Fréttablaðið - 15.12.2011, Page 12
15. desember 2011 FIMMTUDAGUR12
SKÓLAMÁL Fjölskylduráð Akraness
segist styðja stjórnendur Brekku-
bæjarskóla í „að viðhalda góðum
starfsanda í skólanum og jákvæð-
um skólabrag“.
Starfsmannamál Brekkubæjar-
skóla voru til umfjöllunar á fundi
fjölskylduráðsins á sunnudag.
Krytur hafa verið milli skóla-
stjórans og nokkurra kennara,
þar af tveggja með samanlagt 67
ára starfsreynslu sem sagt hafa
upp störfum frá áramótum. Meðal
áheyrnarfulltrúa á fundinum var
Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri.
Fjölskylduráðið kveðst telja
að málin séu í góðum farvegi hjá
stjórnendum Brekkubæjarskóla.
Ráðið hvetji skólasamfélagið í
heild sinni til að vinna samkvæmt
því sem segir í reglugerð um
jákvæðan skólabrag og samskipti
sem og ábyrgð og skyldur aðila
skólasamfélagins í grunnskólum.
„Starfsfólki ber að stuðla að
jákvæðum skólabrag og starfs-
anda í öllu skólastarfi og góðri
umgengni. Einnig kemur fram að
starfsfólk grunnskóla, nemendur
og foreldrar skulu í sameiningu
leggja áherslu á að viðhalda góðum
starfsanda í skólanum og jákvæð-
um skólabrag,“ segir í bókun fjöl-
skylduráðsins.
Í síðustu viku sendi starfsfólk
Brekkubæjarskóla frá sér yfir-
lýsingu um að meirihluta þeirra
liði vel í skólanum og væri ánægt
í starfi. Á bæjarstjórnarfundi á
þriðjudag lýsti Gunnar Sigurðsson
bæjarfulltrúi hins vegar yfir mikl-
um vonbrigðum með vinnubrögð
starfsmannastjóra bæjarins í máli
fyrrnefndu kennaranna tveggja.
„Er hennar eina aðkoma fólgin í
aðstoð við ráðningu aðkeypts sér-
fræðings að beiðni skólastjórans.
Ég hafði væntingar til þess að unnt
væri að leysa vandamálin þannig
að allir aðilar gætu vel við unað,“
bókaði Gunnar. - gar
Fjölskylduráð Akraness styður stjórnendur Brekkubæjarskóla til að leysa vanda en bæjarfulltrúi enn ósáttur:
Fylgi reglum um starfsanda og góðan skólabrag
GENGIÐ Á FÓLKI Heittrúaðir hindúar
liggja á jörðinni meðan prestar ganga
yfir þá í gervi helgra anda á trúarhátíð
í þorpinu Baktarahalli í Andra Pradesh
á Indlandi. NORDICPHOTOS/AFP
AKUREYRI Slökkt verður á allri
götulýsingu í miðbæ Akureyrar
næsta föstudagskvöld.
Aðalsteinn Árnason, formað-
ur Miðbæjarsamtakanna, segir
í tilkynningu að markmiðið sé
að laða fram hlýlega stemningu
sem minni á gamla daga.
Miðbærinn verður einungis
lýstur upp með kertaljósum og
kyndlum og hestamenn verða
á ferðinni um göngugötuna á
gæðingum sínum.
Ljósin á jólatrénu á Ráðhús-
torgi munu þó loga en kaup-
menn hafa ákveðið að draga úr
lýsingu í verslunum sínum eins
og frekast er kostur og lýsa þá
frekar upp með kertaljósum og
jólaseríum.
Göngugatan verður lokuð
fyrir bílaumferð líkt og vaninn
er. - sv
Jólastemning í miðbænum:
Slökkt verður
á götulýsingu
BREKKUBÆJARSKÓLI Meirihluti starfs-
fólks segist ánægður og fjölskylduráð
Akraness styður stjórn Brekkubæjar-
skóla.
arionbanki.is — 444 7000
Gjafakort sem
hægt er að nota
hvar sem er
Finnur þú ekki réttu gjöfina?
Gjafakort Arion banka hentar við öll tækifæri.
Hægt er að nota gjafakortið við kaup á vöru
og þjónustu hvar sem er. Þú velur fjárhæðina,
þiggjandinn velur gjöfina. Einfaldara getur
það ekki verið.
Gjafakortið fæst í öllum útibúum Arion
banka og er án endurgjalds í desember.
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 3 janúar á frábæru tilboði.
Þú bókar fllugsæti og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Verð kr. 49.900
Netverð á mann, Flugsæti 3 – 17. janúar.
Verð kr. 69.900
Netverð á mann, m.v. 4 í íbúð með 2 svefnherbergjum í 14 nætur.
Verð kr. 89.900
Netverð á mann, m.v. 2 í studio/ íbúð í 14 nætur.
Frá kr. 49.900
Kanarí
3. janúar í 14 nætur
HARMLEIKUR Í LIÈGE Fjöldi manns lagði leið sína á morðstaðinn í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
BELGÍA Fjöldi fólks lagði leið sína á
torgið Place Saint-Lambert í belg-
ísku borginni Liege í gær, marg-
ir með blóm til að minnast þeirra
sem létust í árásinni á þriðjudag.
Rúmlega þrítugur maður myrti
þar að minnsta kosti þrjár mann-
eskjur og særði á annað hundrað
manns áður en hann svipti sjálfan
sig lífi. Áður en hann framdi þetta
voðaverk hafði hann myrt konu á
fimmtugsaldri skammt frá árásar-
staðnum í húsnæði, sem hann virð-
ist hafa notað til að rækta kanna-
bisplöntur.
„Þetta var ræstingakona,“ sagði
Daniele Reynders, saksóknari í
Liège. „Svona mætti hún honum í
gærmorgun. Hún deyr, skotin með
byssukúlu í höfuðið.“
Að sögn belgísku lögreglunnar
létust tveir unglingspiltar í árás-
inni, annar 15 ára og hinn 17 ára,
báðir nýkomnir úr prófi. Einnig
lést tæplega tveggja ára gamalt
barn af sárum sínum og 75 ára
gömul kona, sem áður var sögð
látin, var í gær sögð liggja milli
heims og helju á sjúkrahúsi. Henni
var samt ekki hugað líf. Nokkrir
aðrir eru á gjörgæslu, þar á meðal
tvítugur piltur sem tvísýnt er um.
Alls voru 123 særðir eftir árás-
ina og 40 í viðbót fengu áfallahjálp.
Amrani hélt í hádeginu á þriðju-
daginn vopnaður handsprengjum
og skotvopnum upp á þak á lág-
reistri byggingu þar sem hann
hafði góða yfirsýn yfir strætis-
vagnabiðstöð. Hann kastaði að
minnsta kosti þremur hand-
sprengjum áður en hann hóf skot-
hríð, en svipti sig síðan lífi. „Bana-
mein hans var skot í mitt ennið,“
sagði Reynders saksóknari.
„Hann skildi ekki eftir nein
skilaboð til að útskýra verknað-
inn.“ gudsteinn@frettabladid.is
Drap ræstinga-
konuna fyrst
Fjöldamorðinginn Amrani myrti ræstingakonu sína
áður en hann hélt vopnaður sprengjum og byssum
á torg í Liège. Átti glæpaferil að baki en hvorki sögu
um geðtruflanir né tengsl við hryðjuverkasamtök.
Nordine Amrani var 33 ára þegar hann skaut sjálfan sig á þriðjudag eftir
að hafa myrt að minnsta kosti fjórar manneskjur og sært á annað hundrað
manns.
Hann hélt að heiman um hádegisbil þennan dag með bakpoka fullan
af handsprengjum, skammbyssu og léttan riffil og kom sér fyrir á þaki
lágreistrar byggingar ofan við strætisvagnabiðstöð á einu fjölfarnasta torgi
borgarinnar. Síðan tók hann til við að varpa sprengjum á fólk og skjóta.
Amrani var lærður logsuðumaður, fæddur árið 1978 í Belgíu en af
marokkóskum uppruna. Hann komst snemma í kast við lögin, hafði meðal
annars hlotið dóm árið 2003. Hann er sagður hafa átt það til að beita
ofbeldi og hótunum.
Hann er sagður hafa verið mikill áhugamaður um skotvopn en átti ekki í
neinum samskiptum við hryðjuverkasamtök svo vitað sé. Hann átti heldur
ekki að baki neina sögu um geðtruflanir.
Hann var hins vegar dæmdur glæpamaður, hafði hlotið fimm ára
fangelsisdóm árið 2008 fyrir að rækta kannabis og vera með ólögleg vopn í
fórum sínum. Við húsleit heima hjá honum höfðu fundist 10 byssur ásamt
9.500 byssupörtum. Hann er sagður hafa smíðað hljóðdeyfa sjálfur.
Honum var sleppt úr fangelsi í haust en átti að mæta í yfirheyrslu hjá lög-
reglu, að því er virðist fyrir léttvægt brot, klukkutíma eftir að hann tók upp
sprengjur sínar og vopn um hádegisbil á þriðjudaginn. Belgískir fjölmiðlar
hafa það eftir lögmanni að hann hafi óttast að vera settur í gæsluvarðhald.
Annað er ekki vitað um hugsanlegt tilefni morðæðisins.
Komst snemma í kast við lögin