Fréttablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 90
15. desember 2011 FIMMTUDAGUR74
Systurnar Anna Kristrún
og Björg Gunnarsdætur
halda úti blogginu Over-
onecoffee.com en þar er
að finna fallega hönnun og
sniðugar lausnir í hversdeg-
inum. Bloggið er mjög vin-
sælt og fær um þrjú þúsund
flettingar daglega.
„Nafnið kom til vegna þess að
bloggið er eitthvað sem maður
dundar sér við að skoða yfir einum
kaffibolla,“ segir Anna Kristrún
Gunnarsdóttir verkefnastjóri sem
heldur úti blogginu Overonecof-
fee.com ásamt systur sinni Björgu
Gunnarsdóttur, margmiðlunar-
hönnuði.
Systurnar byrjuðu með bloggið í
haust en það er vinsælt og á einum
mánuði eru flettingar um 26 þús-
und. Bloggið er því farið að taka
meiri tíma en þær bjuggust við og
ýmsar hugmyndir komnar upp um
framhaldið. En af hverju byrjuðu
þær að blogga?
„Við vorum báðar komnar með
stútfullar möppur af myndum með
fallegri hönnun og lausnum af inter-
netinu sem við vissum ekki hvað við
ættum að gera við. Björk er marg-
miðlunarhönnuður og gerði þessa
síðu fyrir okkur en við deilum ein-
skærum áhuga á hönnun, föndri og
lausnum. Það má því segja að við
höfum stofnað bloggið til að halda
hugmyndum til haga og beina fólki
inn á falleg blogg sem við sjálf-
ar lesum,“ segir Anna en hún er í
fæðingarorlofi með sitt þriðja barn
og staðfestir að hún ráðist yfirleitt
í framkvæmdir á borð við bloggið
þegar hún er í orlofi.
Systurnar blogga á ensku til að
ná til fleiri lesenda en á blogginu
má meðal annars finna föndurupp-
skriftir, hönnun fyrir börn og tísku
en Björg er að klára sveinspróf í
kjólasaum og stefnir á áframhald-
andi nám í fatahönnun.
Systurnar ákváðu að hafa sam-
band við íslenska hönnuði í desemb-
er og hafa eins konar happdrætti
á blogginu á íslenskri hönnun og
handverki. „Fyrst ætluðum við að
hafa þetta svona aðventugjöf og
höfðum samband við nokkra hönn-
uði,“ segir Anna en eftirspurn-
in var mikil og aðventudagatalið
er orðið jóladagatal þar sem einn
heppinn lesandi fær gjöf á hverj-
um degi. „Þetta hefur lagst vel
í lesendur enda gaman að fá eitt-
hvað fallegt. Við erum með ýmsar
hugmyndir í kollinum varðandi það
að gera meira úr blogginu en það
verður bara að koma í ljós.“
alfrun@frettabladid.is
Blogga um hugmyndir og hönnun
HUGMYNDARÍKAR Systurnar Björg og
Anna Kristrún Gunnarsætur deila ein-
skærum áhuga sínum á hönnun með
lesendum bloggsins overonecoffee.com.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Hjartaknúsarinn Ryan Gosling
heldur áfram að heilla kvenþjóð-
ina og mætir þessa dagana reglu-
lega í ballettkennslu. Að sögn
einkakennara hans er leikarinn
ekki að undirbúa sig fyrir hlut-
verk, heldur dansar hann ballett
eingöngu ánægjunnar vegna.
Gosling er víst mjög hæfi-
leikaríkur dansari og hefur
orðið betri í uppáhaldsíþrótt
sinni, körfubolta, eftir að tím-
arnir hófust. Hann æfir ballett-
sporin iðulega í körfuboltabux-
um og fær fyrir vikið margar
augngotur.
Ballettinn er bara einn þátt-
ur í því að halda Gosling upp-
teknum, en hann hefur viður-
kennt að þurfa alltaf að hafa nóg
fyrir stafni til þess að geta haft
ánægju af lífinu.
Ballerína í
frístundum
LIPUR DANSARI Ballett er góð jafn-
vægis- og styrktarþjálfun. Það veit Ryan
Gosling. NORDICPHOTOS/GETTY Við erum með ýmsar
hugmyndir í kollinum
varðandi það að gera meira
úr blogginu en það verður
bara að koma í ljós.
ANNA KRISTRÚN GUNNARSDÓTTIR
VERKEFNASTJÓRI