Fréttablaðið - 08.12.2011, Page 86

Fréttablaðið - 08.12.2011, Page 86
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR70 F íto n /S ÍA Njóttu jólanna í faðmi fjölskyldunnar Við viljum öll njóta þess besta saman um jólin, hvort sem það er heitt súkkulaði og smákökur eða stórkostleg jóladagskrá Stöðvar 2. Styttum biðina fyrir þau yngstu með vönduðu talsettu barnaefni, upplifum hátíðlega tónleika og hjúfrum okkur saman undir teppi og njótum þeirra fjölmörgu bíómynda sem eru á dagskrá Stöðvar 2 og Stöðvar 2 Bíó um jólin. Skoðaðu stod2.is og kynntu þér frábæru jóladagskrána okkar til hlítar! Gefðu áskriftarkort að Stöð 2 í jólagjöf. Það fæst hjá okkur í Skaftahlíðinni! VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 JÓLA BÍÓ Stöð 2 Bíó sýnir yfir 200 úrvalskvikmyndir í hverjum mánuði og stöðin fylgir frítt með áskrift að Stöð 2. Bryndís Björgvinsdóttir er ungur rithöfundur sem hlaut Íslensku barnabóka- verðlaunin í ár. Fyrsta upp- lag er uppselt og annað í prentsmiðju, og Flugan sem stöðvaði stríðið er bók mán- aðarins á Bókamessunni í Frankfurt. „Ég náttúrulega bjóst aldrei við þessu,“ segir Bryndís Björgvins- dóttir rithöfundur, um mikla velgengni annarrar skáldsögu hennar, Flugunnar sem stöðvaði stríðið. „Ég bjóst ekki við því að bókin myndi fá Íslensku barna- bókaverðlaunin til að byrja með. Ég fékk þær fréttir einmitt þegar ég var stödd í London sama dag og William prins og Kate giftu sig. Ég mátti engum segja og var alveg kampakát í veislu um kvöldið – allir héldu að ég væri svona hrika- lega ánægð með þetta konunglega brúðkaup,“ segir Bryndís sem er að vonum einnig kampakát þessa dagana. Bókin hennar er nefni- lega ein af fimm bókum og eina barnabókin sem send hefur verið í endurprentun á vegum Forlagsins, fyrra upplagið er nánast uppselt. „Ég er rosalega fegin að bók- inni hafi verið svona vel tekið og að hún selst vel. Ég fékk nefnilega mína fyrstu skáldsögu útgefna þegar ég var fimmtán ára, ásamt vinkonu minni, og hélt á tíma- bili að það væri ógeðslega létt að vera rithöfundur. Við skrifuðum hana á einum mánuði en það tók mig þrjú ár að skrifa nýju bók- ina, með vinnu og skóla. Þá allt í einu fannst mér þetta ekkert létt lengur, þetta er auðvitað rosalega mikil vinna upp á von og óvon.“ Íslensku barnabókaverðlaunin eru ekki eini heiðurinn sem Bryn- dísi hefur hlotnast fyrir bókina, því nýlega var hún valin sem bók desembermánaðar á Sagenhaftes, Bókamessunni í Frankfurt. Þar fær hún mikla kynningu bæði á ensku og þýsku og að sögn Bryn- dísar hefur hún fengið veður af því frá útgefenda sínum að erlend útgáfufyrirtæki séu farin að sýna bókinni áhuga. „Bókin er ekki bundin við neinn stað, hún getur í rauninni gerst í hvaða landi sem er og fjallar um hluti sem allir þekkja, stríð og húsflugur. Hús- flugurnar eiga að standa fyrir þá sem eru undir í samfélaginu, þá sem þykir sjálfsagðara að beita ofbeldi, eða jafnvel deyða. Bók- inni er ætlað að benda á fáránleika stríðs, enn og aftur. Það er nátt- úrulega búið að gera það margoft í heimsbókmenntunum en það er alltaf jafn mikilvægt að halda því til haga að stríð séu fáránleg.“ Bryndís hefur undanfarið lesið upp úr bókinni fyrir fjölda fólks, bæði börn og fullorðna. Hún segir að bókin sé ætluð öllum og að margt leynist í henni sem er ekki á færi þeirra yngstu að skilja fyrr en seinna, en þeir eldri geti hlegið að. Henni finnst sérstaklega skemmtilegt að fara í grunnskólana, og segist geta hvatt yngstu kynslóðina áfram í að elta drauma sína. „Við vinkona mín skrifuðum bók þegar ég var fimmtán ára nefnilega af því að mig hafði dreymt draum um að ég hefði skrifað bók og fengið verð- laun fyrir hana. Vinkonu minni fannst sjálfsagt að við drifum í þessu, en þótt bókin hafi orðið til fengum við engin verðlaun. Svo fjórtán árum seinna fæ ég verð- launin. Ég segi oft við krakkana að þetta sýni að draumar geti ræst. Það tekur bara miklu lengi tíma, meiri vinnu og kannski rætast þeir á aðeins annan hátt en maður bjóst við í upphafi.“ bergthora@frettabladid.is Dreymdi að hún skrifaði bók og ynni til verðlauna ÁNÆGÐ MEÐ VIÐTÖKURNAR Afar sjaldgæft er að barnabók hljóti þann heiður að vera bók mánaðarins á Bókamessunni í Frankfurt. Bryndís Björgvinsdóttir getur því brosað breitt þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bókinni er ætlað að benda á fáránleika stríðs, enn og aftur. BRYNDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR RITHÖFUNDUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.