Fréttablaðið - 16.12.2011, Qupperneq 4
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR4
SAMFÉLAGSMÁL Meirihluti velferðarnefndar
Alþingis hefur lagt til að þingsályktunartillaga
um að heimila skuli staðgöngumæðrun verði
samþykkt. Tveimur minnihlutaálitum var skilað
þar sem lagst var gegn því að tillagan yrði sam-
þykkt nú.
Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir að vel-
ferðarráðherra skipi starfshóp til að undirbúa
frumvarp til laga sem heimili staðgöngumæðrun
í velgjörðarskyni. Flutningsmenn tillögunnar eru
23 þingmenn úr öllum flokkum nema Hreyfing-
unni.
Meirihluti velferðarnefndar telur að tillagan sé
vel unnin og leggur áherslu á að breytingar sem
gerðar hafi verið milli þinga séu mjög til bóta.
Tillagan var einnig lögð fram á síðasta þingi, en
nú hefur meðal annars verið lögð meiri áhersla á
hag og réttindi barnsins og staðgöngumóður.
Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, skilaði minnihlutaáliti sem Birg-
itta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, var
samþykk. Birgitta er áheyrnarfulltrúi í nefnd-
inni. Þær segjast ekki geta stutt tillöguna að svo
komnu máli. Meirihluti umsagnaraðila hafi verið
á móti tillögunni í fyrra og hið sama sé uppi á
teningnum nú. Erfið siðferðileg álitamál eigi eftir
að gaumgæfa og ræða. Eygló Harðardóttir, þing-
maður Framsóknarflokks, skilaði öðru minni-
hlutaáliti þar sem hún bendir á svipaða hluti og
leggur áherslu á að málið verði unnið frekar áður
en ákvörðun um smíði frumvarps verður tekin.
- þeb
STAÐGÖNGUMÆÐRUN 23 þingmenn hafa lagt fram
tillögu um að staðgöngumæðrun verði heimiluð.
Tveimur minnihlutaálitum var skilað og meirihluti
umsagnaraðila setur spurningarmerki við tillöguna.
NORDICPHOTOS/GETTY
Meirihluti velferðarnefndar leggur til að skipaður verði starfshópur sem smíði frumvarp um málið:
Meirihlutinn vill leyfa staðgöngumæðrun
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
5°
4°
3°
6°
5°
4°
4°
22°
5°
17°
10°
23°
1°
11°
15°
4°Á MORGUN
Fremur hægur
vindur.
SUNNUDAGUR
Vaxandi S-átt
SV-til.
-4
-5
-4
-3
-3
-1
-3
0
-4
-3
-8
2
4 5
8
7
12
11
4
3
5
7
-2
-5
-6
-7
-6
-1
1
-6
-9
-5
HELGIN Strekk-
ingur austast í dag
en fremur hægur
vindur um allt
land á morgun.
Stöku él á morgun
en fínt veður fyrir
jólaundirbúning.
Vaxandi S-átt SV-til
á sunnudag með
úrkomu síðdegis
og á sunnudags-
kvöld. Nokkuð bjart
og hægur vindur
A-til.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður
Klassískar kiljur í hundraðatali
Tilvalin jólagjöf!
Collins Classics ritröðin: 499 kr.
Mikið úrval bóka á góðu verði.
Jólatilboð á tugum nýrra íslenskra bóka.
Kynntu þér úrvalið á boksala.is
Háskóli Íslands Háskólatorgi S. 570 0777 boksala@boksala.is
GENGIÐ 15.12.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
217,0188
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,20 122,78
189,24 190,16
158,68 159,56
21,348 21,472
20,391 20,511
17,451 17,553
1,5675 1,5767
187,67 188,79
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
FERÐAFÓLK Erlendum ferðamönnum
sem fara um Leifsstöð fjölgaði um
fimmtung fyrri helming ársins í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HAGTÖLUR Heildarumsvif fyrir-
tækja í ferðaþjónustu árið 2009
námu ríflega 230 milljörðum
króna, samkvæmt nýjum tölum
Hagstofunnar.
Í Hagtíðindum er sagt að gera
megi ráð fyrir að útgjöld erlendra
ferðamanna hafi verið liðlega 117
milljarðar króna á árinu 2010 eða
rúmlega fimm prósentum hærri en
árið áður. Fram til júní í ár hafði
erlendum ferðamönnum sem fara
frá Leifsstöð fjölgað um tæpt 21
prósent. „Á sama tíma má gera ráð
fyrir að útgjöld erlendra ferða-
manna hér innanlands hafi aukist
um tæp 16 prósent,“ segir á vef
Hagstofunnar. - óká
Ferðamannatekjur aukast:
Aukning um 16
prósent milli ára
NEYTENDUR Neytendasamtökin eru
fylgjandi því að settar verði reglur
sem skylda skyndibitastaði til að
merkja hitaeiningar á matseðla.
Samtökin hafa sent umsögn við
þingsályktunartillögu þess efnis,
að því er fram kemur á vef þeirra.
Neytendasamtökin telja að
stjórnvöldum sé skylt að bregð-
ast við þróun er varðar sívaxandi
offitu Íslendinga. Því verði að telj-
ast grundvallaratriði að neytendur
séu upplýstir um næringargildi og
fjölda hitaeininga í þeim mat sem
þeir kaupa. - sv
Merkingar á skyndibitastaði:
Vilja reglur um
hitaeiningar
DANMÖRK Málsmeðferð í dóms-
máli Amager-mannsins svokall-
aða, sem ákærður er fyrir fjölda
nauðgana og morða í nágrenni
Amager í Kaupmannahöfn á
rúmum 20 árum, lauk í gær.
Dómur verður kveðinn upp á
mánudag og refsing á fimmtu-
dag.
Hinn ákærði þvertekur fyrir
að hafa framið glæpina sem
hann er sakaður um, þar af eru
tvö morð, þrátt fyrir að lífsýni
úr honum hafi fundist í þremur
tilfellum.
„Ég veit að ég er 100% sak-
laus. Það er maður einhvers
staðar þarna úti sem með sama
DNA og ég. Hann er sjúkur
og hatar konur, en það geri ég
ekki.“ - þj
Amager-maður bíður dóms:
Segist hafa
sama DNA og
morðinginn
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest dóm Héraðsdóms Norður-
lands eystra þess efnis að rúm-
lega tvítug kona skuli sæta
þriggja mánaða fangelsi og
greiða rúmlega 200 þúsund krón-
ur í skaðabætur fyrir að kýla
aðra konu í andlitið. Hin síðar-
nefnda hlaut glóðarauga og blóð-
nasir.
Atvikið varð á dansgólfi
skemmti staðar á Akureyri.
Vegna áverka varð sú sem ráðist
var á að vera frá vinnu dögum
saman, því ekki þótti boðlegt að
láta hana mæta til vinnu sem
snyrtifræðingur, með bólgið og
blátt auga, vegna eðlis starfsins.
Árásarkonan hafði áður verið
dæmd fyrir ofbeldisbrot og rauf
nú skilorð. - jss
Fékk þriggja mánaða fangelsi:
Gat ekki unnið
með glóðarauga
ALÞINGI Unnið er að því að afla stuðn-
ings við tillögu Sjálfstæðismanna
um að ákæra Alþingis á hendur Geir
H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra, verði dregin til baka. Vonast
er til að hægt verði að leggja tillög-
una fram í dag.
Heimildarmenn Fréttablaðsins
innan Sjálfstæðisflokksins telja sig
hafa aflað nægilegs stuðnings við
tillöguna. Mikil áhersla er lögð á
að fá meðflutningsmenn úr öðrum
flokkum, en það mundi gera tillög-
una sterkari.
Þingflokkur Samfylkingarinn-
ar fundaði um málið klukkan 13 í
gær og til stóð að funda aftur í gær-
kvöldi. Af því varð þó ekki. Oddný
G. Harðardóttir, formaður þing-
flokksins, sagði í samtali við Vísi
að enginn þingmaður flokksins yrði
meðflutningsmaður að slíkri tillögu.
Það fer ekki saman við orð Sig-
mundar Ernis Rúnarssonar sem
útilokaði ekki, í samtali við Frétta-
blaðið í gærkvöldi, að hann yrði
meðflutningsmaður. „Ég þarf að
skoða það hvort ég verð meðflutn-
ingsmaður, ég áskil mér allan rétt
til þess,“ sagði Sigmundur, en hann
var á leið til landsins.
Þingflokkur Vinstri grænna
fundaði um málið í gærkvöldi. Þar
var samþykkt að málið yrði ekki
lagt fram í nafni þingflokksins.
Einstaka þingmenn yrðu þó að ráða
hvað þeir gerðu. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins kynnti Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir málið í
þingflokknum og styður hún til-
löguna. Ekki náðist í Guðfríði þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir í gær.
Líklega kemur þingsályktunartil-
Leita stuðnings við
afturköllun ákæru
Sjálfstæðisflokkurinn leitar stuðnings þingmanna annarra flokka um stuðning
við að draga ákæru á hendur Geir H. Haarde til baka. Telja sig hafa stuðning í
öllum þingflokkum nema Hreyfingunni. Stjórnarþingmaður styður tillöguna.
ÁKÆRÐUR Líkur eru á því að þingsálykturnartillaga verði lögð fram í dag um að
afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hyggst greiða
atkvæði með tillögunni, komi hún fram. Til greina komi að vera meðflutnings-
maður. „Ég fylgi áfram minni sannfæringu í málinu. Ég greiddi atkvæði gegn
því að þessi fjórmenningar yrðu leiddir fyrir dóm og þar á meðal Geir. Mér
finnst það ekki Íslendingum sæmandi að afgreiða hrunið með því að ákæra
einn mann.“
Alls greiddu níu núverandi þingmenn Samfylkingarinnar gegn því að Geir
yrði ákærður. Þeir eru: Árni Páll Árnason, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
Guðbjartur Hannesson, Jóhanna Sigurðardóttir, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L.
Möller, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Össur Skarphéðinsson.
Styður tillögu – níu kusu gegn ákæru
laga um málið fram í dag. Heimild-
ir Fréttablaðsins herma að afbrigða
verði leitað til að koma málinu á
dagskrá, en tvær nætur verða að
líða frá útbýtingu til afgreiðslu.
Sjálfstæðismenn telja að tillagan
sé þess eðlis að rétt sé að taka hana
strax á dagskrá. Störf saksóknara
Alþingis komist í uppnám verði til-
lagan hangandi yfir honum. Því sé
best að kjósa strax um hana.
Óvíst er hvort stuðningur er við
tillöguna inni á þingi.
kolbeinn@frettabladid.is