Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 52
4 •
Læknastö›in • Kringlunni
Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Nýjustu
heyrnartækin
og ókeypis heyrnarmæling
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og kynntu þér
nýjustu heyrnartækin sem við höfum að bjóða.
Þú trúir örugglega ekki þínum eigin augum
– hvað þá eyrum!
Það merkilega er hins vegar að aðdáendurnir
virðast vera á öllum aldri. Sigurjón Kjartans-
son, gítarleikari og söngvari HAM, hefur
engar skýringar á því. „Ég vona að það sé
vegna þess að við reynum að vera heilir í því
sem við gerum. Það er ágætt að hugsa ekki
of mikið um hvað við erum að gera. Við vitum
ekkert allt of mikið hvað við erum að gera.
Sem er mjög heilbrigt í allri listsköpun — vera
ekki að greina hlutina of mikið. Ég held að
það sé hluti af því sem er HAM. Við gerum
það sem við gerum.“
Heldurðu að það geti spilað í inn í að unn-
endur þungarokks halda alltaf tryggð við sína
tónlist?
„Við höfum aldrei litið svo á að við séum að
spila þungarokk.“
Hvað eruð þið þá að spila?
„Ég veit það ekki. Einhvers konar kulda-
rokk. Við höfum aldrei reynt að greina það.
Það hefur komið einhver massi og við erum
mjög hrifnir af honum. Þessum hljóðmassa
sem okkur tekst að búa til. Við höfum aldrei
verið meðvitaðir um að við séum að búa til
einhvers konar þungarokk. Þungarokkarar
hafa verið mjög ásæknir í okkur og við erum
mjög ánægðir með þá, enda afskaplega kær-
leiksríkt og yndislegt fólk.“
Svik, harmur og dauði hefur selst talsvert
betur en fyrri verk HAM. Spurður hvort HAM
hafi búist við þessum viðtökum segir Sigur-
jón að þeir hafi vonast til að fá góðar við-
tökur, enda sjálfir ánægðir með plötuna. „En
við vorum ekki að búast við neinu sérstöku.
Það var nokkuð heilbrigt viðhorf gagnvart
þessari plötu. Ég hafði samt þá tilfinningu að
ég yrði ekki ánægður ef hún fengi slæmar
viðtökur, eins og eðli mannsins er. Hitt var
mjög ánægjulegt.“
Öfugt við dómsdagsspár rétthafasamtaka
og útgáfufyrirtækja, þar sem allt er á niður-
leið. En þið eruð á uppleið.
„Reyndar er tónlistarbransinn á mikilli upp-
leið. Það er alltaf einhver söngur í gangi. Ég
sá nýlega einhverjar staðreyndir á netinu sem
áttu að vera voða sorglegar fyrir tónlistar-
bransann. Þar voru alls konar tónlistarmenn
sem ég hef ekki einu sinni heyrt minnst á að
selja meira en Michael Jackson og Bítlarnir.“
Já, allir voða sorrí, en svo sýndi þetta að
tónlistin rennur út.
„Miklu meira, enda meikar það sens.
Jarðarbúar eru miklu fleiri en þegar Michael
Jackson var upp á sitt besta. Þannig að þessi
söngur er vegna þess að þetta hefur breyst.
Fólk er ekki að kaupa geisladiska, heldur
niðurhal á iTunes. Svo er vöxtur í vínyl-
plötunni.“
HAM kom fram á Airwaves í ár og fékk
meðal annars góða umsögn frá David Fricke,
ritstjóra Rolling Stone. Hann hefur lengi verið
einn af þekktustu tónlistarblaðamönnum
heims, en hérna heima er hann þekktastur
fyrir að hafa skrifað lofsamlega um tónleika
hljómsveitarinnar Jakobínurínu á Airwaves.
Ungar hljómsveitir eru oft með mikla meik-
drauma þegar þær koma fram á Airwaves,
hvernig var hugarfarið í HAM áður en hljóm-
sveitin steig á svið í Hafnarhúsinu?
„Bara að spila góða tónleika. Við pældum
ekkert í hvort við værum á Airwaves eða
Nasa. Ef við gefum okkur út fyrir að spila á
annað borð þá gerum við það vel. Þá æfum
við okkur vel og erum þéttir. Við lásum það
sem Fricke skrifaði og það sem ýmsir aðrir
skrifuðu. Það var voða gaman að sjá það.
En við erum ekki með neina meikdrauma.
Við höfum samt spilað úti, við spiluðum í
Danmörku í vor. Okkur finnst gaman að fara
út að spila. Það er ágætistækifæri fyrir okkur
félagana að hanga saman. Eins og miðaldra
kerlingar sem fara saman til Dublin. Eða
verslunarferð til Amsterdam.“
Það er ekkert rugl á ykkur?
„Nei. Okkur skortir rugl.“
Sigurjón er aðallagahöfundur HAM og
skráður fyrir öllum lögunum á Svik, harmi
og dauða. Miðað við drungalega tónlistina á
plötunni er erfitt að sjá fyrir sér fjölskyldu-
föður í Kópavoginum sitja í húsbóndastólnum
með kassagítarinn að skapa slagara á borð
við Dauða hóru.
„Það er oft þannig. Oft verða lögin samt til
í bílnum. Eða þegar ég er einhvers staðar að
fást við eitthvað. Svo fer ég heim og glamra
það á kassagítarinn og tek upp á símann.
Áður tók ég upp á kassettutæki, sem er núna
týnt. Því miður.“
En þú hlustar ekkert á þungarokk og neitar
að þið spilið þungarokk, en samt er tónlistin
svo mikið þungarokk. Maður heyrir meira
að segja þekktar klisjur úr þungarokkinu í
tónlistinni. Er það bara sjálfsprottið?
„Ég hef alveg heyrt heilbrigðan skammt
af þungarokki. En ég veit ekki hvað þessar
hljómsveitir heita í dag. Það var einhver að
segja mér að það væri heilmikið black metal
í okkur, en ég hef aldrei heyrt black metal-
lag. Ég hef hlustað á Slayer, AC/DC. That‘s it!
Ég þoli ekki Metallica og er ekki úr þessum
þungarokksranni. Mér finnst fyrsta platan með
New Order góð, skilurðu? Ég er nýbylgju-
maður í grunninn. Ég get hlustað á allt. ABBA,
til dæmis. Ég læt oft ABBA á fóninn.“
Nei, er það?
„Já. Ég var að hlusta á The Visitors, sem er
síðasta ABBA-platan, um daginn.“
En HAM er búin að vera lengi til, verður
HAM alltaf til?
„Ég veit það ekki. Við tökum því rólega.
Við erum alls ekki að hætta. Okkur finnst
nærvera hvers annars mikilvæg með
reglulegu millibili. En við erum ekki að plana
næstu plötu. Ég er reyndar það ánægður
með nýju plötuna að ég gæti sagt stopp, hér
og nú. En við förum rólega í þetta. Engar
yfirlýsingar.“
HAM rankaði heldur betur
við sér í sumar og sendi frá
sér plötuna Svik, harmur og
dauði. Platan hefur fengið
frábæra dóma og tónleikar
hljómsveitarinnar, þótt fáir
séu, eru ávallt eins og í
gamla daga: Troðfullir af
sveittum aðdáendum.
Orð: Atli Fannar Bjarkason
Myndir: Anton Brink
VIÐ GERUM ÞAÐ SEM VIÐ GERUM
POPPSKÚRINN
Skannaðu kóðann
og sjáðu HAM flytja
Ingimar, Sviksemi og
fleiri slagara.
Myndatakan var þægileg og
strákarnir í HAM gátu keypt sér
alls konar skrýtna gosdrykki í
leiðinni.
POPP/ANTON
„OKKUR FINNST GAMAN AÐ FARA ÚT AÐ SPILA. ÞAÐ
ER ÁGÆTIS TÆKIFÆRI FYRIR OKKUR FÉLAGANA AÐ
HANGA SAMAN. EINS OG MIÐALDRA KERLINGAR SEM
FARA SAMAN TIL DUBLIN. EÐA VERSLUNARFERÐ TIL
AMSTERDAM.“