Fréttablaðið - 08.12.2011, Qupperneq 92
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR76
sport@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR Það er að ýmsu að hyggja
í rekstri íþróttafélaga og einn
stór liður hjá körfubolta- og
handknattleiksdeildum er dóm-
ara- og ferðakostnaður. Knatt-
spyrnudeildir landsins þurfa
ekki að hafa áhyggjur af þessum
útgjaldalið því KSÍ greiðir allan
dómara- og ferðakostnað fyrir
sín félög, en KSÍ hefur úr mun
meiri peningum að spila en HSÍ
og KKÍ.
Það er sérstaklega dýrt fyrir
HSÍ og KKÍ að senda dómara
út á land, en það kostar yfir 100
þúsund krónur að senda dóm-
ara á leiki á Akureyri sem og á
Sauðárkróki. Álíka dýrt er að
senda dómara til Vestmannaeyja,
enda þarf oftast að fljúga þangað.
„Við erum nýbúnir að hækka
dómarakostnaðinn hjá okkur um
15 prósent. Þetta var mikið rætt
og í dag er almenn sátt um þessa
verðskrá. Það þarf að greiða
fyrir þessa þjónustu eins og
aðra,“ segir Hannes Jón Jónsson,
formaður KKÍ, en hann segir sitt
samband hafa gert sitt besta til
þess að draga úr kostnaði við
leiki úti á landi.
Jafn mikill kostnaður
fyrir öll félögin
„Við erum að senda dómara í
Stykkishólm og til Sauðárkróks
á bílaleigubílum og sá samning-
ur er að spara hreyfingunni hátt
í milljón á ársgrundvelli,“ segir
Hannes, en þó svo að það sé dýr-
ara að fá dómara út á land þýðir
það ekki að viðkomandi félag
þurfi að greiða meira en liðin í
bænum. KKÍ er með jöfnunarsjóð
og kostnaðurinn dreifist því jafnt
á öll liðin.
Hannes segir að nánast allir
dómarar komi frá höfuðborgar-
svæðinu og til að mynda séu
engir dómarar á Akureyri sem
geti dæmt í efstu deild.
Annað vandamál sem íþróttirnar
glíma við er mönnun á leikjum,
enda eru dómarar með réttindi til
þess að dæma í efstu deild ekki á
hverju strái.
„Það er stundum erfitt og
það er staðreynd að við eigum
ekki nóg af dómurum. Þetta eru
margir leikir og það er mikið
álag á okkar bestu dómurum.
Okkur vantar fleiri dómara svo
álagið á dómarana verði eðli-
legt,“ segir Hannes, en hann
segir ágætis þátttöku vera á
dómaranámskeiðum.
Sitt sýnist hverjum um þennan
kostnað en Hannes bendir á
að það verði að greiða ágæt-
lega fyrir vinnuna svo dómarar
haldist í starfi.
„Það þarf að vera einhver gul-
rót en auðvitað velta menn fyrir
sér hvort gjaldið sé of hátt eða of
lágt. Mitt mat er að dómararnir
séu að fá sanngjarnar greiðslur
fyrir sína vinnu.“
HSÍ greiðir ferðakostnað
fyrir félögin
„HSÍ greiðir ferðakostnaðinn í
efstu deildunum og dagpeninga.
Liðin standa því eftir með ein-
göngu dómarakostnaðinn, sem
og kostnað vegna eftirlitsdóm-
ara þegar það á við,“ segir Róbert
Geir Gíslason hjá HSÍ um dóm-
arakostnaðinn í handboltanum,
sem er því nokkuð minni en í
körfunni. Róbert segir að engu
að síður finnist mönnum í hreyf-
ingunni dómarakostnaðurinn
vera of hár.
HSÍ, rétt eins og KKÍ, lækkar
ferðakostnað með því að senda
dómara á leiki á bifreiðum í eigu
sambandsins eða á bílaleigubíl-
um.
„Það er búið að gjörbreyta
gjaldskránni hjá okkur á síðustu
þrem árum. Við erum líka búnir
að einfalda hana mikið og sam-
ræma kostnað. Það hefur ekki
orðið mikil hækkun, rétt í kring-
um 4 prósent á þessu ári,“ segir
Róbert Geir. henry@frettabladid.is
EMBLA GRÉTARSDÓTTIR knattspyrnukona hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan
feril. Embla, sem aðeins er 29 ára, hefur verið að glíma við meiðsli og það er hluti af því af hverju hún er
hætt. Embla lék með Sindra, KR og Val á ferlinum og vann fjölda titla ásamt því að spila 10 A-landsleiki.
RÁNDÝRT AÐ
FÁ DÓMARA
Kostnaður við að fá dómara á leiki á Akureyri og
Sauðárkróki í handbolta og körfubolta er yfir 100
þúsund krónum. Mikið álag er á bestu dómurunum.
Körfubolti
Miðað við að dómari komi alltaf frá Reykjavík:
Leikur í Iceland Expressdeild-karla á höfuðborgarsvæðinu:
Dómaralaun 13.200 (per dómara) + akstur innan svæðis 3.500 = 16.700 kr.
Leikur í Iceland Express-deild karla í Reykjanesbæ:
Dómaralaun 13.200 + akstur 13.000 + fæði 2.500 = 28.700 kr.
Leikur í Iceland Express-deild karla í Stykkishólmi:
Dómaralaun 13.200 + akstur 40.800 + göng 2.000 +fæði 4.850 = 60.850 kr.
Leikur í Iceland Express-deild karla á Sauðárkrók:
Dómaralaun 13.200 + akstur 71.200 + göng 2.000 +fæði 9.700 = 96.100 kr.
Leikur í 1.d.karla á Egilsstöðum ( flogið fram og til baka sama dag/kvöld ef um virkan dag er
að ræða geta dómarar innheimt fjarveruálag til kl.17.00 )
Dómaralaun 9.000 + akstur innan svæðis 3.500 + fæði 4.850 + fjarveruálag 2 klst
1.600*2 = 20.550 kr. ( við bætist svo flug sem Höttur sér um að leggja út fyrir og greiða )
Leikur í 1.d.karla á Ísafirði ( þar er yfirleitt gist þar sem ekki er flogið til/frá Ísafirði þar sem of
dimmt er þegar líða tekur á daginn og ekki lýsingar á flugvellinum eins og best er á kosið)
Dómaralaun 9.000 + akstur innan svæðis 3.500 + fæði 9.700 + fjarveruálag 2klst 1.600*2
= 25.400 kr. ( við bætist svo flug og gisting sem KFÍ sér um að leggja út fyrir og greiða )
Dómaralaun:
Úrslitaleikur karla í Poweradebikarnum og leikir í úrslitum IE-deildar karla 34.000 kr.
Úrslitaleikur í Poweradebikarbikar kvenna 27.100 kr.
Leikir í úrslitum Iceland Express-deildar kvenna 20.300 kr.
Iceland Express-deild karla 13.200 kr.
Iceland Express-deild kvenna 9.800 kr.
1.d.karla 9.000 kr.
2.d.karla og 1.d.kvenna 4.700 kr.
Yngri flokkar 4.700 kr.
Aksturskostnaður:
Iceland Express-deildirnar og 1.d. karla 3.500 kr. innan svæðis
Aðrar deildir og yngri flokkar 2.000 kr. innan svæðis
Reykjavík–Reykjanes 11.500 ( í IEX deildunum og 1.d.karla bætist við 1500 kr.gjald
= 13.000 kr.)
Reykjavík –Hveragerði 11.100 ( í IEX deildunum og 1.d.karla bætist við 1500 kr.gjald
= 12.600 kr )
Reykjavík-Borgarnes 17.500 ( í IEX deildunum og 1.d.karla bætist við 1500 kr.gjald =
19.000 ) + göngin 2.000 = 21.000 kr.
Reykjavík-Stykkishólmur 39.300 ( í IEX deildunum og 1.d.karla bætist við 1500 kr.gjald =
40.800 ) + göngin 2.000 = 42.800 kr.
Reykjavík- Sauðárkrókur 69.700 ( í IEX deildunum og 1.d.karla bætist við 1500 kr.gjald
71.200) + göngin 2.000 = 73.200 kr.
Fæðiskostnaður:
Reykjavík - Reykjanes 2.500 kr.
Reykjavík - Hveragerði 2.500 kr.
Reykjavík - Borgarnes 2.500 kr.
Reykjavík - Stykkishólmur 4.850 kr.
Reykjavík - Sauðárkrókur 9.700 kr.
Handbolti
Meistaraflokkur karla og kvenna (úrvalsdeild og 1.deild karla):
Dómgæsla (per dómara): 15.140 kr.
Eftirlitsdómari: 10.280 kr.
Félag greiðir 13.940 kr. vegna dómgæslu, 9.080 kr. vegna eftirlitsdómara. HSÍ greiðir
1.200 kr. vegna eftirlits og dómara.
Meistarakeppni HSÍ: dómgæsla 15.140 kr. / eftirlit 10.280 kr.
Deildarbikarkeppni: dómgæsla 15.140 kr. / eftirlit 10.280 kr.
Bikarkeppni að 4-liða úrslitum: dómgæsla 15.140 kr. / eftirlit 10.280 kr.
Bikarkeppni frá og með 4-liða úrslitum: dómgæsla 24.120 kr. / eftirlit 14.770 kr.
Umspil: dómgæsla 24.120 kr. / eftirlit 14.770 kr.
Úrslitakeppni: dómgæsla 24.120 kr. / eftirlit 14.770 kr.
Utandeild: dómgæsla 8.540 kr.
2. og 3. flokkur karla og kvenna:
Íslandsmót og bikarkeppni: dómgæsla 10.890 kr.
4. flokkur karla og kvenna:
Íslandsmót og bikarkeppni: dómgæsla 9.830 kr.
Ferðakostnaður:
Höfuðborgarsvæði - Selfoss: 12.650 kr.
Höfuðborgarsvæði - Reykjanesbær: 8.210 kr.
Kostnaður á öðrum leiðum: 111 kr/km
Dagpeningar:
Gisting og fæði í einn sólarhring: 20.800 kr.
Gisting í einn sólarhring: 11.100 kr.
Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag: 9.700 kr.
Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag: 4.850 kr.
Fæði í hálfan dag, minnst 4 tíma ferðalag: 2.000 kr.
HANDBOLTI Mikil reiði kurrar í her-
búðum karlaliðs Selfoss í hand-
bolta eftir að aganefnd HSÍ vísaði
frá máli sem stjórn sambandsins
sendi vegna fólskulegs brots í leik
ÍBV og Selfoss á dögunum.
Á myndbandsupptöku frá leikn-
um sést þegar leikmaður ÍBV
slær mótherja sinn í andlitið eftir
að að Selfyssingurinn hafði losað
sig við boltann. Dómarapar leiks-
ins missti af atvikinu og var leik-
manninum ekki refsað.
Í úrskurði aganefndar segir
meðal annars að um leikbrot sé
að ræða en ekki agabrot. Erfitt
sé að gera sér grein fyrir því af
umræddu myndbandi hve alvar-
legt brotið hafi verið þótt það
virki mjög alvarlegt. Ljóst er þó
að leikmaðurinn sem varð fyrir
högginu lék það sem eftir var
leiksins eins og ekkert hefði í
skorist.
Umræddur leikmaður Selfoss,
Atli Kristinsson, sagði í samtali
við íþróttadeild í gær að hann
hefði orðið fyrir miklum von-
brigðum með vinnubrögð aga-
nefndar HSÍ í þessu máli.
Hann sæi sig því tilneyddan að
leggja fram líkamsárásarkæru
á hendur Davíð Þór Óskarssyni,
leikmanni ÍBV, sem veitti honum
umrætt högg í andlitið. - hsb
Kjaftshögg í 1. deildinni:
Kærir vegna
líkamsárásar
ÁTÖK Úr leik hjá Selfossi, en leikmaður
liðsins fékk þungt högg í andlitið gegn
ÍBV. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VANÞAKKLÁTT STARF Körfubolta- og handknattleiksdóm-
arar þurfa oft að leggja mikið á sig til þess að vinna hið
vanþakkláta starf dómarans. Sitt sýnist hverjum um laun
dómaranna, en þeir eru flestir undir miklu álagi enda
skortur á dómurum sem gefur til kynna að menn séu ekki
að fara í dómgæslu út af peningunum.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍEL