásarinnar.
Maðurinn sem um ræðir er einn af for-
sprökkum vélhjólagengisins Outlaws, tæp-
lega þrítugur að aldri. Hæstiréttur stað-
festi í fyrradag úrskurð þess efnis að hann
skyldi sæta einangrun og gæsluvarðhaldi
til dagsins í dag, 8. desember.
Maðurinn hefur neitað allri aðild að
skotárásinni. Lögregla segir hins vegar
liggja fyrir að hann hafi verið í síma-
samskiptum við tvo aðra, sem einnig eru
í varðhaldi vegna rannsóknarinnar, um
það leyti sem árásin var gerð. Þá hafi þeir
þrír hist á bar kvöldið áður en skotið var
á bílinn.
Maðurinn hefur ekki getað gert grein
fyrir ferðum sínum daginn sem árásin
var gerð. Hann hafi verið nýbúinn að eiga
afmæli og verið „að djamma“. - jss
HALDLÖGÐ VOPN Lögreglan hefur tekið mikið magn vopna í
heimahúsum að undanförnu.
Gæsluvarðhaldsúrskurður vegna skotárásar staðfestur yfir einum forsprakka vélhjólagengis:
Haglabysssa á heimili grunaðs Outlaws-manns
ÖRYGGISMÁL Landhelgisgæslan
vaktaði olíuskipið St. Heritage
frá fimmtudegi til þriðjudags þar
sem það beið af sér veður 40 mílur
austur af Stokksnesi. Olíuskipið,
sem er 40 þúsund tonna tankskip,
var á siglingu með fullfermi frá
Múrmansk í Rússlandi til Hjalt-
landseyja en vegna veðurs við
eyjarnar fékk skipið fyrirmæli
frá útgerðarfélagi sínu um að bíða
á þessu svæði eftir hagstæðari
veðurskilyrðum.
Varðstjórar Landhelgisgæsl-
unnar komu auga á skipið í feril-
vöktunarkerfum og óskuðu eftir
nánari upplýsingum um sigl-
ingu þess en þar sem skipið var á
alþjóðlegu hafsvæði var því ekki
skylt að senda gögn varðandi sigl-
inguna. Var beiðninni þó vel tekið.
Skipið er nú komið út úr
íslensku efnahagslögsögunni en
vegna staðsetningar þess þótti
full ástæða til að fylgjast grannt
með skipinu, enda viðkvæmur
farmur um borð sem myndi valda
miklum skaða ef eitthvað færi
úrskeiðis.
Auknar siglingar flutninga- og
farþegaskipa á norðurslóðum eru
staðreynd og fer stærð skipanna
vaxandi. Sérstakur fengur er tal-
inn að því að varðskipið Þór hefur
bæst í flota Gæslunnar, en skipið
er búið öflugum björgunarbúnaði,
segir í frétt frá Gæslunni. - shá
KJÖRKASSINN
Hefur þú áhyggjur af dvínandi
bókalestri barna og unglinga?
Já 76,7%
Nei 23,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefurðu áhyggjur af hömlum á
erlendri fjárfestingu hér á landi?
Segðu þína skoðun á visir.is
VIÐSKIPTI Útlit er fyrir að Orku-
veita Reykjavíkur (OR) nái mark-
miðum sínum um hagræðingu í
rekstri og gott betur á þessu ári.
Í lok þriðja ársfjórðungs hafði
fyrirtækið þegar sparað sem
jafngildir rúmum 97 prósentum
af markmiði ársins.
Stjórn og eigendur OR sam-
þykktu í apríl aðgerðaáætlun sem
miðar að því að gera fyrirtækinu
kleift að standa við afborganir
af skuldum sínum. Stendur OR
frammi fyrir stórum gjalddög-
um á næstu árum sem samanlagt
nema 113 milljörðum króna til og
með árinu 2017.
Áætlun OR nefnist „Planið“ og
nær til ársins 2016. Í áætluninni
hefur fyrirtækið sett sér mark-
mið um hagræðingu í rekstri á
hverju ári til og með 2016. Mun
fyrirtækið framvegis birta
skýrslu um hvernig gengur að ná
settum markmiðum stuttu eftir
birtingu ársfjórðungsuppgjörs.
Fyrsta slíka skýrslan var birt í
gær.
Í áætlun Orkuveitunnar var
gert ráð fyrir 11,5 milljarða
króna sparnaði á síðustu þrem-
ur fjórðungum ársins. Á öðrum
og þriðja ársfjórðungi hefur
þegar náðst fram sparnaður sem
nemur 11,2 milljörðum og er því
ljóst að aðhaldsaðgerðir fyrir-
tækisins hafa borið meiri ávöxt
en reiknað var með. Tekist hefur
að lækka rekstrarkostnað tals-
vert meira en gert var ráð fyrir
og sömuleiðis tekist að spara með
minni fjárfestingu í veitukerfi um
meira en gert var ráð fyrir. Þessi
árangur hefur náðst þrátt fyrir að
áhrif ytri breyta, svo sem þróun-
ar gengis krónunnar og álverðs,
hafi kostað fyrirtækið 308 millj-
ónir. Þó ber að hafa í huga að
tekjur upp á rétt tæpa 8 milljarða
má rekja til víkjandi láns frá
eigendum fyrirtækisins.
Á því sex ára tímabili sem
aðgerðaáætlunin nær til hyggst
Orkuveitan ná fram sparnaði
sem nemur rétt rúmum 50 millj-
örðum. Þar af eiga 10 milljarðar
að koma frá sölu eigna, 12 millj-
arðar koma í formi víkjandi láns
frá eigendum fyrirtækisins, 15
milljarðar eiga að koma til vegna
minni fjárfestinga í veitukerfi
fyrirtækisins og rúmir 8 milljarð-
ar með hækkunum á gjaldskrám
fyrirtækisins. Á tímabilinu verða
gjaldskrár hækkaðar tvisvar á
ári til að halda í við þróun verð-
bólgu, en það var eitt af skilyrð-
um eigenda fyrirtækisins fyrir
lánveitingunni. magnusl@frettabladid.is
Aðgerðaáætlun OR
staðist á þessu ári
Meiri árangur hefur náðst við aðhaldsaðgerðir hjá Orkuveitu Reykjavíkur á
þessu ári en gert var ráð fyrir samkvæmt aðgerðaáætlun fyrirtækisins. OR
stefnir að því að spara fyrir sem nemur 50 milljörðum til og með árinu 2016.
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Aðgerðaáætlun OR var kynnt á blaðamannafundi í höfuð-
stöðvum fyrirtækisins í lok mars. Vel hefur gengið að ná markmiðum fyrirtækisins
um sparnað á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Dæmdir fyrir bílainnbrot
Tveir tæplega tvítugir piltar hafa verið
dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness
fyrir að brjótast inn í sex bíla í janúar
á síðasta ári. Báðir eiga sér sakaferil.
Annar pilturinn var dæmdur í 30 daga
fangelsi og hinn í fjögurra mánaða
fangelsi. Báðir dómar eru skilorðs-
bundnir.
Með rafbyssu og fíkniefni
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið
dæmdur í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi. Maðurinn er meðal
annars sakfelldur fyrir að hafa í fórum
sínum 80 grömm af amfetamíni og
rafbyssu. Þá var hann dæmdur fyrir
að ógna öðrum lífláti.
Kjötþjófur
Tæplega þrítugur karl hefur verið
dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir
líkamsárás og þjófnað. Maðurinn
réðist á annan mann í desember
2009. Þá var maðurinn dæmdur fyrir
þátttöku í kjötþjófnaði á Hellu.
DÓMSMÁL
MEXÍKÓ, AP Al-Saadi Gaddafí, einn
sona Múammars Gaddafí, reyndi
að flýja til Mexíkó í haust eftir
að faðir hans hafði hrökklast frá
völdum.
Stjórnvöld í
Mexíkó stöðv-
uðu þessi áform
meðan þau voru
enn í undir-
búningi. Að
sögn þeirra
vann hópur
fólks með full-
ar hendur fjár
að undirbún-
ingi flóttans, þar á meðal einn
Dani, einn Kanadamaður og tveir
Mexíkóar.
Al-Saadi flúði skömmu síðar til
Níger, þar sem hann er trúlega
enn í skjóli stjórnvalda. - gb
Einn sona Gaddafís:
Reyndi að flýja
til Mexíkó
AL-SAADI GADDAFÍ
Skipið St. Heritage beið af sér veður 40 mílur austur af Stokksnesi:
Vöktuðu risaolíuskip við Ísland
RISAOLÍUSKIPIÐ URAL STAR Dæmi um skipin sem sigla við landið, en Ural Star ber
105 þúsund tonn af olíu. MYND/LHG
milljarðar
voru spar-
aðir í rekstri
Orkuveit-
unnar á öðrum og þriðja
ársfjórðungi ársins.
11,2