Fréttablaðið - 08.12.2011, Síða 94
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR78
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Á MORGUN KL. 21.20
ÍSLAND
KÍNA
Íslensku landsliði hefur enn á ný tekist það
ótrúlega. Nú keppa Stelpurnar okkar í fyrsta
skipti á HM og við fylgjumst með ævintýrinu
beint frá Brasilíu. Sjáðu leiki íslenska liðsins í
beinni á Stöð 2 Sport.
ALLIR LEIKIR Á BESTA TÍMA!
09. des. 21.20 Ísland – Kína
11. des. 16.20 16 liða úrslit (1 leikur í opinni dagskrá)*
12. des. 19.05 Forsetabikar (1 leikur í opinni dagskrá)*
14. des. 16.20 8 liða úrslit
16. des. 19.05 Undanúrslit
18. des. 19.05 Úrslitaleikurinn (í opinni dagskrá)
*Ef Ísland er að spila
Þorsteinn J. & gestir fyrir og eftir alla leiki
Íslands
Eftir minn feril verð
ég ekki með nein
réttindi. Ef mig langar til
dæmis að eignast barn þá fæ
ég ekkert fæðingarorlof.
RAGNA INGÓLFSDÓTTIR
AFREKSÍÞRÓTTAMAÐUR
AFREKSÍÞRÓTTIR Ragna Ingólfsdóttir
keppir nú að því að tryggja sér
þátttökurétt á Ólympíuleikunum
í Lundúnum á næsta ári. Til þess
þarf hún að keppa víða erlendis á
sterkum mótum en þegar hún er
hér heima æfir hún tvisvar á dag.
Ragna er 28 ára gömul og hefur í
raun verið atvinnumaður í sinni
íþrótt í tæpan áratug. En hún rétt
skrimtir, að eigin sögn.
„Ég fæ ekki neinn pening til
þess að lifa á,“ sagði Ragna þegar
Fréttablaðið ræddi við hana í gær.
„Allir styrkir sem ég fæ fara
aðeins í útlagðan kostnað og þá
helst fyrir keppnisferðalögum. Ég
verð að skila inn kvittunum til að
fá peninginn greiddan út.“
Sama upphæð 2002 og 2011
Ragna fær B-styrk úr afreks-
mannasjóði ÍSÍ, en hann er 80
þúsund krónur á mánuði. „Sú upp-
hæð er sú sama og ég var að fá
árið 2002. Það gefur augaleið að
ég gat notað þann pening betur
þá en í dag,“ segir Ragna, sem
fær þó aldrei peninginn til að lifa
sínu daglegu lífi. „Sá peningur er
aðeins fyrir útlögðum kostnaði
vegna keppnisferðalaga.“
Ragna hefur því verið dugleg að
koma sér á framfæri og leitað til
fyrirtækja til að sækja sér styrki.
„Svörin sem ég fæ þessa dagana
eru nánast öll þau sömu – það eru
allir að skera niður og geta lítið
styrkt mann.“
Það sem hún fær þó fyrst og
fremst frá fyrirtækjum er þjón-
usta og varningur – máltíðir,
næringarefni, íþróttavarningur,
líkamsræktarkort og svo fram-
vegis. „Ég fæ því engan pening til
að kaupa mér mat yfir daginn eða
bensín á bílinn. Ég á í raun ekki
neitt og skulda bara,“ sagði hún,
en Ragna tók sér námslán á meðan
hún var í háskólanámi, á sama tíma
og hún undirbjó sig fyrir Ólympíu-
leikana í Peking árið 2008.
Fengi ekki fæðingarorlof
„Eftir minn feril verð ég ekki
með nein réttindi. Ef mig langar
til dæmis að eignast barn fæ ég
ekkert fæðingarorlof,“ segir hún.
„Ég hef aldrei getað verið í vinnu
eins og allir aðrir í kringum mig.
Það eina sem ég hef gert til að
afla mér tekna er að taka að mér
kennslu í einkatíma eða þjálfa á
milli æfinga. Þess fyrir utan er ég
mjög oft í keppnisferðum.“
Ragna hefur líka reynt að selja
ýmsan varning til að verða sér úti
um pening, til að mynda í gegnum
Facebook. Hún skrifaði þar pist-
il fyrr í vikunni þar sem hún lýsti
gremju sinni yfir því hversu illa
henni gengi að láta enda ná saman.
„Fólk virðist ekki vilja kaupa vörur
af mér þegar þær eru aðeins ódýrari
annars staðar. Þá fékk ég nóg.“
Ragna segist ekki vita um neina
aðra á heimslistanum í einliðaleik
í badminton kvenna sem þurfi að
glíma við þessi vandamál í svo
miklum mæli.
Keppinautarnir á launum
„Þessar stelpur sem ég hef verið
að keppa við úti eru á launum
frá hinu opinbera sem eru á við
atvinnuleysisbætur. Þær búa í
Ólympíuþorpum þar sem þær
þurfa ekki að leggja út fyrir hús-
næði og mat. Þær fá þjálfun og
meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurum
sem fara líka með þeim í keppnis-
ferðalög. Þær þurfa ekki að bóka
flugferðir og hótelgistingu, sem ég
þarf að eyða miklum tíma í sjálf,“
segir Ragna.
Ég er mitt eigið fyrirtæki
„Það má því segja að ég sé að reka
mitt eigið fyrirtæki og það er í
ótrúlega mörg horn að líta svo að
þetta gangi allt upp. En þetta er
eitthvað sem ég ætti ekki að vera
að gera – ég ætti bara að hafa
áhyggjur af því að æfa og keppa.“
Hún segist, þrátt fyrir allt, ekki
sjá eftir þessum árum. „Það er
draumur flestra íþróttamanna að
keppa á Ólympíuleikum og ég er
mjög ánægð með að hafa fengið að
upplifa það. En ég veit ekki hvað
ég mun gera eftir næstu Ólympíu-
leika enda er staða mín ekki góð.
Þegar íþróttaferlinum lýkur á ég
ekkert – ekki íbúð, bíl eða neinar
eignir yfir höfuð. Það er ómetan-
legt að keppa á Ólympíuleikum en
ég get vel séð fyrir mér að efni-
legir íþróttakrakkar muni frek-
ar enda á vinnumarkaðnum en að
feta þessa slóð. Ísland er að drag-
ast langt aftur úr í þessum efnum
og þarf að bæta úr því ef ekki á illa
að fara.“ eirikur@frettabladid.is
Þegar íþróttaferlinum lýkur á ég ekkert
Ragna Ingólfsdóttir er í fremstu röð á heimsvísu í sinni íþrótt en á erfitt með að ná endum saman um hver mánaðamót. Opinberir
styrkir duga aðeins fyrir útlögðum kostnaði á ferðalögum og hún þarf sjálf að leita annarra leiða til að eiga fyrir lágmarks framfærslu.
ERFITT AÐ NÁ ENDUM SAMAN Ragna Ingólfsdóttir hugsar um að ná endum saman á hverjum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON