Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 10
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR
ALLT A
Ð
KG45
| www.flytjandi. is | sími 525 7700 |
Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m
og hámarksþyngd 45 kg.
Glimrandi gott verð fyrir allt að 45 kg þungan pakka
– aðeins 750 krónur hvert á land sem er.
Sendu jólapakkann þinn fljótt og örugglega með Eimskip
Flytjanda. Upplýsingar um næsta afgreiðslustað á
www.flytjandi.is
OG EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR
JÓLAPÖKKUNUM TIL SKILA
750KR.
80
ÁFANGASTAÐIR
UM ALLT LAND
SAFNAMÁL „Þetta er svo óheppi-
legt og óaðgengilegt að ég vil ekki
kalla þetta lausn,“ sagði Siv Frið-
leifsdóttir, þingkona Framsóknar-
flokksins, í umræðum á Alþingi
um húsnæðismál Náttúruminja-
safnsins og bráðabirgðahúsnæði
safnsins í gömlu Loftskeytastöð-
inni við Brynjólfsgötu. „Það verð-
ur að höggva á þennan hnút og
koma safninu fyrir í húsnæði þar
sem hægt er að sýna þessa gripi og
skólabörn, almenningur og ferða-
menn geta komið. Þessu mál eru
okkur til skammar eins og þau eru
í dag.“
Siv lét þessi orð falla í umræðum
um skriflega fyrirspurn hennar
þar sem hún fylgdi eftir annarri
samhljóða fyrirspurn frá því í
nóvember 2009. Þá, eins og nú,
vildi Siv vita hvernig stjórnvöld
hygðust leysa húsnæðisvanda
safnsins og hvað hefði komið út
úr vinnu vinnuhóps ríkis og borg-
ar sem til stóð að kæmi saman í
kjölfar fyrri fyrirspurnar hennar.
Á þeim tíma gerði Siv það að til-
lögu sinni að Þjóðmenningarhúsið
yrði nýtt undir safnið, eða annað
hentugt eldra húsnæði.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, útskýrði,
eins og í viðtali við Fréttablaðið
fyrir skemmstu, að vegna fjár-
skorts hefði nefndin ekki lagt í
vinnu við að leysa húsnæðismálin.
Í framhaldinu hefði verið ákveðið
að safnið fengi Loftskeytastöðina
til bráðabirgða í fimm ár. „Hins
vegar lít ég svo á að vinnu við
að finna framtíðarhúsnæði fyrir
safnið sé lokið,“ sagði Katrín, sem
lýsti þeirri persónulegu skoðun
sinni í viðtali
við Fréttablað-
ið að safnið ætti
að vera í Reykja-
vík og helst við
hlið Öskju, nátt-
úruhúss Háskól-
ans, í Vatnsmýr-
inni. Eins hefur
Katrín rætt við
hagsmunaaðila
að safnið verði
„staðsett við höfnina eða í Laugar-
dal“. Eins hafa verið settar fram
hugmyndir um að sýningaraðstaða
rísi við hlið Náttúrufræðistofnunar
í Urriðaholti í Garðabæ.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
þingkona Sjálfstæðisflokksins,
sagðist fagna þeirri skoðun ráð-
herra að þeirri stefnu yrði fylgt
að koma upp á Íslandi veglegu
Náttúruminjasafni.
Þorgerður lýsti áhyggjum sínum
af því að „innan kerfisins væri
viss togstreita“ og þá á milli ráðu-
neyta og stofnana, „sem leiðir til
þess að sýn manna er ekki jafn
skýr á málefni safnsins eins og
væri ákjósanlegt“.
Siv ítrekaði þann punkt að
Náttúruminjasafnið væri eitt
þriggja höfuðsafna lands-
ins. Að Þjóðminjasafni Íslands
og Listasafni Íslands væri vel
búið, sem gerði niðurlægingu
Náttúruminjasafnsins þeim mun
meiri. svavar@frettabladid.is
Segir stöðu höfuð-
safns skammarlega
Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, segir stöðu Náttúruminja-
safns Íslands vera ráðamönnum til skammar. Ráðherra segir bráðabirgðahús-
næði hugsað til ársins 2015 og þá verði teknar ákvarðanir um hvað tekur við.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Í „Safnahúsinu“ var sýning náttúrugripa frá árinu 1908 til
1960 og er talað um gullöld safnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIV
FRIÐLEIFSDÓTTIR
MENNTUN Opinberu háskólarnir
fjórir hafa gert með sér samn-
ing um gagnkvæman aðgang
nemenda að námskeiðum við
skólana. Forsvarsmenn Háskóla
Íslands, Háskólans á Akureyri,
Landbúnaðarháskólans og Háskól-
ans á Hólum skrifuðu undir samn-
inginn ásamt menntamálaráðherra
á mánudag.
Samningurinn tekur gildi um
áramót og frá þeim tíma munu
nemendur í einum háskóla geta
skráð sig í námskeið við annan
opinberan háskóla án þess að
greiða nein viðbótargjöld og án
þess að móttökuskólinn setji
almenn takmörk á fjölda eininga
sem teknar eru með þessum hætti.
Nemendurnir munu þó þurfa að
leita til síns skóla áður en þeir skrá
sig í námskeið hjá öðrum skólum,
til að tryggt sé að þau fáist metin.
Þegar fram líður munu skól-
arnir geta notað þennan samning
til þess að hagræða í námsfram-
boði með því að sameina nám-
skeið þvert á skóla. Því er gert ráð
fyrir því að samningurinn leiði af
sér hagræðingu, bætta nýtingu á
mannauði og kennsluaðstöðu, auk
þess sem hann auki framboð á
námi fyrir nemendur.
Samningur skólanna er ótíma-
bundinn en þeir geta sagt honum
upp með átján mánaða fyrirvara.
- þeb
Samningur opinberra háskóla um gagnkvæman aðgang að námskeiðum:
Nemar geta lært við fjóra skóla
HÁSKÓLI ÍSLANDS Skólarnir munu geta
hagrætt með því að samnýta námskeið
þvert á skólana.
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuveiðin á þess-
ari vertíð er vart um talandi, þar
sem aðeins rúmlega 8.500 tonn eru
komin að landi síðan í byrjun októ-
ber af rúmlega 180 þúsund tonna
kvóta. Illa hefur gengið að staðsetja
loðnu í veiðanlegu magni, en bræl-
ur hafa líka gert mönnum lífið leitt.
Lítið hefur fundist af loðnu í
veiðanlegu magni úti af Vestfjörð-
um eftir að áhöfn rannsóknaskips-
ins Árna Friðrikssonar varð vör við
álitlegar torfur af stórri og góðri
loðnu á þessum slóðum á mánu-
dag. Um fimm til sex skip eru nú á
miðunum við leit en Árni þurfti að
hverfa frá vegna bilunar.
Meðal skipanna sem verið hafa
við loðnuleit eru skip HB Granda,
Ingunn AK og Faxi RE. Að sögn
Jóhanns Arnar Jónbjörnssonar,
sem er 1. stýrimaður á Ingunni í
veiðiferðinni, voru skipin stödd
norðvestur af Hornbjargi áður en
brældi í gær.
„Ef spáin gengur eftir þá verður
ekkert veiðiveður hér fyrr en um
eða eftir næstu helgi,“ er haft eftir
Jóhanni á vef HB Granda.
Fréttir af síld eru aðrar og betri.
Veiðum er um það bil að ljúka en
44 þúsund tonn voru komin á land í
gær af 47 þúsund tonna kvóta, eða
94 prósent síldaraflans.
Öll síldin hefur verið veidd inni
á Breiðafirði með lítilli fyrirhöfn.
- shá
Aðeins 8.500 tonn af 181 þúsund tonna kvóta hafa veiðst á vertíðinni til þessa:
Ekkert gengur á loðnuveiðum
MARS 2010 Ísleifur „á nösunum“ í Vestmannaeyjahöfn á vertíðinni í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR