Fréttablaðið - 15.12.2011, Blaðsíða 88
15. desember 2011 FIMMTUDAGUR72
Hljómsveitin Pollapönk fagnaði útgáfu nýjustu plötu sinn-
ar Aðeins meira Pollapönk með tónleikum í Salnum í Kópa-
vogi á dögunum.
Útgáfutónleikar Pollapönks heppnuðust mjög vel og var fjöldi barna jafnt
sem fullorðinna á meðal gesta. Aðeins meira Pollapönk inniheldur tólf
frumsamin lög sem eru ætluð öllum aldurshópum. Lögin Ættarmót og
Hananú hafa nú þegar náð vinsældum.
KRAKKARNIR
SÁU POLLAPÖNK FJÖLSKYLDUSTEMNING Sigríður Eir Guðnadóttir, kona Pollapönkarans Haraldar Freys Gíslasonar, ásamt svilkonu sinni Láru Rúnarsdóttir, sem er gift Pollapönkaranum Arnari Þór Gíslasyni, bróður Haraldar Freys. Hérna eru þær með dætrum sínum Huld
Haraldsdóttur, Hrönn Haraldsdóttur og Emblu Guðríði Arnarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GAMAN Sigríður Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Þórðardóttir, Ingibjörg Kristmundsdóttir,
Ragnheiður Kristín Þórðardóttir og Sigrún Þorsteinsdóttir skemmtu sér vel á tón-
leikunum.
STUÐ Miriam Daníelsdóttir, Elínóra Krist-
jánsdóttir og Hjörvar Óli Kristjánsson.
Í STUÐI Stefanía Dís Oddgeirsdóttir,
Katla Björt Oddgeirsdóttir, Arnar Ari
Hauksson, Viktor Orri Oddgeirsson og
Guðmundur Róbert Oddgeirsson voru í
stuði á tónleikunum.
TVEIR TÖFFARAR Egill Jónsson og Ari
Freyr Kristinsson sáu Pollapönk.
HIN FJÖGUR FRÆKNU Ása Jenný
Ágústdóttir, Ásta Katrín Ágústsdóttir,
Álfrún Tinna Guðnadóttir og Albert
Arnarson ætluðu sko ekki að missa af
tónleikunum.
POLLAPÖNKARI Haraldur Freyr Gíslason
söng lög af nýju plötunni.
Breska söngkonan Cheryl Cole
er greinilega búin að jafna sig
á sambandsslitunum við knatt-
spyrnukappann Ashley Cole, en
blaðið The Sun hermir að hún sé
byrjuð með upptökustjóranum
Patrizio Pigliapoco. Hann er 21
árs gamall og því sjö árum yngri
en Cole.
Parið kynntist þegar Piglia-
poco stjórnaði upptökum Cole
vestanhafs og segir The Sun þau
vera ástfangin upp fyrir haus.
Cole hefur enn ekki staðfest
sögusagnirnar.
Kærastinn sjö
árum yngri
en Cheryl
BROSIR BREITT Cheryl Cole er byrjuð
með upptökustjóranum Patrizio Piglia-
poco samkvæmt The Sun.
NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlist ★★★★
Land míns föður
Einar Scheving
Sannkallaður gæðagripur
Land míns föður er önnur sólóplata trommu-
leikarans Einars Scheving. Sú fyrri, Cycles,
var instrúmental djassplata með frumsömdu
efni. Flott plata sem fékk m.a. Íslensku tón-
listarverðlaunin. Land míns föður er ólík, þó
að djassinn sé áfram grunnurinn. Á henni
eru bæði þekkt íslensk þjóðlög og lög eftir
Einar, flest við ljóð þekktra íslenskra skálda.
Platan er tileinkuð föður Einars, Árna
Scheving, sem lést árið 2007, en hann var
mikils metinn tónlistarmaður. Um leið er
platan óður til lands og þjóðar. Á henni
koma fram, auk Einars, hljóðfæraleikar-
arnir Skúli Sverrisson, Óskar Guðjónsson, Eyþór Gunn-
arsson, Davíð Þór Jónsson og Guðmundur Pétursson og söngvararnir Egill
Ólafsson, KK, Ragnheiður Gröndal, Raggi Bjarna, Sigurður Guðmundsson og
Sigríður Thorlacius. Einvala lið.
Þetta er sannkölluð gæðaplata. Tónlistin er mjög vönduð, bæði útsetningar
og flutningur, og það sama má segja um umslagið og plötubæklinginn.
Platan rennur vel í gegn, á hægu tempói. Á henni eru mörg flott lög, eigin-
lega hvergi veikur punktur. Mitt uppáhaldslag er samt Stríðið, sem Einar
samdi við ljóð Halldórs Laxness og Egill Ólafsson syngur af mikilli tilfinningu.
Á heildina litið flott þjóðleg djassplata. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Einar Scheving fer á kostum ásamt einvala liði tónlistarfólks.
Rúm ellefu þúsund manns hafa séð
myndband Geirs Ólafssonar við
lagið Við hoppum af nýrri barna-
plötu hans, Amma er best.
Aðspurður segir Geir viðbrögð-
in meiri en hann bjóst við. „Yfir-
leitt gerir maður myndbönd svona
til gamans. En það er bæði gaman
að fólk hefur skoðanir á mynd-
bandinu og líka laginu. Það er
kominn 51 sem líkar þetta og 17
sem mislíkar, þannig að það er
töluverður munur. Það er gaman
líka að sjá „statusana“ á Youtube
því það er að fá áhorf annars stað-
ar í heiminum líka,“ segir Geir og
á við Bandaríkin. „Það er dálítið
skemmtilegt en við erum fyrst og
fremst að hugsa um íslenska mark-
aðinn og það sem við erum að gera
hér.“
Öll lögin á Amma er best eru
eftir Guðmund Rúnar Lúðvíksson.
Leikstjóri myndbandins var Frið-
rik Grétarsson og var það María
Rut, ellefu ára dóttir hans, sem
myndskreytti það. - fb
Geir vinsæll á netinu
SÁTTUR Geir Ólafsson er ánægður með
viðtökurnar við nýja myndbandinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI