Fréttablaðið - 15.12.2011, Page 42
42 15. desember 2011 FIMMTUDAGUR
F
íto
n
/S
ÍA
Njóttu jólanna í faðmi fjölskyldunnar
Við viljum öll njóta þess besta saman um jólin, hvort sem það er heitt súkkulaði og smákökur eða stórkostleg jóladagskrá Stöðvar 2.
Styttum biðina fyrir þau yngstu með vönduðu talsettu barnaefni, upplifum hátíðlega tónleika og hjúfrum okkur saman undir teppi
og njótum þeirra fjölmörgu bíómynda sem eru á dagskrá Stöðvar 2 og Stöðvar 2 Bíó um jólin.
Skoðaðu stod2.is og kynntu þér frábæru jóladagskrána okkar til hlítar!
Gefðu áskriftarkort að Stöð 2 í jólagjöf.
Það fæst hjá okkur í Skaftahlíðinni!
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
JÓLA BÍÓ
Stöð 2 Bíó sýnir yfir 200
úrvalskvikmyndir í hverjum
mánuði og stöðin fylgir frítt
með áskrift að Stöð 2.
Ég var á leiðinni út í búð í gær. Veðrið var fallegt, snjór
yfir öllu og 8 stiga frost. Ég var
vel búin, klædd í kuldagalla og
gönguskó og naut þess að vera úti.
Þá stoppaði bíll við hliðina á mér
og bílstjórinn ávarpaði mig: „Hei,
talar þú íslensku?“ Og svo spurði
hann mig til vegar. Þegar ég var
búin að leiðbeina honum varð ég
hugsi. Af hverju hélt hann að ég
talaði ekki landsmálið?
Svo runnu upp fyrir mér fleiri
svona atvik. Ég lendi stundum í
því að afgreiðslufólkið í einhverj-
um búðum byrjar að tala við mig
á ensku og spyr: „Can I help you?“
Þá kem ég kannski inn í búðina
úr vondu veðri, klædd í blautan
regngalla af því að ég er hjólandi.
Svona manneskja hlýtur að vera
útendingur!
Það er þá ekki „íslenskt“ að fara
sinna ferðir gangandi eða hjólandi
í öllum veðrum og vera klæddur
í samræmi við veðrið. Já, er það
ekki bara þannig? Síðustu dagana
í köldu veðri hef ég til dæmis ekki
hitt eitt einasta barn sem fór gang-
andi á leið minni í skólann. En bíla-
lestin í kringum skólann á morgn-
ana líkist því sem gerist í erlendri
stórborg.
Er það þá „íslenskt“ að skutla
börnunum sínum alltaf í staðinn
fyrir að láta þau ganga eða nota
almenningssamgöngur? Út úr húsi
– inn í bíl, sem er að sjálfsögðu vel
upphitaður – og inn í hús aftur.
Þannig er það hjá mörgum. Fólk
á sem sagt sínar úlpur og kulda-
galla í bílskúrnum og „skjólfötin“
eru úr blikki.
Og börnin sem hoppa út úr bíl
fyrir framan skólann eru oft illa
klædd og ekki tilbúin til útiveru,
vælandi úr kulda í frímínútun-
um. Getur það ekki verið að þessi
börn næli sér fyrst allra í alls
konar kvefpestir af því að líkam-
inn hefur ekki þróað nógu góða
mótstöðu gegn veikindum?
Er það þá „íslenskt“ að vera
klæddur eftir nýjasta tískublaði
en ekki eftir veðri? Vera jafnvel
sokkalaus með bera leggi í frosti
og snjó? Taka áhættuna á því að fá
blöðrubólgu bara til þess að vera
smart? Láta bílinn hita sig upp í
lausagangi til þess að þurfa ekki
að klæða sig í einhverja ljóta úlpu?
Og fara helst alveg inn í búð á bíl
til þess að þurfa ekki að stíga skref
út í snjóinn á fínu háhæla skónum
sínum?
Hvernig væri nú að jólafötin í
ár yrðu góð skjólföt í staðinn fyrir
enn einn prinsessukjóllinn? Senni-
lega hanga nógu mörg slík föt í
fataskápnum eins og er.
Dýrafjarðargöng eru mikil-vægasta samgöngubót á
Vestfjörðum til að tengja saman
þéttbýlisstaði og byggðir Ísa-
fjarðarsýslu og Barðastrandar-
sýslu. Dýrafjarðargöng munu
leysa af veginn um Hrafns-
eyrarheiði, einn hæsta og erf-
iðasta fjallveg á landinu, og
stytta leiðina á milli Ísafjarðar
og Patreksfjarðar um 27 kíló-
metra. Hrafnseyrarheiði er sú
heiði sem yfirleitt verður fyrst
ófær, af öllum heiðum Vest-
fjarða, og sú heiði sem síðast er
opnuð á vorin. Hrafnseyrarheiði
er versta hindrun í frekari sam-
vinnu og samtengingu byggða á
Vestfjörðum. Vestfirðingar vilja
Dýrafjarðargöng.
Við endurskoðun vegaáætlunar
eftir hrunið, árið 2010, var ákveð-
ið að á árinu 2012 yrði veitt fjár-
munum bæði í Dýrafjarðargöng
og Norðfjarðargöng, með fyrir-
heiti um áframhald á fjárveit-
ingum næstu ár. Samgöngunefnd
Alþingis sagði þá í nefndaráliti
sínu: „Fyrir nefndinni kom fram
það sjónarmið að samtenging
byggða á Vestfjörðum væri að
mörgu leyti sérstök og að taka
yrði tillit til þess við gerð sam-
gönguáætlunar. Nefndin telur
að gerð jarðganga á milli Dýra-
fjarðar og Arnarfjarðar efli
samgöngur á milli byggða er nú
tengjast saman með malarvegum
og verða fyrir verulegum sam-
göngutruflunum yfir vetrartím-
ann.“ Þingsályktun um samgön-
guáætlun áranna 2009-2012 var
samþykkt á Alþingi 15. júní 2010.
Röksemdir nefndarinnar eru enn
í fullu gildi.
Rifja má upp að í eldri sam-
gönguáætlun var gert ráð fyrir
að Dýrafjarðargöng yrðu byggð
á árunum 2011-2014. Eftir
harkalegan niðurskurð í þorski
árið 2007 (og í samræmi við
bjartsýnisæði þess tíma) var
boðað að flýta ætti framkvæmd-
inni þannig að göngin gætu orðið
tilbúin árið 2012. En þeir tímar
eru liðnir og koma ekki aftur.
Árið 2009 vann Náttúrustofa
Vestfjarða frummatsskýrslu fyrir
Vegagerðina vegna jarðganga
milli Arnarfjarðar og Dýrafjarð-
ar. Niðurstaða skýrslunnar er sú
að umhverfisáhrif af völdum jarð-
ganga milli Arnarfjarðar og Dýra-
fjarðar séu að mestu óveruleg.
Hins vegar séu áhrif á samgöng-
ur og samfélög verulega jákvæð.
Það má því segja að allt sé tilbúið
til að setja göngin í útboð.
Nú berast þær fréttir að leggja
skuli fyrir Alþingi nýja sam-
gönguáætlun, langtímaáætlun
áranna 2011-2022 þar sem ekki
er fyrirhugað að grafa nein göng
næstu fjögur árin og að Dýra-
fjarðargöng verði aftur sett
aftast í langtímaáætlun. Fram-
kvæmdin frestist því til ársins
2022, eða jafnvel lengur. Þetta
er algerlega ófært fyrir okkur
Vestfirðinga.
Enn ein frestunin á fram-
kvæmdum við Dýrafjarðargöng
er hættuleg fyrir framtíð byggð-
ar á Vestfjörðum og hindrar
frekari þróun í atvinnuháttum
og byggðaþróun. Þróun sem Vest-
firðingar gera sér vonir um að
geti hafist nú, með nýrri sjávar-
útvegsstefnu og uppbyggingu í
fiskeldi og fleiri greinum. Seink-
un Dýrafjarðarganga mun draga
enn úr nýrri sókn byggðanna.
Það eru ekki þau skilaboð sem
Vestfirðingar þurfa, eftir hrak-
farir síðustu áratuga undir ofríki
rangláts kvótakerfis, einkavina-
væðingar og öfgafrjálshyggju.
Nú verða Vestfirðingar að standa
saman um kröfuna um Dýra-
fjarðargöng á næstu fimm árum.
Allir sem einn.
Það eru ekki þau skilaboð sem Vest-
firðingar þurfa, eftir hrakfarir síðustu
áratuga undir ofríki rangláts kvótakerfis,
einkavinavæðingar og öfgafrjálshyggju.
Er það þá „ís-
lenskt“ að vera
klæddur eftir nýjasta
tískublaði en ekki eftir
veðri? Vera jafnvel sokka-
laus með bera leggi í
frosti og snjó?
Dýrafjarðargöng eru
lífsnauðsyn fyrir samfélagið
Úlpan í bílskúrnum
Samgöngumál
Sigurður Pétursson
bæjarfulltrúi í
Ísafjarðarbæ
Samfélagsmál
Úrsúla Junemann
kennari og
leiðsögumaður