Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 87
FIMMTUDAGUR 8. desember 2011 71
LAUGAVEGUR 46, 101 REYKJAVIK
Höfum opnað glæsilega nýja kvenverslun í hinu nýuppgerða og
sögufræga húsi, Laugavegi 46. Verslunin býður upp á dásamleg
merki og margt af því besta frá Skandinavíu og Frakklandi.
Merki eins og Munthe + Simonsen, Rabens Saloner, Aymara,
Lolly’s Laundry, Maison Scotch, Ambre Babzoe, Mexicana,
Mes Demoiselles, Moncocrom, By Koah, True Grace ilmkertin,
Nailstation naglalökk ásamt fleiri dásamlegum merkjum.
Sími: 571 8383
Hlökkum til að sjá þig ,
Nýtt kortatímabil
Tónlistarmaðurinn Usher kom
gestum í afmælisveislu um
helgina á óvart þegar hann gaf
afmælisbarninu Grammy-
verðlaunin sín.
Það var Rico Love sem fagn-
aði 29 ára afmæli sínu á Miami
en hann er kunnur lagasmiður
og upptökustjóri í poppbrans-
anum vestanhafs. Usher steig á
svið í veislunni og ávarpaði gesti
en þeirra á meðal var söngkon-
an Mary J. Blige. „Hvað gefur
maður manni sem getur keypt
sér allt sjálfur? Ég ákvað að vera
sá fyrsti til að færa honum eitt-
hvað óvenjulegt,“ sagði Usher í
veislunni.
Usher færði Rico Love svo
gripinn sem hann fékk fyrr á
árinu fyrir lagið There Goes My
Baby. Reyndar er afmælisbarnið
höfundur lagsins og vann við
upptökur þess þannig að deila má
um hversu stórmannlegt það var
af Usher að færa honum gripinn
við þetta tækifæri.
Gaf vini sín-
um Grammy
USHER Popparinn góðkunni gaf sam-
starfsmanni sínum Grammy-verðlauna-
grip í afmælisgjöf. NORDICPHOTOS/GETTY
Söngkonan Gwen Stefani viður-
kennir að hún fari stundum inn
í fataskápinn sinn þegar stress-
ið ætlar að ríða henni að fullu.
„Ég stunda hugleiðslu reglulega.
Stundum fer ég inn í fataskáp,
loka hurðinni og vona að enginn
finni mig,“ segir Stefani við tíma-
ritið InStyle en ásamt því að vera
söngkona er hún tveggja barna
móðir og eigandi fatamerkisins
L.A.M.B.
Stefani er gift söngvara hljóm-
sveitarinnar Bush, Gavin Ross-
dale.
Finnur frið í
fataskápnum
STRESSKAST Í FATASKÁP Gwen Stefani
stundar hugleiðslu í fataskáp sínum
þegar hún verður stressuð.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hjónin Will Smith og Jada
Pinkett Smith eru þreytt á að
þykjast og eru á barmi skiln-
aðar ef marka má slúðurblað-
ið Star Magazine. Í haust var
fréttaflutningur mikill um
framhjáhald leikkonunnar með
söngvaranum Marc Anthony en
Smith-hjónin voru fljót að blása
á sögusagnir um skilnað.
Í nýjasta tölublaði Star
Magazine er því haldið fram
að leikarahjónin séu nú þreytt
á að þykjast. „Þau eru búin
að þykjast vera saman í lang-
an tíma og vilja ekki lifa í lygi
lengur. Þau hafa engin sam-
skipti lengur og lifa hvort sínu
lífinu,“ segir heimildarmaður
blaðsins og heldur því fram að
hjónin sofi ekki í sama herberg-
inu. „Ástæðan fyrir því að þau
eru ekki löngu skilin er að þau
eru hrædd um að skilnaður-
inn hafi áhrif á starfs-
feril þeirra,“ segir heim-
ildarmaðurinn en gera
má ráð fyrir að skilnað-
urinn eigi eftir að vera
erfiður og dýr.
Will Smith og Jada
Pinkett Smith hafa
verið gift í 14 ár og eiga
saman þrjú börn.
Smith-hjónin þreytt á að þykjast
Á BARMI SKILNAÐAR Will Smith og Jada
Pinkett eru að fara að skilja segir í slúður-
blöðunum vestanhafs.
HJÓNADJÖFULL Marc
Anthony er sagður
hafa verið ástmaður
Jödu Pinkett.
NORDICPHOTOS/GETTY