Fréttablaðið - 16.12.2011, Page 44
8 föstudagur 16. desember
H
elga er fædd og upp-
alin á Akureyri og
fékk snemma mik-
inn áhuga á hann-
yrðum og hönn-
un. „Móðir mín og báðar ömmur
voru allar miklar hannyrðakon-
ur og það ýtti undir hönnunar-
áhuga minn að vera svona mikið
í kringum þær,“ útskýrir Helga.
Hún hóf nám í félagsfræði við
Háskóla Íslands eftir stúdents-
próf en uppgötvaði fljótlega að
námið hentaði henni ekki og
söðlaði um. Hún flutti til Dan-
merkur og stundaði fatahönn-
unarnám við Hellerup Textil Col-
lege og lærði þar margt nytsam-
legt. „Við lærðum saumaskap og
allt sem viðkom framleiðsluferl-
inu en persónulega fannst mér
vanta svolítið upp á hönnunar-
hlutann sjálfan í náminu. Ég fór
þess vegna í skiptinám til London
til að bæta því við mig.“
Að náminu loknu fékk Helga
vinnu sem aðstoðarhönnuður hjá
tískumerkinu All Saints og vann
þar í rúmt ár. Hún segir tísku-
bransann mjög erfiðan og að
vinnudagarnir hjá All Saints hafi
verið langir og strangir en um leið
lærdómsríkir. „Ég vann hjá einni
ónefndri konu sem var hreinlega
með pískinn á okkur allan daginn.
Við máttum alls ekki mæta seint
til vinnu og hún var mjög ströng
og leiðinleg við undirmenn sína
en ég held að ég hafi aldrei lært
jafn mikið af nokkurri manneskju
og henni. Hún gaf okkur mikla
ábyrgð og ætlaðist til þess að við
stæðum undir henni og skiluð-
um verkefnum af okkur á réttum
tíma. Þó að þetta hafi verið erfitt
var þetta líka alveg ómetanleg
reynsla.“
SKAPAÐI FYRSTU
FATALÍNU ILSE JACOBSEN
Helga segist hafa viljað næla sér
í starfsreynslu hjá ólíkum hönn-
unarfyrirtækjum að hönnunar-
náminu loknu og verða sér þannig
úti um alla þá vitneskju sem hún
þurfti til að reka eigið fyrirtæki.
Eftir ár hjá All Saints flutti hún
til Íslands ásamt manni sínum og
dóttur og hóf þá störf hjá íslenska
tískumerkinu Nikita. Nokkru síðar
flutti fjölskyldan aftur búferlum, í
þetta sinn til Bandaríkjanna.
„Þá hafði ég eignast mitt annað
barn, lítinn strák. Mér fannst lítið
um falleg föt á stráka og fór því
að grúska og skoða á meðan ég
var í fæðingarorlofinu og þar með
kviknaði eiginlega hugmyndin að
Ígló. Það liðu þó einhver ár á milli
þess og þar til ég stofnaði fyrir-
tækið árið 2008.“
Eftir dvölina í Bandaríkjunum
flutti fjölskyldan aftur til Dan-
merkur. Helga störf hjá danska
hönnuðinum Ilse Jacobsen þar
sem hún hafði yfirumsjón með
fyrstu fatalínu hönnuðarins. Helga
var þá búsett á Íslandi en flaug
reglulega til vinnu sinnar í Dan-
mörku. „Markhópur Ilse Jacobsen
er töluvert ólíkur markhópum All
Saints og Nikita en mér fannst
mjög gaman að fá tækifæri til að
takast á við ný verkefni. Þegar
maður vinnur fyrir aðra hönn-
uði þarf maður alltaf að vinna
eftir ákveðnum reglum og leggja
metnað sinn í að kynna sér það
sem viðskiptavinurinn vill. Það er
mikilvægt að geta hannað flík út
frá öðru en sjálfri mér.“
Helga starfaði í níu ár sem
hönnuður hjá nokkrum ólíkum
tískumerkjum og að þeim tíma
loknum fannst henni hún loks til-
búin í sjálfstæðan rekstur. „Það er
svo miklu meira sem felst í starfi
hönnuðar en bara að hanna flík
því það þarf líka að kunna á fram-
leiðsluferlið allt. Ég mundi alltaf
mæla með því að nýútskrifað-
ir hönnuðir færu út að vinna og
nældu sér í starfsreynslu. Maður
lærir svo mikið af því að vinna
fyrir aðra og á sama tíma bygg-
ir maður upp sambönd og tengsl
við annað bransafólk, sem nýtist
manni vel í eigin rekstri. Hjá Ni-
kita sá ég til að mynda um vöru-
þróun og lærði ýmislegt við fram-
leiðslu sem nýtist mér þegar Ígló
var stofnað. Mér fannst styrkur að
ég gæti séð um framleiðsluferlið
allt sjálf.“
ÚR KVENTÍSKUNNI
Í BARNATÍSKUNA
Eftir þessi níu ár innan kventísku-
bransans ákvað Helga að snúa sér
alfarið að hönnun barnafatnaðar.
Hún segir mikinn mun á hinum
hraða heimi kventískunnar og
hinum krúttlega heimi barnatísk-
unnar. „Ég fékk bara nóg. Kven-
tískan breytist svo ört og sá part-
ur tískuheimsins er svo stór og
hraður á meðan barnatískan er
minni, vinalegri og fjölskyldu-
vænni. Kventískan snerist mikið
um djamm og að vera sætur og í
flottustu fötunum á meðan barna-
tískan er einlægari og almenni-
legri. Það tók mig ekki langan
tíma að kynnast réttu ljósmynd-
urunum og réttu bloggurunum og
samkeppnin er ekki eins óvægin.“
Fötin frá Ígló eru ætluð börnum
frá aldrinum 0 til 10 ára. Helga
hefur haft það að leiðarljósi að
hanna þægileg og endingargóð föt
á börn og skreytir þau með smáat-
riðum eins og pífum, slaufum og
líflegum mynstrum. „Mig langaði
fyrst og fremst að hanna barna-
föt sem börnin sjálf mundu vilja
klæðast. Ég hef heyrt ómetanlegar
sögur um lítil börn sem vilja helst
sofa í flísgöllunum frá okkur því
þeir eru svo mjúkir. Ég sæki inn-
blástur í mín eigin börn og þau
fá mikið að segja um hönnunina
og eru jafnframt góðir talsmenn
merkisins,“ segir hún brosandi.
Í dag starfa sex manns hjá
Ígló, þar á meðal grafískur hönn-
uður, sölu- og markaðsstjóri,
birgðamanneskja og verslunar-
stjóri og starfsmaður í verslun
Ígló við Laugaveg. Merkið fæst á
11 stöðum hér á landi en er auk
þess fáanlegt í Danmörku, Sví-
þjóð, Noregi, Þýskalandi, Frakk-
landi, Bretlandi og Lúxemborg
og bætir Helga við að hún sé af-
skaplega stolt af því að varan sé
einnig seld í Magasin Du Nord í
Kaupmannahöfn.
Óhætt er að segja fatnaðurinn
frá Ígló hafi náð miklum vinsæld-
um á heldur skömmum tíma og
meðal annars hefur verið fjallað
um merkið í tímaritum á borð við
Vores Börn, Collezioni Baby og
á vefsíðunni Bubble and Speak.
Spurð út í nafn merkisins segir
Helga það vera tilvísun í kulda og
ís. „Kannski hefur það eitthvað
með það að gera að þegar maður
bjó úti var maður oft spurður
að því hvort maður ætti heima í
snjóhúsi,“ segir hún.
HEIMILIÐ FLÆÐIR
AF TEIKNINGUM
Helga er gift Jóni Hauki Baldvins-
syni og saman eiga þau tvö börn,
eina stúlku og dreng. Fjölskyldan
hefur búið í Danmörku, Bretlandi
og Bandaríkjunum auk þess sem
hjónin hafa látið reyna á fjarbúð
nokkrum sinnum sökum vinnu.
„Það eru vissulega viðbrigði að
vera allt í einu einn í útlöndum eða
einstætt foreldri á Íslandi en það
er nokkuð sem maður tekst á við
og veit að er aðeins tímabundið.“
Börnin virðast bæði hafa erft
listræna hæfileika móður sinnar
BARNATÍSKAN
ER EINLÆG OG
VINALEG
Helga Ólafsdóttir er eigandi og yfirhönnuður barnafatamerkisins Ígló og
hefur hlotið mikið lof fyrir hönnun sína bæði hér á landi og erlendis.
Viðtal: Sara McMahon
Mynd: Haraldur Guðjónsson