Fréttablaðið - 16.12.2011, Page 22
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR22
LJÓSMYNDASYRPA: Aðventutónleikar Domus Vox í Hallgrímskirkju
Himnesk
stemming hjá
Domus Vox
Húsfyllir var á hinum árlegu aðventutónleikum Domus
Vox í Hallgrímskirkju í fyrrakvöld þar sem 230 konur og
stúlkur í Stúlknakór Reykjavíkur, Vox feminae og Canta-
bile sungu hefðbundna kirkjutónlist undir stjórn Mar-
grétar J. Pálmadóttur. Haraldur Guðjónsson fékk að fylgj-
ast með undirbúningi stúlknakórsins og æfingum fyrir
stóru stundina.
GENGIÐ INN KIRKJUGÓLFIÐ Stúlkurnar ganga inn að sviðinu. Gestirnir horfa á, fullir eftirvæntingar. Nú er komið að stóru stund-
inni eftir þrotlausar æfingar og undirbúning. Strax er hafinn undirbúningur að næsta stórverkefni sem er flutningur á tónlistinni úr
Hringadróttinssögu, með Sinfóníuhljómsveitinni í febrúar.
STÓRA STUNDIN NÁLGAST Stúlkurnar voru greinilega spenntar
fyrir tónleikana en það var samt stutt í brosið.
LOKAÆFINGIN Kórinn hitaði upp raddböndin við undirleik Guðrúnar Árnýjar Guð-
mundsdóttur, sem er stjórnandi yngri deilda Stúlknakórs Reykjavíkur.
Í VEIÐIMANN Fátt er betra en að taka í spil til að slappa af
áður en alvaran tekur við.
Í SÍNU FÍNASTA PÚSSI Stúlkurnar komu afar vel fyrir og voru með allt á hreinu bak-
sviðs þegar undirbúningurinn var á lokastigi.
ALLIR HJÁLPAST AÐ Stúlkurnar hjálpuðust að við undirbúning-
inn. Hér er verið að leggja lokahönd á hárgreiðsluna.
Á SVIÐINU Stúlknakórinn stóð sig með mikilli prýði sem og allir sem komu fram á tónleikunum, enda voru tónleikagestir í sjöunda himni með frammistöðu listakvennanna. Stúlknakórinn var stofnaður árið 1994, en í
honum eru nú um 130 stúlkur á aldrinum fimm ára til 21 árs. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG