Fréttablaðið - 16.12.2011, Qupperneq 53
Spi l ið er g r u ndva l lað á þykjustu leik barna og örvar ímyndunar aflið. Börnin geta
auðvitað spilað Ævintýralandið
sjálf en foreldrar sem spila það með
börnum sínum gera það á þeirra for-
sendum og verða eins konar farþegar
í þeirra hugarflugi,“ segir Rúnar Þór
Þórarinsson, annar höfunda spils-
ins Ævintýralandið sem Pæling ehf.
hefur sett á markað. „Spilið gengur
þannig fyrir sig að sögumaður dreg-
ur sögu af handahófi og les fyrsta
hluta hennar upphátt fyrir aðra leik-
menn. Þeir eru sögu hetjurnar og það
er undir þeim komið að taka ákvarð-
anir um framhaldið og leysa verkefni
sögunnar í sameiningu. Ólíkt hefð-
bundum sögum eru söguhetjurnar
virkir þátttakendur og hafa áhrif á
atburðarásina með hjálp skemmti-
legra fylgigagna svo sem verkfæra,
félaga og furðuhluta. Ævintýrin eru
fengin úr hugmyndaheimi barna og
ganga út á það sem öllum börnum
þykir heillandi og skemmtilegt að sjá
fyrir sér. Til dæmis að tína jarðar ber,
byggja kofa, bjarga einhverjum úr
brennandi húsi eða sjá eldgos. Auð-
velt er að læra og spila Ævintýra-
landið. Það er bæði hugsað fyrir fjöl-
skyldur sem vilja eiga skemmtilega
stund saman og börn sem einfald-
lega hafa áhuga á því að hittast og
skemmta sér. Allir geta brugðið sér í
hlutverk sögumanns og skemmt sér
með jafnt yngri sem eldri.“
Eiginkona Rúnars, María Huld
Pétursdóttir, er hinn höfundur
spilsins og hugmyndin kviknaði
fljótlega eftir að þau eignuðust sitt
fyrsta barn, son sem nú er að verða
þrettán ára. „Þegar strákurinn var
svona eins og hálfs árs fórum við að
tala um það hvað við gætum gert til
að verða náin honum þegar hann
eltist svo hann fyndi til öryggis
með okkur. Ég held að allir foreldr-
ar vilji að börnin þeirra treysti þeim
og segi þeim allt. Okkur fannst að
besta leiðin til þess hlyti að vera
að taka þátt í hugarflugi barns-
ins á for sendum þess. Við kom-
umst svo að því þegar við byrjuð-
um að setja okkur inn í hans hug-
arheim að þegar börnin læra að tala
er hugur inn kominn langt fram úr
málþroskanum. Þau geta hrein-
lega ekki beðið eftir því að læra að
tala til að tjá allar tilfinningarn-
ar og hugsan irnar sem þau upp-
lifa. Í gegnum Ævintýralandið geta
foreldrar verið með í þessu ferli og
lært að þekkja börnin sín miklu
betur. Eitt af markmiðum spilsins
er einmitt að örva frásagnar list og
sköpunar gáfu barnanna og það að
fara saman inn í þennan þykjustu-
heim hefur gefið okkur sem fjöl-
skyldu meira en okkur óraði nokk-
urn tíma fyrir.“ María og Rúnar
segja spilið þaulreynt og prófað yfir
næstum tíu ára skeið af börnum
sínum, vinum þeirra og fjölskyld-
um vina og kunningja hérlendis og
erlendis.
Pæling ehf. er félag sem Rúnar
og María stofnuðu utan um út-
gáfu Ævintýralandsins ásamt Ólafi
Stefáns syni handboltamanni, Reyni
Harðar syni, stofnanda CCP, graf-
ísku hönnuðunum Hallvarði Jóns-
syni, Sverri Ásgeirssyni og Vilhjálmi
Inga Vilhjálmssyni og myndlistar-
mönnunum Birni Berki Eiríks-
syni og Kára Gunnarssyni. Rúnar
segir allt þetta fólk hafa komið að
hugmyndavinnu spilsins á mis-
munandi stigum og sótt hafi verið
óspart í sjóð eldri kynslóða til að
rifja upp þykjustu leiki í gegnum tíð-
ina. Einnig kom Brian Pilkington að
gerð spilsins, en hann sá um fjölda
myndskreytinga.
Þátttakendur eru tveir eða fleiri.
Einn er í hlutverki sögumanns
hverrar sögu en aðrir eru sögu-
hetjur þeirra. „En það er ekki síður
mikilvægt að það sé að minnsta
kosti eitt barn, á aldrinum fjögurra
til tólf ára, í hópnum,“ segir Rúnar,
„því það er í huga barnsins sem
ævintýrið á uppruna sinn.“
Kynning - Auglýsing
„Ævintýrin eru fengin úr hugmyndaheimi barna og ganga
út á eitthvað sem öllum börnum þykir heillandi og
skemmtilegt.“
Ævintýrin lifa í æskunni
Ævintýralandið er nýtt íslenskt borðspil sem Pæling ehf. hefur sett á markað. Spilið byggir á þykjustuleikjum barna og markmiðið er að örva frásagnarlist og sköpunargáfu allra
þátttakenda auk þess að styrkja fjölskyldu- og vinatengsl.