Fréttablaðið - 21.12.2011, Blaðsíða 34
34 21. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR
FÖNIX Raftækjaverslun . Hátúni 6a . Sími 552 4420 . fonix@fonix.is
www.fonix.is
Nýlega kom út rúmlega 700 síðna skýrsla á vegum banda-
ríska landlæknisembættisins um
áhrif beinna og óbeinna reykinga
á heilsu og líf einstaklinga (1). Þar
eru niðurstöður vísindarannsókna
dregnar saman og tekin af öll tví-
mæli um skaðsemi reykinga. Í
ljós hefur komið að fyrsta sígar-
ettan getur valdið stökkbreyting-
um í frumum sem síðar þróast í
krabbamein. Nú á dögum er ekki
deilt um áhættu vegna beinna og
óbeinna reykinga. Það er sannað
að þær eru heilsuspillandi, valda
sjúkdómum og dauða.
Lýðheilsusjónarmið eru höfð í
huga þegar löggjafar ákveða tak-
markanir á reykingum til varnar
þeim sem ekki vilja anda að sér
krabbameinsvaldandi, hættuleg-
um reyk. Hagfræðileg sjónarmið
eru einnig mikilvæg en kostnað-
ur samfélagsins vegna reykinga
er gríðarlegur. Hér á landi kosta
reykingar samfélagið um 30 millj-
arða á ári. Bann við reykingum á
veitingastöðum tók gildi þann 1.
júní 2007 og var þá stigið stórt
skref í tóbaksvörnum. Í þessari
grein er reifuð staða tóbaksvarna
erlendis til að varpa ljósi á hvar
Íslendingar standa samanborið
við aðra.
Borgarstjórinn í New York,
Michael Bloomberg, er ötull bar-
áttumaður gegn reykingafaraldr-
inum. Í hans tíð hafa reykingar
verið bannaðar á vinnustöðum,
veitingastöðum, krám, í 1.700
almenningsgörðum, á baðströnd-
um, göngustígum og á torgum við
Times Square.
Í Finnlandi tóku ný lög um tób-
aksvarnir gildi 1. október 2010.
Yfirlýst markmið laganna er að
stöðva tóbaksnotkun í Finnlandi.
Þau miða að því að stöðva nýliðun
reykingafólks og að vernda aðra
gegn tóbaksreyk. Þar er nú m.a.
saknæmt að selja ungmennum
tóbak og varðar það sektum. End-
urtekin brot varða allt að 6 mán-
aða fangelsi. Húsfélög fjölbýlis-
húsa geta nú bannað reykingar
á sameiginlegum svæðum utan-
húss. Reykingar á hótelum verða
bannaðar með öllu. Það verður
ekki lengur leyfilegt að reykja
fyrir utan skóla, þótt þar séu nem-
endur yfir 18 ára aldri.
Í Póllandi er bannað að reykja
í almenningsgörðum, í skólum, á
veitingahúsum og krám. Í Vest-
ur-Ástralíu er bannað að reykja á
útikaffihúsum og í bílum þar sem
einhver farþeganna er undir 17
ára aldri. Bannað er að reykja á
leikvöllum og í 10 metra radíus frá
þeim. Einnig er bannað að reykja
á sérmerktum baðströndum. Brot
gegn þessum lögum varða háum
sektum. Í Skotlandi varðar það
háum sektum að selja tóbak til
ungmenna og einnig að kaupa
tóbak fyrir ungmenni. Lögreglan
getur, samkvæmt skoskum lögum,
lagt hald á tóbak sem ungmenni
undir 18 ára aldri hafa undir hönd-
um á almannafæri. Þessi lög voru
samþykkt með miklum meirihluta
á skoska þinginu af meðlimum
allra flokka, 108 þingmenn voru
með lögunum, 15 á móti.
Í Svíþjóð hafa margar borgir,
bæir og sveitarfélög samþykkt
að innleiða reyklausan vinnu-
tíma. Markmiðið er að bæta
heilsu starfsfólks. Í Svíþjóð hafa
fjölmörg sjúkrahús sett það sem
skilyrði fyrir bæklunaraðgerðum
að einstaklingurinn sé hættur að
reykja. Áhætta á fylgikvillum
minnkar um helming hjá reyk-
ingafólki sem hættir að reykja
fyrir aðgerðir (2).
Rannsóknir sýna að reykingar
í kvikmyndum hafa mikil áhrif
bæði á ungmenni sem ekki reykja
og þá sem reykja. Að sjá einhvern
reykja kveikir reyklöngun hjá
öðrum. Það er með ólíkindum hve
mikið er reykt í íslenskum kvik-
myndum og á leiksviði hérlendis.
Þessar reykingar gefa ekki raun-
sanna mynd af tíðni reykinga hér
á landi. Meira að segja augnlækn-
ir er látinn reykja nánast stans-
laust í nýlegri mynd en meðal
lækna eru reykingar afar fátíð-
ar. Mjög margir, sem ekki reykja,
tala um að þetta fari í taugarn-
ar á þeim, þeir hætta að fylgjast
með framvindu myndarinnar og
taka bara eftir reykingunum, sem
þrátt fyrir allt eiga varla að vera
aðalatriði myndarinnar.
Hópur framsýnna þingkvenna
lagði fram þingsályktunartillögu
um tóbaksvarnir á Alþingi síð-
astliðið vor (3). Markmið þings-
ályktunartillögunnar er að stöðva
nýliðun reykingafólks. Það er
von okkar, sem vinnum við að
reyna að hjálpa einstaklingum
með reykingatengda sjúkdóma,
að fleiri þingmenn sjái ljósið og
styðji þessa framsæknu þings-
ályktunartillögu fólkinu í land-
inu til heilla. Það græðir enginn
á tóbaki nema þeir sem fram-
leiða það og selja og það er ljót-
ur „bissness“ að græða á því að
selja ávanabindandi, heilsuspill-
andi og deyðandi efni. Ekki er um
að ræða frelsi einstaklingsins til
að reykja, flestir sem reykja hafa
byrjað sem börn og unglingar og
þeir geta ekki hætt þar sem um er
að ræða eitt mesta ávanabindandi
efni sem til er.
Takmarkanir reykinga,
Ísland og önnur lönd
Lífvísindasetur Háskóla Íslands tók formlega til
starfa 30. nóvember 2011. Líf-
vísindasetrið hefur heimilisfesti
við læknadeild Háskóla Íslands
en býður til samstarfs öllum
aðilum á Landspítala – Háskóla-
sjúkrahúsi og annars staðar á
Íslandi þar sem eru stundaðar
rannsóknir á sviði sameinda- og
frumulíffræði og sem óska eftir
aðild að setrinu. Rannsóknahópar
innan Lífvísindaseturs HÍ stunda
rannsóknir á ýmsum sviðum sam-
einda- og frumulíffæði svo sem
líffræði krabbameina, starfsemi
og sérhæfingu stofnfruma, tauga-
líffræði, stjórnun genatjáning-
ar, erfðalækninga, næringar- og
matvælafræði, ónæmisfræði auk
ýmissa sviða lífeðlisfræði. Til-
gangur með stofnun Lífvísinda-
seturs er margvíslegur.
Samvinna og þekkingarsköpun
Mikill ávinningur verður af sam-
vinnu milli rannsóknahópa þegar
vísindamenn á þessu sviði stefna
að sameiginlegum markmiðum.
Aukin samskipti vísindamanna
leiða til samvinnu og um leið til
þekkingarsköpunar. Betri tengsl
myndast einnig við klíníska starf-
semi LSH en tengsl grunnvísinda
og klínískra vísinda er forsenda
betri meðferðar- og greiningaúr-
ræða. Þegar þetta er skrifað eru
skráðir 33 hópstjórar við Lífvís-
indasetur HÍ og með þeim starfa
60-70 meistara- og doktorsnem-
ar, ásamt nýdoktorum og tækni-
fólki. Stefnt er að því að flestir
vísindamenn HÍ og LSH á sviði
sameindalífvísinda tengist Líf-
vísindasetri HÍ í náinni framtíð
og skapi þannig frjóan vettvang
rannsókna á þessu sviði. Lífvís-
indasetrið hefur einnig þegar
skapað frjóan jarðveg fyrir
gestafyrirlestra og mun það efl-
ast með stækkun setursins.
Aukinn sýnileiki
Með Lífvísindasetri eykst sýnileiki
rannsókna HÍ, LSH og annarra
aðila sem tengjast setrinu á þessu
sviði, bæði hérlendis og erlend-
is. Rannsóknir á sviði lífvísinda
byggja á gömlum merg og hafa
haft mikil áhrif í íslensku þjóðlífi,
mun meiri áhrif en menn kannski
gera sér grein fyrir. Rannsóknir
á þessu sviði hafa leitt til þess að
sérfræðiþekking er til staðar sem
tryggir bæði menntun ungs fólks
í fræðunum en um leið öryggi á
ýmsum sviðum, t.d. vegna þekk-
ingar á smitsjúkdómum, krabba-
meinum og hjartasjúkdómum.
Þessar rannsóknir hafa einnig haft
mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf en
atvinnusköpun á sviði lífvísinda er
mikil og mun vaxa í framtíðinni.
Samnýting tækja og hagræðing í
rekstri
Tæki til rannsókna í lífvísind-
um eru sérhæfð, dýr og úreld-
ast hratt. Það er því mikilvægt
að nýta þau sem best á hinum
stutta líftíma þeirra. Með stofn-
un Lífvísindaseturs má bæði
samnýta tæki og standa sameig-
inlega að fjármögnun og rekstri
þeirra. Auk þess verður ávinning-
ur vegna hagræðingar í rekstri,
svo sem með sameiginlegum inn-
kaupum á rekstrar- og rannsókna-
vörum sem iðulega eru sérhæfðar
og dýrar.
Aukin styrkjasókn
Aukinn þéttleiki virkra vísinda-
manna á sviði lífvísinda eykur
samvinnu en skapar um leið
kröfuna um að menn standi sig í
styrkjasókn bæði um innlenda og
erlenda styrki.
Að lokum
Með Lífvísindasetri Háskóla
Íslands er orðið til frjótt umhverfi
fyrir vísindamenn og rannsókna-
nema, þar sem eftirsóknarvert
er að vinna og starfa. Markmið-
ið er að Lífvísindasetrið verði
mikilvægur vettvangur þeirra
Íslendinga sem flytja til Íslands
að loknu framhaldsnámi erlend-
is og þeirra erlendu aðila sem
vilja stunda nám eða störf í sam-
einda- og frumulíffræði á Íslandi.
Stofnun Lífvísindaseturs Háskóla
Íslands hefur nú þegar leitt til
öflugs vísindastarfs sem mun án
efa leiða til aukinna gæða þess-
arar starfsemi. Sú þekking sem
vísindin skapa leiðir til hagsbóta
fyrir sjúklinga og íslenskt sam-
félag í heild.
Lífvísindasetur HÍ: nýtt þekk-
ingarafl í heilbrigðisvísindum
Er lítill lyfjamarkað-
ur á Íslandi ástæða
lítils lyfjaframboðs?
Í síðasta mánuði kom út skýrsla Ríkisendurskoðunar,
Þróun lyfjakostnaðar 2008-2010.
Helsta niðurstaða hennar er sú
að þrátt fyrir smæð íslenska
lyfjamarkaðarins sé lyfjaverð
hérlendis bæði sambærilegt við
lyfjaverð í þeim löndum sem við
berum okkur jafnan saman við
og í mörgum tilfellum sé lyfja-
verð meira að segja lægra en í
þessum löndum. Þetta verður
efni næstu greinar í blaðinu þar
sem ég mun bera saman verð-
lag á lyfjum og skoða það með
tilliti til verðs í öðrum lönd-
um. Í skýrslunni benti Ríkis-
endurskoðun jafnframt á smæð
íslenska markaðarins sem ríka
ástæðu fyrir minna framboði
hér en á hinum Norðurlöndun-
um. Þótt önnur atriði geti hér
einnig skipt máli er þetta vissu-
lega rétt hjá Ríkisendurskoðun.
Lyfjaframboð íslenska markaðs-
ins samanborið við Norðurlöndin
Í skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar segir „að einungis séu um
3.300 lyfjavörunúmer til sölu
á Íslandi meðan samsvarandi
fjöldi annars staðar á Norður-
löndum er á bilinu 8.000 til
10.700“. Hér er vert að hafa í
huga að Ríkisendurskoðun ber
saman fjölda vörunúmera þar
sem hver stærðarpakkning fær
eigið vörunúmer. Hér á íslensk-
um markaði standa okkur ekki
endilega til boða eins margar
stærðir af pakkningum af sama
lyfi samanborið við nágranna
okkar á Norðurlöndum og það
skýrir að hluta til þann mun
sem Ríkisendurskoðun bendir á.
Fréttaflutningur vegna skýrslu
Ríkisendurskoðunar gaf aftur
á móti til kynna að hér væri
bókstaflega skortur á lyfjum á
íslenskum lyfjamarkaði þótt það
sé alls ekki tilfellið.
Hækkun gjaldskrár
og meiri álögur
hamla auknu lyfjaframboði
Líkt og fram kemur í skýrslu
Ríkisendurskoðunar hafa 4.327
lyf gilt markaðsleyfi á Íslandi
þótt aðeins 2.237 séu mark-
aðsfærð hérlendis. Rökrétta
skýringin á því ætti að liggja
í smæð íslenska markaðarins
sem framboðið tekur mið af.
En fleira hangir á spýtunni.
Ríkisendurskoðun bendir á að
framboð á samheitalyfjum sé
minna hér en í samanburðar-
löndunum.
Líkt og ég gat um í upphafi
er lyfjaverð hérlendis sam-
bærilegt við það sem gengur og
gerist á Norðurlöndunum og í
sumum tilvikum lægra. Þennan
árangur má þakka samstilltu
átaki stjórnvalda og frumlyfja-
framleiðenda. Við bendum þó á
að ástæðan fyrir minna fram-
boði á samheitalyfjum hér,
samanborið við önnur lönd,
geti meðal annars orsakast af
aðgerðum stjórnvalda.
Undanfarið hafa stjórn-
völd staðið fyrir breytingum
á umgjörð lyfjamarkaðarins í
heild, til dæmis með breyttri
tilhögun á greiðsluþátttöku
lyfja. Á sama tíma hafa neyt-
endur fundið fyrir hækkunum
á gjaldskrám, aukinni gjald-
töku auk þess sem kostnaður
hefur almennt aukist. Allt þetta
hamlar mjög gegn auknu fram-
boði lyfja á íslenska mark-
aðnum. Því hafa frumlyfja-
framleiðendur ítrekað gert
stjórnvöldum grein fyrir því
að hugsanlegar afleiðingar
aðgerða þeirra geti haft í för
með sér að lyf verði afskráð,
tekin af markaði og að aðgerð-
irnar í heild geti til lengri tíma
litið grafið undan lyfjamark-
aðnum.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar
gefur því tilefni til að endur-
meta hvort þau markmið sem
stjórnvöld ásettu sér, þ.e. að
tryggja gott lyfjaframboð á
íslenskum lyfjamarkaði, hafi
í raun náðst. Því miður bendir
ýmislegt til að aðgerðir stjórn-
valda hafi haft þveröfug áhrif.
Lyf
Jakob Falur
Garðarsson
framkvæmdastjóri
Frumtaka
Á sama tíma hafa neytendur fundið
fyrir hækkunum á gjaldskrám, aukinni
gjaldtöku auk þess sem kostnaður
hefur almennt aukist.
Heilbrigðismál
Sigríður Ólína
Haraldsdóttir
lungnalæknir
Heimildir:
1. How Tobacco Smoke Causes
Disease: The Biology and Behav-
ioral Basis for
Smoking-Attributable Disease,
A Report of the Surgeon General
2010. www.surgeongeneral.gov/
library/tobaccosmoke/index.html
2. www.enrokfrioperation.se/new
3. Tillaga til þingsályktunar um
aðgerðaráætlun um tóbaksvarn-
ir. 139. löggjafarþing 2010-2011.
Þskj. 1571 – 860. mál.
Vísindi
Þórarinn
Guðjónsson
dósent og hópstjóri við
Lífvísindasetur HÍ