Fréttablaðið - 21.12.2011, Qupperneq 46
KYNNING − AUGLÝSINGLoftpressur MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 20112
Loftpressa er tæki sem breytir orku (venjulega frá rafmótor, dísilmótor
eða bensínmótor) í hreyfiorku með því að þjappa saman lofti, sem,
þegar á þarf að halda, er hægt að losa út í snöggum skömmtum. Dæmi
um gerðir loftpressa eru til dæmis skrúfupressur, stimpilpressur, olíufríar
pressur og háþrýstipressur.
Venjulegar loftpressur eru notaðar við hin ýmsu tilefni.
● Til að setja hreint loft á gashylki.
● Til að setja hreint loft í köfunarkúta.
● Til að knýja loftkælingarkerfi í skólum og á vinnustöðum.
● Til að knýja hin ýmsu handverkfæri, á borð við slípirokka, loftlykla og
loftmeitla.
● Til að pumpa lofti í dekk.
● Loftpressur eru notaðar töluvert í iðnaði við ýmis ferli.
Heimild: wikipedia.org
LOFTPRESSUR ERU TIL ÝMISSA
HLUTA NYTSAMLEGAR
Loftpressur eru mikið notaðar á dekkjaverkstæðum. NORDICPHOTOS/GETTY
LOFTÞJÖPPUN Í KAFFIVÉL
Loftþrýstingur hefur ýmis
notagildi og hefur til dæmis
verið notaður til að brugga kaffi.
AeroPress er kaffivél sem Alan
Adler fann upp árið 2005.
Kaffið er látið liggja í bleyti í tíu
sekúndur áður en því er þrýst
í gegnum þétta pappírssíu.
Tækið samanstendur af tveimur
hylkjum. Annað þeirra er með
gúmmíhulsu og passar inn í
stærra hylkið en við það myndast
loftþétting líkt og í sprautu.
Framleiðendur segja kaffið álíka
sterkt og espresso kaffi en í allt
tekur um 30 sekúndur að laga
kaffibolla.
Þó að þessi kaffivél sé svipuð
frönsku pressunni er hún ekki
eins. Skiptir þar mestu loft-
þrýstingurinn sem er notaður
til að ná meira bragði úr kaffinu
en auk þess tekur styttri tíma að
laga kaffið.
Heimild: Wikipedia
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is s. 512 5429
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Nota helíum á miklu dýpi
Eitt af hlutverkum loftpressa er að setja loft á köfunarkúta.
Fyrir daga loftkúta voru ýmis ráð reynd til köfunar. Talið er að lista-
og vísindamaðurinn Leonardo da Vinci (1452-1519) hafi hannað kaf-
arahjálm úr leðri með hvössum oddum til varnar sæskrímslum. Enski
vísindamaðurinn Edmund Halley smíðaði árið 1716 svonefnda köfun-
arbjöllu sem gerði mönnum kleift að vera neðansjávar í um klukku-
stund. Rúmlega hundrað árum síðar, eða 1837, var fyrsti alvöru vatns-
heldi gúmmíbúningurinn með kafarahjálmi hannaður. Sá búningur
var tengdur loftdælu á yfirborðinu.
Saga nútímaköfunar hefst árið 1943 þegar franski kafarinn og sjáv-
arfræðingurinn Jacques-Yves Cousteau og landi hans, verkfræðing-
urinn Émile Gagnan, hönnuðu fyrsta loftkútinn sem stýrðist af and-
ardrætti kafarans. Þeir nefndu tækið vatnslunga og það varð fljótlega
mjög vinsælt vegna þess hversu ódýrt það var og auðvelt í notkun.
Loftkútur kafara inniheldur um 78% köfnunarefni og 21% súrefni.
Vatnsþrýstingur stjórnar því hversu mikið af þessum efnum fer út í
blóð kafarans. Þeim mun dýpra sem farið er þeim mun meira fer af
köfnunarefni og súrefni út í blóðið. Ef óreyndur kafari fer niður fyrir
40 metra dýpi getur hann dáið af völdum súrefniseitrunar eða kaf-
araveiki. Of mikið súrefni í blóðinu getur leitt til krampafloga og þá
er hætta á því að kafarinn drukkni. Of mikið af köfnunarefni getur
brenglað taugakerfi kafarans og gert hann ringlaðan og syfjaðan.
Á miklu dýpi er notað helíum í stað köfnunarefnis í loftkúta. Þegar
reynt er að hafa samband við kafara sem starfa við viðgerðir á miklu
dýpi er þess vegna engu líkara en í undirdjúpunum starfi teikni-
myndapersónur sem tala í falsettu en ekki reyndir kafarar.
Heimild: www.visindavefur.is
Loftpressur eru notaðar til að dæla lofti á köfunarkúta.
Notkun á þrýstilofti fer
sífellt vaxandi. Iðnvélar ehf.
að Smiðjuvegi 44-46 hafa í
mörg ár verið einn af
stærstu og öflugustu
þjónustu- og söluaðilum á
loftpressum til iðnaðar.
„Áður voru 3-5 hestafla stimpil-
pressur algengastar en nú er notk-
unin í smærri iðnfyrirtækjum að
færast yfir í 7-15 hestafla skrúfu- og
spjaldapressur,“ segir Guðmundur
Harðarson þjónustustjóri hjá Iðn-
vélum ehf.
Hjá Iðnvélum fást allar gerð-
ir af loftpressum: Stimpilpressur
frá 1,1-15 Kw fyrir minni fyrirtæki,
Skrúfu- og spjaldapressur frá 7,5-
400 Kw fyrir meðalstór og stærri
fyrirtæki og Turbó-Centrifugal –
300-1500 Kw fyrir stórnotendur.
Iðnvélar ehf. bjóða loftpressur frá
samsteypunni Gardner Denver
og CompAir Hydrovane sem eru
þekkt merki á Íslandi.
Við kaup á loftpressu segir Guð-
mundur mikilvægt að huga að
orkunýtingu loftpressunnar ekki
síður en að horfa í kaupverðið.
„Það vill brenna við að menn gera
sér ekki grein fyrir að loftpressan
er oft einn mesti orkunotandinn í
viðkomandi fyrirtæki. Þegar menn
setjast niður og reikna út orku-
neyslu meðalstórrar loftpressu,
getur rafmagnskostnaður einn
og sér verið um hálf milljón á ári.
Þá getur 10-20% betri orkunýting
skipt sköpum,“ segir Guðmundur.
Til margra ára hafa tækni-
menn Iðnvéla ehf. þjónustað við-
skiptamenn sína með þrýstiloft,
aðstoðað við útreikning og hönn-
un á kerfum, sett upp vélar og séð
um viðhald á loftkerfum. Fjöldi
fyrirtækja nýtir sér reglubundna
viðhaldsþjónustu Iðnvéla til að
tryggja rekstraröryggi sitt og
segir Guðmundur
þessar áherslur
ört vaxandi hjá
viðskiptamönn-
um Iðnvéla ehf.
Þá eykst f jöldi
stórfyrirtækja
sem nota þrýsti-
loft með hverju ári.
„Stærri iðnfyr-
irtæki geta verið að
nota loftpressur með
hálft og heilt megawatt
í orkuþörf. Áætlað er að
um 10% af orkuþörf heims-
ins fari í að reka loftpressur og
því er hámarksorkunýting gríðar-
lega mikilvæg,“ segir Guðmundur.
„CompAir Hydrovane er með
háþróaðar rannsóknarstofur í
Þýskalandi þar sem áhersla er
lögð á orkunýtingu og um leið á
umhverfisvernd. Kröfur um gæði
þrýstilofts hafa aukist um leið
og kröfur um orkunýtingu
o g C o m p A -
ir Hydrovane
er einnig með
e i t t s t æ r s t a
úrval af olíufrí-
um loftpress-
um, fyrir lítil
og stór f yrir-
tæki, matvæla-
iðnað, lyfjaiðnað
eða hátækniiðn-
að,“ seg i r Guð-
mundur. „CompAir
Hydrovane tryggir nær-
gætni við umhverfið, há-
marks orkunýtingu og rekstr-
aröryggi og því geta Iðnvélar ehf.,
boðið heildarlausnir fyrir þrýsti-
loft, í hvaða notkun sem er.“
Nánari upplýsingar er að finna
á www.idnvelar.is.
Hámarks orkunýting
- Skiptir sköpum í rekstri
Sérhæfðir tæknimenn sjá um reglubundið efirlit. MYND/IÐNVÉLAR EHF