Fréttablaðið - 16.12.2011, Page 72
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR52
Það eru ekki bara karlarnir sem
græða á tá og fingri í poppinu
heldur hafa konurnar malað gull
á árinu sem er að líða. Vefútgáfa
bandaríska fjármálatímaritsins
Forbes tók saman þær tíu konur
sem hafa grætt hvað mest árið
2011.
Í grein Forbes um launahæstu konurnar
í poppbransanum kemur fram að tímarit-
ið studdist við upplýsingar frá Pollstar,
sem safnar upplýsingum um tónleikaferðir
poppstjarnanna í Bandaríkjunum og RIAA
sem eru samtök plötuútgefenda í Amer-
íku. Þá ræddi tímaritið einnig við umboðs-
menn, lögfræðinga og tónleikahaldara til að
fá sem besta mynd af stöðunni. Blaðamaður
Forbes bendir hins vegar á að aðeins fimm
af tíu launahæstu konunum voru á topp 25
lista blaðsins yfir launahæstu poppstjörn-
ur í heimi og aðeins ein hljómsveit á þeim
lista hafði söngkonu innan sinna vébanda,
Black Eyed Peas. „Konur virðast eiga erfið-
ara með að nýta sér frægð sína og velgengni
til að afla sér fjár,“ hefur Forbes eftir Lori
Landew, lögfræðingi sem hefur sérhæft sig í
skemmtanabransanum. Landew bætir því
við að hún eigi erfitt með að festa reiður á
hver sé ástæðan. Hún efast þó um að það
vanti frumkvöðlahugsunina sem einkenn-
ir karla í þessum bransa. „Eflaust snýst
þetta um skort á sömu tækifærum.“
freyrgigja@frettabladid.is
LADY GAGA ÞÉNAÐI
MEST ÁRIÐ 2011
1. LADY GAGA
(90 MILLJÓNIR)
Lady Gaga hefur haft
algjöra yfirburði í popp-
bransanum undanfarin tvö
ár. Hún þénaði nálægt því
helmingi meira en næsta
söngkona og munar þar
mestu um tónleikaferðina
Monsterball, hún skilaði
1,3 milljónum dollara í
kassann á hverjum degi.
Þá tókst Gaga að semja
við stórfyrirtæki á borð
við Polaroid, Virgin Mobile
og PlentyofFish.com sem
hafa eflaust gefið vel í
aðra hönd.
NORDIC PHOTOS/GETTY
2. TAYLOR SWIFT
(45 MILLJÓNIR)
Þessi 22 ára gamla
söngkona er hreinlega
óstöðvandi, hún er dýrkuð
og dáð meðal landa sinna
í Ameríku sem elska auð-
vitað kántrí-söngkonur.
Mestu munar um nýjustu
plötu Swift, Speak Now,
sem fékk rífandi dóma
í heimalandinu og svo
tónleikaferðin sem fylgdi
í kjölfarið en hún velti
rúmlega 97 milljónum
dollara.
3. KATY PERRY
(44 MILLJÓNIR)
Katy Perry hefur
notið ávaxtanna af
plötu sinni, Teenage
Dream, sem kom út
2010. Platan naut
ótrúlegra vinsælda,
fimm smáskífur fóru á
toppinn og sex laganna
náðu topp fimm sætum
á lista Billboard. Ekki
skemmdi heldur fyrir
að tónleikaferð söng-
konunnar malaði gull
og velti í kringum 48
milljónum dollara.
4. BEYONCÉ KNOWLES
(38 MILLJÓNIR)
Beyoncé er án nokkurs vafa ein vinsælasta söngkona
heims og sennilega ein af þeim áhrifamestu. Fjórða
plata hennar, 4, fór rakleiðis á toppinn í Bandaríkjun-
um sína fyrstu viku í sölu en þá ruku út 310 þúsund
eintök. Hún varð þar með önnur söngkonan í
sögunni til að ná því að koma fjórum fyrstu plöt-
unum sínum á topp Billboard-listans. Beyoncé stal
síðan senunni á MTV-verðlaunahátíðinni í ágúst þegar
söngkonan tilkynnti að hún og Jay Z ættu von á barni.
HINAR
6. Pink
7. Carrie Underwood
8. Celine Dion
9. Adele
10. Alicia Keys
og Britney Spears
5. RIHANNA
(29 MILLJÓNIR)
Rihanna,söngkonan unga frá Barbados, gaf út sína
sjöttu plötu, Talk That Talk, í nóvember á þessu ári.
Og hún sló að sjálfsögðu í gegn. Rihanna hefur
vakið athygli fyrir djarfa og erótíska framkomu á
sviði en hefur jafnframt verið að daðra við sjón-
varp og kvikmyndir; hún var aðstoðarkona L.A.
Reid í raunveruleikaþættinum X-Factor og mun svo
leika í hasarmyndinni Battleship sem verður frumsýnd
á næsta ári.