Fréttablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 68
15. desember 2011 FIMMTUDAGUR52
Kvöldskóli BHS vorönn 2012
Innritun í málmiðnadeild kvöldskóla BHS
verður eftirfarandi daga:
fimmtudag 15. desember kl. 17 - 19
föstudag 16. desember kl. 17 - 19
Eftirtaldir áfangar verða í boði fyrir málmiðngreinar. Tilvalið fyrir þá
sem eru að fara í sveinspróf í málmiðngreinum. Einnig eru kenndar
allar suðugreinar, s.s. MIG/MAG, TIG, logsuða og rafsuða, handa- og
plötuvinna, aflvélavirkjun og rennismíði, grunnteikning og raf-
magnsfræði.
EÐL-102 Eðlisfræði
ITM-114 Tölvuteikning
TTÖ-102 Tölvuteikning
RÖK-102 Rökrásir bóklegt
RAT-112 Rafeindatækni bóklegt
MRM-112 Mælingar í rafmagni
REN - allir áfangar Bókleg rennismíði
STÝ-102 Bókleg stýritækni
VFR-223 Fagbókleg vélfræði
AVV-323 Verkleg vélvirkjun
HSU-102/212 Verkleg suða
HSU 232 Verkleg þunnplötusuða, ál / stál / ryðfrítt
LSU-102/202 Verkleg suða
RSU-102/202 Verkleg suða
STÝ-202 Verkleg stýritækni
KÆL-102 Verkleg kælitækni + bókleg
REN-103/203 Rennismíði fyrir byrjendur
REN-344/443 Rennismíði, framhald
Verklegir áfangar
Bóklegir áfangar
Kennsla hefst föstudaginn 6. janúar Kennslu lýkur mánudaginn 30. apríl
Ath.: Áfangar geta fallið niður, náist ekki nægur fjöldi í hópa.
Sjá einnig á vef skólans: www.bhs.is
Skólameistari
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Heimsljós (Stóra sviðið)
Fim 22.12. Kl. 19:30 Fors.
Fös 23.12. Kl. 12:00 Fors.
Mán 26.12. Kl. 19:30 Frums.
Mið 28.12. Kl. 19:30 2. sýn.
Fim 29.12. Kl. 19:30 3. sýn.
Lau 7.1. Kl. 19:30 4. sýn.
Sun 8.1. Kl. 19:30 5. sýn.
Lau 14.1. Kl. 19:30 6. sýn.
Sun 15.1. Kl. 19:30 7. sýn.
Lau 21.1. Kl. 19:30 8. sýn.
Sun 22.1. Kl. 19:30 9. sýn.
Lau 28.1. Kl. 19:30 10. sýn.
Sun 29.1. Kl. 19:30 11. sýn.
Lau 4.2. Kl. 19:30 12. sýn.
Sun 5.2. Kl. 19:30 13. sýn.
Lau 11.2. Kl. 19:30 1. Aukas.
Sun 12.2. Kl. 19:30 2. Aukas.
Lau 18.2. Kl. 19:30 14. sýn.
Sun 19.2. Kl. 19:30 15. sýn.
Lau 25.2. Kl. 19:30 16. sýn.
Sun 26.2. Kl. 19:30 17. sýn.
Hreinsun (Stóra sviðið)
Fös 30.12. Kl. 19:30 15. sýn.
Fim 5.1. Kl. 19:30 16. sýn.
Fös 13.1. Kl. 19:30 17. sýn.
Fös 20.1. Kl. 19:30 18. sýn.
Fös 27.1. Kl. 19:30 19. sýn.
Mið 28.12. Kl. 13:30 Frums.
Fim 29.12. Kl. 13:30 2. sýn.
Fim 29.12. Kl. 15:00 3. sýn.
Fös 30.12. Kl. 13:30 4. sýn.
Fös 30.12. Kl. 15:00 5. sýn.
Sun 8.1. Kl. 13:30 6. sýn.
Sun 8.1. Kl. 15:00 7. sýn.
On Misunderstanding (Kassinn)
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Mið 28.12. Kl. 19:30 Frums. Fim 29.12. Kl. 19:30 2. sýn. Fös 30.12. Kl. 19:30 3. sýn.
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
U
U
Leitin að jólunum
Lau 17.12. Kl. 11:00
Lau 17.12. Kl. 13:00
Lau 17.12. Kl. 14:30
Sun 18.12. Kl. 11:00
Sun 18.12. Kl. 13:00
Sun 18.12. Kl. 14:30
Ö Ö
Ö Ö
Ö
Ö
U
Sun 8.1. Kl. 19:30 33. sýn.
Fim 12.1. Kl. 19:30 34. sýn.
Fös 20.1. Kl. 19:30 37. sýn.
Lau 21.1. Kl. 19:30 38. sýn.
Fös 27.1. Kl. 19:30 39. sýn.
Lau 28.1. Kl. 19:30 40. sýn.
Bækur ★★★★
Með sumt á hreinu -
Jakob Frímann Magnús-
son lítur um öxl
Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir
JPV Útgáfa
Unaðs- og eftirvæntingar-
hrollur fór um margan tón-
listarnördinn og áhuga-
manninn um íslenska
dægurmenningu, undir-
ritaðan meðtalinn, þegar
fréttist að hinn afbragðs-
færi rithöfundur Þór-
unn Erlu- Valdimarsdóttir væri í
miðjum klíðum að tappa af Jakobi
Frímanni Magnússyni. Að festa á
blað minningar frá mörgum lífum
í nokkrum löndum áður en fennti
um of yfir fortíðina, eins og þús-
undþjalasmiðurinn Jakob orðar
það sjálfur. Í raun hafði það verið
mál margra lengi vel að ef slíkum
lesendum væri akkur í að nokkur
leysti frá skjóðunni, á einlægan en
jafnframt spennandi hátt, væri það
téður Jakob Frímann, Kobbi Magg,
Jobbi Maggadon, Jack Magnet, Frí-
mann Flygenring …
Ástæðan er vitanlega sú að mað-
urinn er forvitnilegt eintak. Ham-
hleypa til flestra verka, hvort held-
ur í tónlist, þátttöku í stjórnmálum
eða hvers kyns reddingum, svo
fátt sé nefnt. Áberandi, umdeildur
og með feitari ferilskrá en flestir á
sama reki. Í stuttu máli: flest þau
nauðsynlegu hráefni sem prýða
ættu safa-
r íka ævi-
sögu og gera
bitastæð-
ari en geng-
ur og gerist
um tónlistar-
tengda for-
vera sína hér
á landi.
Segjast
verður að í
Með sumt á
hreinu tak-
ist Jakobi og
Þórunni ætl-
unarverk sitt
og vel það. Sögurnar óteljandi,
sumar kunnuglegar en aðrar ekki,
og lýsingar á staðháttum eru á
sínum stað. Allt frá uppvaxtar-
árum á Akureyri og í Hlíðunum,
Stuðmönnum og Menntaskólan-
um í Hamrahlíð (raunar virðist
Jakob afar stoltur og jafnvel upp-
tekinn af stöðu sinni sem MH-ing-
ur enn þann dag í dag) til London,
Los Angeles í hinum ýmsu erinda-
gjörðum, með viðkomu í kóngsins
København, Kína, Indlandi og fleiri
stöðum. Frásagnarmátinn er allur
Jakobs, sérstakur og stórskemmti-
legur, en þó undir styrkri stjórn
Þórunnar sem gætir þess að fáum
spurningum er ósvarað, þótt gjarn-
an sé vangaveltum laumað inn
snemma og á ólíklegum stöðum og
þær síðar útskýrðar með rökréttri
framvindu.
Undantekningin frá þessu, sem
því miður kemur í veg fyrir að Með
sumt á hreinu geti talist fullkom-
lega skotheld ævisaga, er sú hlið
sem viðkemur sjálfri tónlistinni.
Eins mikið og Jakob gengst upp í
hlutverki „reddarans“, sjálfvilj-
ugur eður ei, er í bókinni hlaupið
fullhratt yfir leyndardómana sem
hljóta að felast í sköpun margra
þeirra dægurperla sem lifað hafa
með þjóðinni, jafnvel áratugum
saman. Bók sem þessi ætti, að
mati undirritaðs, hreint og beint
að öskra á hlustendur að rífa upp
hverja plötuna á fætur annarri,
ýmist til að kortleggja ókönnuð
lönd eða endurnýja gömul kynni.
Nánari persónulýsingar á litskrúð-
ugu og afar misþekktu samstarfs-
fólki hefðu einnig verið vel þegnar.
Að því sögðu er frásögnin svo
persónuleg, átakanleg á köflum
(meðal annars af alkóhólisma
móður, sambandsslitum, óseðjandi
þorsta í vitneskju um eigin þoku-
kenndu ættfræði) og vel heppnuð að
vandasamt er að sogast ekki með
inn í hringekjuna, sem þrátt fyrir
allt er yfirleitt sveipuð jákvæðum
ljóma. Í bókinni segist Jakob aldrei
hafa skilið þörf fólks til að taka sér
frí, því hver er tilgangurinn með
að hvíla sig á því sem er gaman. Sá
andi er lýsandi og skilar sér ræki-
lega í þessari skemmtilegu ævi-
sögu. Kjartan Guðmundsson
Niðurstaða: Stórskemmtileg og
einlæg saga manns sem hefur frá
margfalt fleiru að segja en flestir hans
líkar.
Hver hóll, hver þúfa, hvert ból
Áratuga hefð er fyrir jóla-
söngvum Kórs Langholts-
kirkju en kórinn held-
ur ferna jólatónleika um
helgina. Jón Stefánsson kór-
stjóri segir hugmyndina
með tónleikunum hafa verið
að fá fólk til að losna við
jólastressið.
„Ég fékk þessa hugmynd árið 1978
að halda tónleika eftir að búðir
lokuðu síðasta föstudag fyrir jól.
Við byrjuðum í Kristskirkju, og
tónleikarnir heppnuðust afar vel.
Fólk kom með innkaupapokana og
kvaddi jólastressið undir tónleik-
unum okkar.
Síðan vorum
við eitt ár í
Bústaðakirkju
en frá árinu
1982 höfum við
verið í Lang-
holtskirkju.
Fyrstu jólin var
ekki einu sinni
komið gler í
gluggana og þá
kviknaði sú hugmynd að bjóða upp
á heitt súkkulaði og smákökur í
hléi,“ rifjar Jón Stefánsson, stjórn-
andi Kórs Langholtskirkju, upp.
„Í fyrstu voru ætíð einir tón-
leikar, en aðsóknin jókst á hverju
ári og segir Jón að þegar svo var
komið að yfir 900 manns voru
mættir til að hlýða á tónleikana
þá hafi þau gengist við því að það
þyrfti að bjóða upp á fleiri tón-
leika. „Í fyrstu héldum við þrenna
og nú eru þeir orðnir fernir, frá
föstudegi til sunnudags. Við syngj-
um í rúman klukkutíma en með
hléi eru þetta um tveggja klukku-
tíma tónleikar, fólk verður auð-
vitað að fá færi á að spjalla yfir
heita súkkulaðinu og piparkökun-
um í hléinu,“ segir Jón.
Tónleikarnir eru á föstudag
klukkan ellefu, laugardag klukk-
an átta og ellefu og á sunnudag
klukkan átta. Ásamt Kór Lang-
holtskirkju syngur Gradualekór
Langholtskirkju en gestakór verð-
ur Táknmálskórinn undir stjórn
Eyrúnar Ólafsdóttur en hann mun
flytja á táknmáli nokkur laganna
á tónleikunum með kórum kirkj-
unnar. Kórarnir flytja jólalög hvor
fyrir sig og einnig allir saman,
bæði hátíðleg og einnig með léttri
sveiflu. Áheyrendur taka virkan
þátt í almennum söng. Hljóðfæra-
leikararnir Hallfríður Ólafsdótt-
ir og Arna Kristín Einarsdóttir
leika á flautur, Monika Abendroth
á hörpu og Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir á orgel. Um létta djass-
sveiflu sjá Kjartan Valdemarsson
á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa
og Pétur Grétarsson á trommur.
Einsöngvarar eru Andri Björn
Róbertsson, Eivør Pálsdóttir, Guð-
rún Matthildur Sigurbergsdótt-
ir og Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
Einnig syngjafélagar úr Grad uale-
kór Langholtskirkju einsöng.
Sungu í gluggalausri kirkju
JÓN STEFÁNSSON
Eivör Pálsdóttir verður í hópi einsöngvara sem koma fram með Kór Lang-
holtskirkju á tónleikunum um helgina. Þar verður meðal annars frumflutt
nýtt jólalag eftir hana. „Ég hef einu sinni samið lag fyrir jólatónleika áður, en
mér finnst vanalega erfitt að semja jólalög. En svo gerðist það að ég missti
pabba minn fyrr á árinu, því miður. Og mér datt í hug að semja lag um
það hvernig manni líður eftir að hafa misst einhvern nákominn. Nú nálgast
fyrstu jólin án pabba og það verður skrítið að halda jólin án hans,“ segir
Eivör, sem tileinkar lagið horfnum ástvinum.
Eivör hefur áður sungið á jólatónleikum Langholtskirkju. „Mér finnst eins
og jólin séu komin þegar jólatónleikar Kórs Langholtskirkju fara fram,“ segir
Eivör. „Og mér tókst meira að segja að fá mömmu og systur mína hingað
um helgina, en í næstu viku förum við heim og höldum hefðbundin jól í
Færeyjum með stórfjölskyldunni.“ Jólalag Eivarar heitir Jólaminnir á færeysku
en Eyþór Árnason snaraði textanum yfir á íslensku.
TILEINKAÐ ÞEIM SEM HAFA MISST ÁSTVIN
MEÐ KÓR LANGHOLTSKIRKJU Eivør Pálsdóttir hefur áður komið fram á jólatón-
leikum Langholtskirkju, til dæmis árið 2005 þegar þessi mynd var tekin.