Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 36
36 8. desember 2011 FIMMTUDAGUR
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
NÚ ER UMRÆÐAN
FJÖLBREYTTARI,
SKEMMTILEGRI,
FJÖRLEGRI,
ÍTARLEGRI OG
AÐGENGILEGRI Á VÍSI
Meiri Vísir.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meira úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í topp–upplausn með greiðara og
einfaldara aðgengi fyrir allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu með
öllu því sem gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Má bjóða ykkur meiri Vísi?
Gjöfular endurnýjanlegar auðlindir og vistvæn orka,
ásamt lágu kolefnisspori (CO2)
vegna orkunotkunar bygginga
er sérstaða okkar. Raforkuverð
er lágt á Íslandi í dag miðað við
nágrannalöndin, en allt bendir
til að það muni hækka á næstu
árum. Því er spurning hver sé
efnahagslegur ábati fyrir Íslend-
inga að leggja í fjárfestingar við
að spara orku og eru hagræðing-
armöguleikar í orkumálum alltaf
fullnýttir?
Í heildstæðri orkustefnu fyrir
Ísland er markmið sett fram um
að raforkuverð færist nær því
sem þekkist á meginlandsmörk-
uðum Evrópu og einnig er spáð
að orkuverð tvöfaldist á næstu 20
árum, svo eftir einhverju verð-
ur að slægjast. Jarðvarminn er
einnig okkar sérstaða og er ódýr í
samanburði við kyndingarkostn-
að Evrópuríkja, þar sem notuð
eru t.d. kol, gas og kjarnorka sem
er bæði óvistvæn orka og veldur
útblæstri gróðurhúsalofttegunda
(CO2).
Lög, reglur og staðlar varðandi
orkunotkun
Ljóst er að okkur vantar regl-
ur, staðla og viðmið hvað varðar
orkunotkun og nýtingu. Í gild-
andi byggingarreglugerð nr.
441/1998 er gerð krafa um U-
gildi (W/m²K) og varmaeinangr-
un, en það er mat sérfræðinga að
kröfur byggingarreglugerðar í
dag eru þegar of strangar fyrir
Reykjavíkursvæðið (endurborg-
unartími of langur) og er það
að bera í bakkafullan lækinn að
auka við þessa kröfu. Það vantar
rannsóknir og samræmingu auk
þess er þekkingarskortur á arð-
sömum aðgerðum.
Eitt af markmiðum nýrra
mannvirkjalaga nr. 160/2010 er;
„að stuðla að góðri orkunýtingu
við rekstur bygginga“ og í yfir-
lýstum markmiðum Alþingis
við endurskoðun byggingareglu-
gerðar 2011 segir: „Markmið-
ið er framsæknasta byggingar-
reglugerð á Norðurlöndum hvað
varðar sjálfbæra þróun.“ En því
miður er ekki farið eftir þessum
markmiðum og er aukin krafa
um einangrun bygginga þ.e. U-
gildi (W/m²K) eina aðgerðin til
vistvænna framfara og bættr-
ar orkunýtingar, þó svo að hag-
kvæmisútreikningar sýna að
það sé ekki að skila tilætluðum
árangri.
Iðnaðarráðuneytið hefur nú til
skoðunar nýja tilskipun Evrópu-
sambandsins um orkunýtingu
bygginga (Directive 2010/31/
EU), en væntanlega munu íslensk
stjórnvöld sækja um undanþágu
frá því regluverki þrátt fyrir að
núverandi og nýsamþykkt lög
(Lög um mannvirki nr. 160/2010)
er varða skipulag og mannvirki,
geri auknar kröfur í átt til sjálf-
bærrar þróunar. Þar vega þungt
ákveðin hagnaðarrök þar sem
auknar aðgerðir í átt til orku-
sparnaðar eru ekki talin góð fjár-
festing eins og staðan er í dag.
Það eru litlar tengingar milli til-
skipunar Evrópusambandsins
(Directive 2010/31/EU) við nýja
og endurskoðaða byggingarreglu-
gerð, þrátt fyrir fögur fyrirheit
um sjálfbæra þróun og góða
orkunýtingu við rekstur bygg-
inga.
Í stuttu máli sagt þá er iðnaðar-
ráðuneytið sem er umsagnaraðili
tilskipunar Evrópusambands-
ins um orkunýtingu bygginga
(Directive 2010/31/EU) ekki í
takt við sérfræðinga umhverf-
isráðuneytisins sem vinna við
smíði nýrrar byggingarreglu-
gerðar. Eins og áður kemur fram
þá eru það vafasamar tillögur
umhverfisráðuneytisins um enn
meiri einangrun bygginga, sem
telst þó óarðsöm aðgerð og mun
hækka byggingarkostnað og auka
enn frekari álögur á byggingar-
og framkvæmdaaðila á Íslandi.
Vistvæn og bætt hönnun, skoðun
á líftímakostnaði(LCC)
Á síðustu árum eru tæknimenn
og fjárfestar farnir að gefa meiri
gaum að heildarmyndinni í fram-
kvæmdum og mannvirkjagerð
með hönnunarstjórnun og skoðun
á líftímakostnaði (LCC). Fram-
kvæmda- og rekstraraðilar og
eigendur fasteigna eru farnir að
átta sig á því að eitt er að byggja
og annað er að reka mannvirkið
til fjölda ára. Að vanda undir-
búninginn í skipulagi, hönnun og
framkvæmd skilar sér í minna
viðhaldi og lægri rekstrarkostn-
aði allan líftímann.
Vistvæn hönnun varðandi orku
gengur út á m.a. að setja viðmið
um hámarksorkunotkun bygg-
ingarinnar, leggja áherslu á not-
endastýringu og gera ráð fyrir
mælum og/eða hússtjórnarkerf-
um til að fylgjast með orkunotk-
un. Markmiðin með vistvænni
hönnun er ekki aðeins að hvetja
til hagkvæmari reksturs mann-
virkja allan líftímann heldur
einnig heilsusamlegra umhverfi
fyrir notendur og að hvetja til
betri umhverfisstjórnunar á
verktíma. Myndin sem fylgir
sýnir myndrænt hvernig hærri
upphaflegur fjárfestingarkostn-
aður skilar sér í lægri viðhalds-
og rekstrarkostnaði og förgun í
lok líftímans þ.e. „frá vöggu til
grafar“. Niðurstaða hagkvæm-
isútreikninga sýna að vistvæn
framleiðsla skilar sér í lægri
heildarlíftímakostnaði heldur en
hefðbundin framleiðsla.
Það þarf því að nota viður-
kennda aðferðarfræði til að finna
út hvernig það kemur út fyrir
íslenska framleiðslu og mann-
virki að innleiða þessar vistvænu
áherslur og áhrif þeirra á orku-
notkun með greiningu á heild-
arlíftímakostnaði. Þó svo að við
búum við ódýra orku miðað við
nágrannaþjóðir okkar þá er full
ástæða til að fara vel með. Það
er þjóðfélagslega hagkvæmt að
ala með sér vistvænar áherslur,
sjálfbæra þróun og stuðla að
góðri orkunýtingu, enda eru
orkuauðlindir okkar ekki óþrjót-
andi og rétt að hugsa til komandi
kynslóða. Allt þarf þó að vera
innan viðunandi skynsemis- og
arðsemismarka.
Framkvæmda- og rekstraraðilar og
eigendur fasteigna eru farnir að átta sig
á því að eitt er að byggja og annað er
að reka mannvirkið til fjölda ára. Að vanda undir-
búninginn í skipulagi, hönnun og framkvæmd skilar
sér í minna viðhaldi og lægri rekstarkostnaði allan
líftímann. Vistvæn hönnun varðandi orku gengur út
á m.a. að setja viðmið um hámarksorkunotkun ...
Orkunotkun bygginga
Orkumál
Jón Sigurðsson
byggingatækni-
fræðingur og í stjórn
vistbyggðaráðs
■ Förgun
■ Viðhalds- og rekstrarkostnaður
■ Fjárfestingarkostnaður
Hefðbundin
framleiðsla
Vistvæn
framleiðsla
H
ei
ld
ar
ko
st
na
ðu
r
Líftímakostnaður
á hefðbundinni og vistvænni byggingu