Fréttablaðið - 21.12.2011, Blaðsíða 66
21. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR54
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
BYLTING Í
ÞÆGINDUM
Nú getur þú horft á Stöð 2 hvar og hvenær sem er.
Stöð 2 Netfrelsi gerir þér kleift að horfa á eftirlætis
þættina þína í tölvunni, farsímanum eða spjald-
tölvunni – þegar þér hentar.
TÖLVASNJALLSÍMI SPJALDTÖLVA
Nýjung fyrir áskrifendur Stöðvar 2
Allt uppáhaldsefnið þitt, innlent og erlent er aðgengilegt í tvær
vikur eftir frumsýningu. Farðu inn á stöð2.is, veldu Netfrelsi,
skráðu þig og byrjaðu að horfa - en hver þáttur kostar aðeins
30 Stöðvar 2 punkta fyrstu tvo mánuðina. Nýttu þér Stöð 2
Netfrelsi – hvar og hvenær sem er!
Gunnlaugur Egilsson, dansari
og danshöfundur, opnar sýningu
á leðurgrímum sem hann hefur
hannað í skartgripasmiðjunni
Hringu á Laugavegi í kvöld.
Gunnlaugi er margt til lista
lagt því auk dansins hefur hann
lagt stund á leðurgrímumótun
í nokkur ár. Hann hefur meðal
annars hannað leðurgrímur fyrir
dansverk sitt Djöflafúgu, sem
Íslenski dansflokkurinn sýndi
2008.
Grímur Gunnlaugs hafa yfir
sér annarlegan blæ en sjálfur
segist hann sjá fegurðina í því
ljóta og fá innblástur úr því sem
er djöfullegt og óhugnanlegt.
Sýning Gunnlaugs í Hringu
stendur til 28. desember.
Dansari sýnir
leðurgrímur
GRÍMA Gunnlaugur sækir innblástur í
hið djöfullega og óhugnanlega.
Tónlist ★★
Ísland
Cortes feðgar
Frost Music
Minna er meira
Garðar Thór Cortes hefur himn-
eska rödd. Hann syngur af einstakri
tilfinningu. Ástríðan í rödd hans er
svo grípandi að það er unaður að
hlusta á hann syngja. Faðir hans,
Garðar eldri, er líka magnaður
söngvari og listamaður. Hann hefur
auðgað tónlistarlíf Íslendinga meira
en flestir aðrir.
Feðgarnir syngja saman á geisla-
diski sem ber heitið Ísland. Lögin
eru ástsælar söngperlur, Blítt er
undir björkunum, Maístjarnan,
Draumalandið, Í dag skein sól og
annað í þeim dúr.
Söngurinn er vissulega fagmann-
legur og glæsilegur. Túlkunin er
heildstæð og fókuseruð. Og það
er rétta stemningin í söngnum.
Vandamálið er annað.
Það eru útsetningarnar. Þær
stílast á Karl Olgeirsson, og í
minni mæli á Harald Vigni Svein-
björnsson. Synd væri að segja
að smekkvísi hefði ráðið þar för.
Útsetningarnar eru svo væmnar og
yfirþyrmandi að manni verður hálf
ómótt. Allstór hljómsveit spilar í
útbólgnum, klisjukenndum Disney-
stíl. Það er einhver Frostrósabragur
á öllu sem kæmi kannski ágætlega
út á stórtónleikum. Ekki á geisla-
diski með hugljúfum lögum sem
þurfa í langflestum tilfellum bara
einfalda umgjörð.
Þetta er synd, vegna þess að
þessi geisladiskur hefði getað orðið
frábær. Listræn stjórn hefði þurft
að vera miklu, miklu betri. Jónas Sen
Niðurstaða: Fallegur söngur
sem drukknar í ósmekklegum
útsetningum.
Ljósmyndabókin Ísland á
umbrotatímum eftir Björn
Erlingsson kom út á dög-
unum. Þar lýsir höfundur-
inn í máli og myndum þeim
hræringum sem orðið hafa í
íslensku samfélagi á liðnum
misserum.
Í bókinni Ísland á umbrotatímum
leitast Björn Erlingsson við að
lýsa með ljósmyndum og stuttum
texta þeim umbrotum sem orðið
hafa í íslensku þjóðlífi á undan-
förnum misserum og áratugum.
Bókin skiptist í fjóra meginkafla;
hefst á eyðijörðum sveitanna sem
endurspegla þær miklu breyting-
ar sem urðu á að búsetu lands-
manna á öldinni sem leið. Annar
kafli fjallar um samfélag velmeg-
unar og efnishyggju, sá þriðji um
efnahagshrunið en fjórði og síð-
asti kaflinn um umhverfismál.
„Hugmyndin
að þessari bók
kviknaði upp
úr hruni,“ segir
Björn. „Ég tók
saman punkta
sem ég hafði
skrifað og setti
s a m a n v i ð
myndir sem
ég tók og þetta
virkaði nokkuð
vel saman. Svo vatt þetta upp á sig
og úr varð þessi bók.“
Sumar myndanna í bókinni hafa
ekki komið fyrir augu almennings
áður, til dæmis úr búsáhaldabylt-
ingunni. Oft var Björn í hring-
iðu atburðanna, ein myndin sýnir
hann sjálfan til dæmis þrútinn í
augum eftir að hafa fengið pipar-
úða yfir sig.
„Ég vildi komast sem næst
atburðunum en gætti mmín jafn-
framt á því að hafa ekki áhrif á
framvinduna, því markmiðið var
eingöngu að ná myndum og „dokú-
mentera“ það sem var að gerast.“
Björn hefur áður gefið út ljós-
myndabókina Allra veðra von,
frá 2003, sem gekk meira út á
náttúrustemningu og ljóðrænu.
„Bækurnar kallast hins vegar að
vissu leyti á, þær eru unnar út frá
ákveðnu þema, brotstærðin er sú
sama og textinn bæði á íslensku
og ensku. Það er aldrei að vita
nema ég geri fleiri verk í þessum
dúr og þrói þetta út í sérstakan
bókaflokk.“
Bókin kemur út á vegum for-
lagsins Kjöls, sem Björn starf-
rækir sjálfur en hann er bók-
bindari að mennt og starfar sem
slíkur, en hefur einnig numið ljós-
myndun.“
„Þessi kunnátta hefur nýst mér
vel, ég sé um hönnun bókarinn-
ar, umbrot og bókband. Ég þyrfti
bara að prenta bókina líka til að
teljast algjörlega sjálfbær með
hana.“ bergsteinn@frettabladid.is
Umbrot í máli og myndum
BJÖRN
ERLINGSSON
ÁTÖK Á AUSTURVELLI Í Ísland á umbrotatímum eru myndir frá búsáhaldabyltingunni og öðrum lykilatburðum síðustu ára.