Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 84
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR68
Olga Einarsdóttir
– gerði brennandi áhuga á fatnaði og tísku að starfsferli.
Söngkonan Kelly Rowland hlakk-
ar til að passa fyrir vinkonu sína
Beyoncé en er ekki til í að eign-
ast börn sjálf. Rowland söng með
Beyoncé í hljómsveitinni Destiny´s
Child og eru þær góðar vinkonur
í dag. „Ég ætla að vera dugleg að
passa og kannski skipta á einni eða
tveimur bleyjum fyrir hana,“ segir
Rowland sem vill bíða með barn-
eignir í nokkur ár. „Tilhugsunin
um að eitthvað á stærð við mel-
ónu komi út um eitthvað á stærð
við sítrónu er of mikið fyrir mig
og ég bara skil ekki hvernig þetta
virkar,“ segir söngkonan. Beyoncé
á von á sér í byrjun ársins.
Hlakkar til að passa
HJÁLPAR TIL Kelly Rowland ætlar að
hjálpa vinkonu sinni Beyoncé að passa
barnið sem er væntanlegt í byrjun árs.
NORDICPHOTOS/GETTY
Það styttist í að tilkynnt
verði hvaða myndir verða
tilnefndar til Óskarsverð-
launa. Kvikmyndaspekúl-
antar eru að sjálfsögðu
byrjaðir að velta vöngum
yfir því hvaða nöfn verða
birt á flatskjánum í Holly-
wood og flestir eru á sama
máli; það verða kunnugleg
andlit meðal hinna útvöldu.
Tilnefningarnar til Óskarsverð-
launa verða kunngjörðar í lok
janúar. Tilnefning getur ýmsu
breytt og því ekkert skrýtið að
kvikmyndagerðarmenn skuli eyða
háum fjárhæðum í að koma sínum
verkum á framfæri við Akadem-
íuna. Íslenskir kvikmyndaunnend-
ur verða að bíða enn um sinn eftir
„vandaða“ pakkanum frá Holly-
wood – janúar og febrúar hafa
yfirleitt verið gjöfulir hvað slíkar
gjafir varðar.
Kunnugleg andlit
Vefsíðan Deadline tók saman lista
yfir þá leikstjóra sem líklegastir
eru til að hljóta tilnefningu. Þeir
eiga það flestir sameiginlegt að
hafa komið við sögu Akademíunn-
ar áður. Sumir hafa jafnvel hlotið
styttuna góðu oftar en einu sinni
á meðan aðrir hafa verið tilnefnd-
ir nógu oft til að geta loks gert
tilkall til verðlaunanna. Steven
Spielberg er í fyrrnefnda hópn-
um. Hann hefur verið tilnefndur
til Óskarsverðlauna fimm sinum
og hlotið verðlaunin í tvígang;
fyrir Schindler‘s List og Saving
Private Ryan. Kvikmyndarinnar
War Horse, sem Spielberg leik-
stýrir, er beðið með mikilli eftir-
væntingu enda hafa bæði bókin
og leikritið notið mikila vinsælda.
Deadline segir myndina hafa allt
til brunns að bera; miklar tilfinn-
ingar og stórfengleg hasaratriði.
Annar reynslubolti, sem þó hefur
haft það fyrir sið að sniðganga
hátíðina, er Woody Allen. Leik-
stjórinn þykir sýna gamla takta í
Midnight in Paris en hann hefur
verið tilnefndur fjórtán sinnum til
verðlaunanna. Deadline segir Aka-
demíuna varla geta gengið fram
hjá Allen í ljósi þess að Midnight in
Paris hafi hlotið einróma lof gagn-
rýnenda og gekk vel í miðasölu.
Akademían mun vafalítið einnig
eiga erfitt með að hunsa Martin
Scorsese og ævintýramynd hans
Hugo sem fengið hefur stórkost-
lega dóma. Scorsese, þótt ótrú-
legt megi virðast, hefur aðeins
einu sinni hlotið styttuna góðu
þrátt fyrir að hafa verið tilnefnd-
ur sex sinnum og Akademían mun
alla tíð hafa það á samviskunni að
hafa valið úlfadans Kevins Cost-
ner fram yfir Goodfellas á sínum
tíma. Nafn Scorsese verður næst-
um örugglega í pottinum.
Fincher talinn heitur
Svo eru það hinir sem hafa daðr-
að við styttuna, hlotið tilnefningu
en aldrei náð á toppinn. Alexander
Payne og kvikmynd hans, The
Descendants, hafa átt góðu gengi
að fagna og nafn Davids Fincher og
Karla sem hata konur hefur verið
nefnt á nokkrum vefsíðum. Kvik-
myndanirðir virðast hafa tröllatrú
á amerískri aðlögun sænska þrí-
leiksins eftir Stieg Larsson. Hið
sama má segja um Stephen Daldry,
hann hefur gert þrjár kvikmyndir
og verið tilnefndur fyrir þær allar.
Nýjasta kvikmynd hans, Extre-
mely Loud and Incredibly Close,
þykir nokkuð spennandi en mynd-
in segir frá afleiðingum árásanna
á Tvíburaturnana.
Clooney orðaður við Óskar
Og svo er það George Clooney,
leikarinn og leikstjórinn sem Aka-
demían dýrkar.
The Ides of March hefur feng-
ið prýðisgóðar viðtökur, umfjöll-
unarefnið er pólitískt og hver vill
ekki vera vinur George Clooney?
Jason Reitman, leikstjóri Juno og
Up In The Air, þykir einnig lík-
legur fyrir kvikmynd sína Young
Adult, sömuleiðis Bennett Miller
með kvikmynd sína Moneyball og
svo er það hið óvænta; Michel Haz-
anavicius og kvikmynd hans The
Artis.
Hún er þögul og í svarthvítu en
hvar sem myndin hefur verið sýnd
hafa áhorfendur risið úr sætum og
klappað henni lof í lófa. Myndin
hefur unnið flest aðalverðlaun á
þeim kvikmyndahátíðum sem hún
hefur tekið þátt í og því er ekki
óhugsandi að The Artist gæti orðið
Öskubuskusaga ársins.
freyrgigja@frettabladid.is
Góðkunningjar Óskars lík-
legir til afreka á næsta ári
ÞUNGAVIGTARMENN
ÁBERANDI
Woody Allen og Martin Scorsese
eru meðal þeirra þungavigtarmanna
sem þykja líklegir til að hreppa
Óskarstilnefningu í lok janúar. Meðal
annarra má nefna leikstjórann
Alexander Payne, Stephen Daldry
og David Fincher sem allir hafa verið
tilnefndir en aldrei farið heim með
styttuna góðu í farteskinu.