Morgunblaðið - 11.09.2010, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hugmyndir að Selfossvirkjun
grundvallast á því að byggja í einu
mannvirki stíflugarð með flóðgátt-
um og brú. Verði hugmyndin ekki
könnuð áður en ráðist verður í bygg-
ingu brúar, verður ekki af virkjun.
Ný brú yfir Ölfusá, ofan Selfoss,
og tengingar að henni eru síðasti
hluti lagfæringar á Suðurlandsvegi
sem rætt er við lífeyrissjóðina um að
fjármagna. Vegagerðin hefur verið
með tvo staði til skoðunar. Annars
vegar brú yfir Ölfusá á Efri-
Laugardælaeyju. Það er sá kostur
sem sveitarfélögin settu í aðal-
skipulag og hafa barist fyrir. Hins
vegar er valkostur sem starfsmenn
Vegagerðarinnar hafa talið heppi-
legri vegna betri aðstæðna og lægri
kostnaðar, það er brú ofar á ánni, við
gamla ferjustað Laugardælaferju.
Ákvörðun um brúarstæði liggur
ekki fyrir en allt stefnir í þá átt að
farið verði að vilja bæjaryfirvalda og
Efri-Laugardælaeyja verði valin.
Lokaðar flóðgáttir
Þegar Eiríkur Bragason verk-
fræðingur heyrði af brúarhug-
myndum fannst honum blasa við að
nota tækifærið til að gera rennslis-
virkjun um leið, svipað og sést víða
við stórár í Evrópu, svo sem í Rín-
ardalnum og Móseldalnum. Hann
kom hugmyndinni á framfæri við
bæjaryfirvöld í vor og Selfossveitur
fólu verkfræðistofunni Verkís að
gera fyrstu drög að greinargerð.
Kristján Már Sigurjónsson,
byggingaverkfræðingur hjá Verkís,
segir að hugmyndin sé að steypa
lágan þröskuld í ána og reisa síðan
stöpla með 20 metra millibili. Á milli
þeirra koma lokur sem stífla ána og
lyfta vatnsborði hennar um 3-4
metra. Þegar mikil flóð koma í ána
verður hægt að opna fyrir þannig að
hún flæði óhindrað fram.
Vatnið verður tekið úr ánni að
vestanverðu í gegnum niðurgrafið
stöðvarhús og þaðan um rúmlega
kílómetra löng frárennslisgöng sem
veita vatninu aftur út í Ölfusá
nokkru neðan við núverandi brú.
Ölfusá er vatnsmesta á landsins
og mikill straumur er í henni þar
sem hún liggur í gjá í gegnum Sel-
foss. Áfram verður hluta af ánni
veitt þar um og málum hagað þannig
að hún fylli botn núverandi farvegs.
Lax gengur um Ölfusá upp í Sogið
og Hvítá. Gerðar verða ráðstafanir
til að seiði komist óhindrað til sjávar
og lax geti gengið upp í árnar.
Kristján Már gerir ráð fyrir að
Selfossvirkjun skili 28 megawatta
afli. Kostnaður er áætlaður 9 til 12
milljarðar og telur Elva Dögg Þórð-
ardóttir, formaður framkvæmda- og
veitustjórna, ekki vandamál að fjár-
magna arðbæra og umhverfisvæna
virkjun.
Vegagerðin taldi heppilegra að
byggja brú aðeins ofar við ána, þar
sem minni hætta væri á skemmdum
á mannvirkjun vegna jarðskjálfta
Kristján Már tekur fram að eft-
ir sé að rannsaka mörg atriði, þar á
meðal jarðlög með tilliti til jarð-
skjálfta. Þá þurfi að athuga betur
hættu á krapastíflum, framburð og
flóð.
Svipað og við Lagarfoss
Vegagerðin hefur gert ráð fyrir
stagabrú í tveimur höfum við Efri-
Laugardælaeyju, verði sá staður
fyrir valinu. Stór turn á eyjunni
myndi bera hana uppi.
Ef virkjunarhugmyndin nær
fram að ganga yrði brúin steypt ofan
á stöpla flóðgáttastíflunnar, á svip-
aðan hátt og brúin við Lagarfoss-
virkjun á Fljótsdalshéraði.
Skissa á loftmynd/Verkís
Selfossvirkjun Flóðgáttastífla verður byggð í tengslum við brúargerð við Efri-Laugardælaeyju. Gert er ráð fyrir
niðurgröfnu stöðvarhúsi við bakkann og vatnið leitt þaðan með frárennslisgöngum út í Ölfusá við sláturhús SS.
Selfossvirkjun beislar
kraftinn í rennsli Ölfusár
Ölfusá verður ekki svipur hjá sjón þegar hún rennur um gjána hjá Selfossi
Björgunarsveitir voru kallaðar út í
gær þegar beiðni um aðstoð barst
vegna bíls sem fastur var á leiðinni
upp að Axarfossi á Mýrdalssandi,
svonefndri Öldufellsleið. Bíllinn
festist í Hólmsá en 10 erlendir
ferðamenn sem í honum voru höfðu
allir komist í land af sjálfsdáðum.
Þegar björgunarsveitirnar komu
á staðinn voru ferðalangarnir orðn-
ir kaldir og blautir eftir dvöl sína í
rigningu á árbakkanum. Bíllinn,
sem er bílaleigubíll, hafði flotið nið-
ur ánna og kerra sem hann dró var
oltin.
Mikið vatn var í ánni en mikið
hefur rignt á svæðinu undanfarið.
Björgunarsveitamenn fluttu fólkið
til byggða og hressti það við með
heitum drykkjum og húsaskjóli.
Erlendir ferðamenn í
vandræðum er bíll
festist í Hólmsá
Morgunblaðið/RAX
Varasamt Landsbjörg varar við að ár á
Suðurlandi eru vatnsmiklar þessa dagana.
Marilyn Young,
sem hélt því fram
að hún ætti barn
með skákmeist-
aranum Bobby
Fischer, hefur nú
farið fram á að
tekin verði lífs-
ýni úr tveimur
systursonum
Fischers, sem
gera einnig kröfu um arf eftir
hann, og þau borin saman við sýni
úr Fischer sem tekin voru í sumar.
Lögmaður Young sendi Þórði
Bogasyni, lögmanni hinnar meintu
dóttur Fischers á Íslandi, tölvu-
pósta þess efnis. Sendi hann jafn-
framt bandaríska blaðinu New
York Times afrit af tölvupóstunum
ásamt niðurstöðum DNA-rann-
sóknar sem leiddi í ljós að Fischer
gæti ekki verið faðir dóttur Youngs
þrátt fyrir að þær séu merktar sem
trúnaðarmál.
Í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Þórður ekkert vilja tjá sig um
málið en staðfesti að hann væri ekki
lengur lögmaður dóttur Youngs.
Fram kemur á fréttavef New
York Times að óskin um að bera
saman lífsýnin úr Fischer og syst-
ursonum hans sé til komin til þess
að ganga úr skugga um að í raun og
veru hafi verið um líkamsleifar
Fischers að ræða.
Enn deilt um DNA
Bobby Fischers
Bobby Fischer
„Miðað við það sem fyrir liggur
núna líst mér vel á hugmyndina.
Það á eftir að hanna virkjunina og
athuga betur áhrif á umhverfið,“
segir Elva Dögg Þórðardóttir, bæj-
arfulltrúi í Árborg og formaður
framkvæmda- og veitustjórna sem
Selfossveitur heyra undir.
„Ég tel það jákvætt að sveitarfé-
lagið sé að vinna sjálft að þessu og
íbúarnir hafi hag af því.“ Hún tek-
ur fram að hugmyndirnar verði
kynntar fyrir
íbúum og hags-
munaaðilum.
„Við höfum
ekki efni á því
að skoða ekki
þennan mögu-
leika,“ segir
Elva Dögg þeg-
ar hún er spurð
að því hvort Árborg hafi efni á því
að ráðast í framkvæmdir.
Íbúarnir hafi hag af virkjun
FORMANNI VEITUSTJÓRNA LÍST VEL Á HUGMYNDIRNAR
Elva Dögg
Þórðardóttir
Steinunn S. Jak-
obsdóttir jarð-
eðlisfræðingur
hefur verið kjör-
in forseti Evr-
ópska jarð-
skjálftaráðsins
(ESC), fyrst
kvenna og fyrst
Íslendinga.
Steinunn, sem
hefur setið alls-
herjarþing samtaka evrópskra
jarðskjálftafræðinga í Montpellier
í Frakklandi, segir að þetta sé
mikill heiður. Þetta sé ekki aðeins
heiður fyrir sig, heldur einnig Ís-
land og þann hóp sem hún hafi
starfað með á Veðurstofu Íslands.
„Og þessa samstarfsmenn sem
hafa verið með mér í gegnum ára-
tugi að byggja upp jarðskjálftaeft-
irlitskerfi á Íslandi og önnur eft-
irlitskerfi.“
Steinunn forseti
ESC fyrst kvenna
Steinunn
Jakobsdóttir
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
í dag
kl. 10 til 16.
Fjöldi tilboða í
tilefni dagsins.
Verið velkomin í
verslun okkar að
Nóatúni 4.
A
T
A
R
N
A
A
T
A
R
N
A
Sölusýning
Viðar Már Matthíasson, prófessor
við lagadeild Háskóla Íslands, hefur
samkvæmt tillögu Ögmundar Jónas-
sonar dómsmála- og mannréttinda-
ráðherra verið skipaður dómari við
Hæstarétt Íslands frá og með 10.
september.
Aðrir umsækjendur um embættið
voru: Sigríður Ingvarsdóttir héraðs-
dómari, Sigrún Guðmundsdóttir
héraðsdómari, og Þorgeir Örlygs-
son, dómari við EFTA-dómstólinn í
Lúxemborg.
Viðar Már og Þorgeir voru metnir
hæfastir til þess að gegna embætt-
inu, samkvæmt umsögn hæfisnefnd-
ar. Hann tekur sæti Hjördísar Há-
konardóttur, sem baðst lausnar fyrir
aldurs sakir í sumar.
Viðar Már er 56 ára að aldri. Hann
lauk embættisprófi í lögum frá Há-
skóla Íslands 1979 og lagði stund á
framhaldsnám og
rannsóknir í
samningarétti og
kröfurétti við
Oslóarháskóla frá
ágúst 1979 til júní
1981.
Viðar Már hóf
störf við Háskóla
Íslands sem
stundakennari
árið 1983 og
starfaði sem slíkur með hléum til
ársins 1995 auk þess að vera próf-
dómari í ýmsum greinum fjármuna-
réttar. Árið 1996 var hann ráðinn
sem prófessor við lagadeild Háskóla
Íslands og hefur hann jafnframt ver-
ið formaður stjórnar Lagastofnunar
skólans frá árinu 2003. Hann hefur
þrívegis verið settur dómari við
Hæstarétt tímabundið.
Viðar Már skipaður
hæstaréttardómari
Viðar Már
Matthíasson