Fréttablaðið - 08.12.2011, Síða 12

Fréttablaðið - 08.12.2011, Síða 12
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR12 P IP A R \ P IP A R \ P IP A R \ P IP A R \ P A R \ P IP A R \ A R \ A RR P IP AA P P IPPP P IP T B W A - T B W A - T B W A - T B W A - B W A - T B W A T B W A W AA W T B W TT S ÍA - S ÍA - S ÍA - S ÍA - S ÍA -- S ÍA - S ÍA S ÍA A S 1 02 92 1 02 92 1 02 92 1 02 92 1 02 92 1 02 922929 1 02 9 10 292 1111 ORKUMÁL „Það er ekki mikið sem hægt er að segja við svona uppákomu,“ segir Friðrik Sigurðs- son, talsmaður sænska fyrirtækis- ins Hannevind, sem framleiddi vindmylluna sem stórskemmdist í Belgsholti í Leirársveit. Vindmyllan í Belgsholti var sett upp í byrjun júlí í sumar. Hún er eina vindmyllan hérlendis sem tengd er almenna raforkukerfinu. Mótorinn og spaðinn fuku af myll- unni í hvassviðri í síðustu viku. Haraldur Magnússon í Belgs- holti segist hafa séð til myllunnar um fimmtán mínútum fyrir óhapp- ið. Þá hafi spaðarnir snúið öfugt og myllan í raun unnið gegn vindinum. Hann hafi þó ákveðið að aðhafast ekki enda ætti sjálfvirkur búnað- ur að sjá til þess að haga stefnunni eftir vindum. „Þegar ég kom úr fjósinu rúmlega tíu sá ég að hún var komin niður. Ég veit ekki hvort það var forritið eða nemar sem eiga að lesa úr aðstæðum sem brugðust,“ segir hann. „Nú verður að vinna markvisst að því að komast að raunveruleg- um orsökum óhappsins. Það er ekki létt að segja til um hvað setti þetta ferli í gang, þar sem enginn sjónar- vottur var að því, svo það einkenn- ist af getgátum sem allar geta átt við rök að styðjast eins og er,“ segir Friðrik. Enn hefur ekki verið ákveðið hve- nær endurbygging vindmyllunnar hefst. Haraldur segist vonast til að verkið taki hann ekki meira en tvo mánuði. „Það verður farið gegnum allt frá grunni með innlendum starfsmönnum ásamt frumhönnuði vindmyllunnar, sem verður með í því verki,“ segir Friðrik, sem nú kveður unnið að því að panta þá hluti sem skipta þurfi um. Síðan verði gerð áætlun um framgang endurbyggingarinnar. „Útkoman verður að vera sú að við fáum betri vindmyllu sem nýtist helst sem flestum sem hyggja á græna orku- öflun til framtíðar.“ Á heimasíðu Belgsholts segir að myllan hafi unnið eðilega í snörpum vindhviðum þennan þriðjudags- morgun þar til um klukkan 9.35 að hún hafi snúið sér á hlið eins og forritið gefi skipun um. Þá eigi bremsubúnaður að stöðva spaðana og myllan að snúa sér þannig að sem minnst átak sé á þá. „En það sem gerist er að spaðarn- ir stöðvast ekki og þegar stjórnbún- aðurinn hefur snúið mylluhúsinu í 180 gráður á vindstefnu án þess að þeir hafi stöðvast verður of mikið álag á spaðana sem eru úr trefja- gleri og einn spaðinn brotnar. Við það kemur mjög mikið átak á fest- ingar og þar sem mylluhúsið er rúmt tonn að þyngd þá losnar það af legunni og fellur til jarðar,“ segir á belgsholt.is gar@frettabladid.is Nú verður að vinna markvisst að því að komast að raunverulegum orsökum óhappsins. HARALDUR MAGNÚSSON BÓNDI Í BELGSHOLTI Bremsa brást er vindmylla fauk af mastri Bóndinn í Belgsholti telur bremsu í vindmyllu sinni hafa bilað þegar spaðarnir og mótorinn fuku af. Talsmaður myllufyrirtækisins segir hugmyndir um orsakir aðeins getgátur. Málið skoðist frá grunni. MYLLAN SEM FAUK Bóndinn í Belgsholti vonast til að ekki taki meira en tvo mánuði að koma í gagnið vindmyllunni sem sá bænum fyrir rafmagni og veitti orku inn á almenna kerfið að auki þar til spaðarnir og mylluhausinn sviptust af. MYND/BELGSHOLT.IS Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Kletthálsi Rvk Akureyri Reykjanesbæ Húsavík Vestmannaeyjum KALT ÚTI Rafmagnshitablásari 2Kw 1 fasa 6.590 Rafmagnshitablásari 5Kw 3 fasa 11.990 Panelofnar í MIKLU ÚRVALI! FRÁBÆRT VERÐ! Rafmagnshitablásari 2Kw 1.995 Gas hitablásari 15Kw 17.900 KRANAR OG HITASTILLAR FRÁ Olíu hitablásari 28Kw 79.900 Nokkrar stærðir á lager FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ ERU ENGIN HÖFT Í VIÐSKIPTUNUM Á VÍSI m.visir.is Fáðu Vísi í símannog iPad! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. DANMÖRK Líkur eru á því að tveir menn á fertugsaldri sem stálu bíl í bænum Randers á Jótlandi á sunnudag hafi látist í bílslysi sama dag, en þeir fundust ekki fyrr en tveimur dögum síðar. Í frétt Jótlandspóstsins segir að bíllinn hafi fundist á þriðju- dag, í hvarfi við þjóðveginn utan við bæinn. Mennirnir voru látnir þegar að var komið. Notuð verða staðsetningartæki til að tíma- setja slysið. - þj Rændu bíl og dóu í slysi: Fundust tveimur dögum síðar Reyndi að bíta lögreglu Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að sparka í lögreglu mann, reyna að bíta hann og hóta honum meiðingum. Atburður- inn átti sér stað á heimili ákærða. Maðurinn játar brot sín. DÓMSMÁL DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur fellt úr gildi ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur, sem vísaði á dög- unum frá kæru þrotabús Mile- stone á hendur Karli Werners- syni, stærsta eiganda félagsins og stjórnarformanni á árunum fyrir hrun. Málið varðar riftun á fjórum greiðslum, samtals að fjárhæð rúmlega 500 milljónir króna, frá Milestone til Karls frá september 2007 til febrúar 2009. Héraðs- dómur vísaði málinu frá á þeirri forsendu að kröfulýsingarfrestur í búið hefði verið runninn út þegar málið va r höfðað. Milli þess að málið var höfð- að og frest- u r i n n r a n n út samþykkti Alþingi hins vegar breyt- ingar á gjald- þrotaskiptalögum þar sem frest- ur til málshöfðunar var lengdur tímabundið. Var það mat dómara í héraði að lagabreytingin hefði ekki áhrif á þau þrotabú sem tekin voru til gjaldþrotaskipta áður en hún tók gildi. Var það mat Hæstaréttar að álitamál væri hvort fyrningar- frestur hefði verið liðinn. Það þyrfti að leiða til lykta við efnisúrlausn málsins og héraðs- dómur Reykjavíkur skyldi því taka málið til efnismeðferðar. Málið gæti orðið fordæmis- gefandi fyrir fleiri mál sem sam- anlagt snúast um fjölda milljarða króna. - mþl Riftunarmál þrotabús Milestone gegn Karli Wernerssyni tekið til efnismeðferðar: Ákvörðun Héraðsdóms felld úr gildi KARL WERNERSSON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.