Morgunblaðið - 11.09.2010, Síða 18
ÚR BÆJARLÍFINU
Björn Björnsson
Sauðárkrókur
Einstakur sumarauki hefur leikið
við okkur Norðlendinga undanfarna
daga, varla sést skýhnoðri á himni,
og hiti í kringum tuttugu stig hvern
dag. Þegar svo við bætist að ekki
hefur nema eina nótt gránað í hæstu
fjallatoppa, og engin næturfrost ver-
ið, þá er varla unnt að segja annað
en að hér er ekki síðra en á sólar-
ströndum, þessi dægrin.
Í síðasta mánuði var tekinn í
notkun nýr leikskóli í Sauðármýrum,
sem hlotið hefur nafnið Ársalir en
skólastýra er Anna Jóna Guðmunds-
dóttir, burtfluttur Skagfirðingur,
sem kominn er heim til þess að taka
að sér stjórnun skólans. Hjá sveitar-
félaginu fengust þær upplýsingar að
kostnaður við bygginguna væri rúm-
lega 500 milljónir, en þó munu ekki
öll kurl komin til grafar.
Þann 16. september verða
sveitarstjóraskipti í Skagafirði, en
þá lætur af störfum Guðmundur
Guðlaugsson sveitarstjóri síðasta
kjörtímabil, en við tekur Ásta Björg
Pálmadóttir, sem undanfarin ár hef-
ur stýrt útibúi Landsbankans á
Sauðárkróki.
Það olli verulegum von-
brigðum þegar í ljós kom að ekki var
rekstrargrundvöllur fyrir jarð-
efnagerð – moltu, – sem stefnt var
að að framleiða í nýrri og afkasta-
mikilli verksmiðju á Gránumóum.
Nú í sumar var framleiðslu hætt,
fyrirtækið lýst gjaldþrota og hús og
búnaður auglýst til sölu. Miklar von-
ir voru bundnar við úrvinnslu alls
sláturúrgangs og einnig úrgangs frá
fiskverkuninni, sem löngum hefur
orðið að urða.
Nú er sláturtíð hafin af fullum
krafti hjá Sláturhúsi Kaupfélags
Skagfirðinga, og að sögn Ágústs
Andréssonar forstöðumanns verður
væntanlega slátrað um 110 þúsund
fjár á meðan sláturtíð stendur, eða
til mánaðamóta október, nóvember.
Hjá fyrirtækinu sagði hann að störf-
uðu nú 150 manns og þar
af um 90 erlendir verka-
menn, aðallega frá Pól-
landi, Svíþjóð og Nýja-
Sjálandi, en ekki hefur
gengið vel að manna
störf á sláturhúsinu með
innlendum starfs-
kröftum.
Verktakafyrirtæki
Símonar Skarphéð-
inssonar hefur hafið nið-
urrif gamalla iðn-
aðarhúsa sem lengi hefur
staðið til að fjarlægja, en
þar er stærst og fyr-
irferðamest gamla bíla-
verkstæði kaupfélagsins.
Gert er ráð fyrir að menn
Símonar ljúki verkinu fyrir mán-
aðamót, en í nýjasta skipulagi sveit-
arfélagsins sem samþykkt var á síð-
asta kjörtímabili er gert ráð fyrir
veglegu íbúðahverfi á þessum reit.
Sú blíða sem leikið hefur um
Norðlendinga undanfarna daga, hef-
ur staðið allt frá höfuðdegi 29. ágúst
og ekki sér fyrir enda hennar. Skag-
firðingar sem aðrir njóta hvers dags
og sleikja sólskinið, grilla og láta sig
engu skipta þó að svartsýnismenn-
irnir segi að þessi góða tíð eigi eftir
að koma í bakið á mönnum, – hún
eigi eftir að hefna sín, – og eins og
karlinn sagði: „Hann verður harður
þegar hann kemur“, en er á meðan
er og njótum sólar á meðan hún
skín.
Skagfirðingar njóta hvers
dags og sleikja sólskinið
Gaman Krakkarnir í Ársölum kunnu vel að
meta góða veðrið sem verið hefur undanfarið.
Morgunblaðið/Björn
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú stendur yfir endurnýjun á upp-
lýsingakerfum allra strætisvagna
Strætó bs. sem mun gera fyrirtæk-
inu kleift að bæta þjónustu sína um-
talsvert á komandi misserum.
Sumir farþegar hafa þegar orðið
varir við fyrstu breytingarnar sem
nýja kerfið hefur í för með sér, en
þær felast í að nafn næstu biðstöðv-
ar er sjálfkrafa kynnt í hátalara-
kerfi vagnsins. Margir eldri borg-
arbúar muna eflaust þá gömlu tíma,
þegar vagnstjórarnir kölluðu upp
nafn næstu biðstöðvar, t.d. Múli,
þegar komið var að þeim bæ við
Suðurlandsbraut. Þetta var síðar af-
lagt.
Þjónusta sú sem nú verður boðið
upp á er vel þekkt erlendis og hafa
stórir notendahópar strætó óskað
eftir að hún verði tekin upp hér á
landi, segir í tilkynningu frá fyr-
irtækinu.
Mun nýtast mörgum
„Tilkynningar um biðstöðvar í há-
talarakerfum nýtast sérstaklega
blindum, sjónskertum, eldri borg-
urum, utanbæjarfólki og öðrum sem
eiga erfitt með að átta sig á stað-
háttum, auk þess að hjálpa nýjum
notendum að læra á leiðakerfi
strætó, hvort sem það eru börn og
unglingar, erlendir ferðamenn eða
þeir sem ferðast sjaldan með
strætó,“ segir í tilkynningunni.
Kerfinu er ætlað að auka upplýs-
ingagjöf til farþega, hjálpa vagn-
stjórum að halda áætlun og veita
stjórnstöð rauntímaupplýsingar um
stöðu vagna í akstri. Að auki er
stefnt að því að gera kerfið þannig
úr garði að það geti tekið við
greiðslum með greiðslukorti.
Fljótlega munu bætast við upp-
lýsingaskjáir í vögnunum sem veita
farþegum upplýsingar um næstu
biðstöðvar, birta tilkynningar og
fleira.
Meginvirkni nýja kerfisins bygg-
ist á að allir vagnar eru útbúnir
gps-staðsetningartæki sem sendir
upplýsingar um staðsetningu vagns-
ins, hraða og akstursstefnu beint til
stjórnstöðvar. Allir strætisvagnar
eru samstilltir við gervihnatta-
klukku og vagnstjórar fá stöðugt
upplýsingar um hvenær vagninn
eigi að vera á næstu biðstöð. Það
auðveldi þeim að tímajafna akstur-
inn og halda áætlun enn betur en
áður. Um leið fær stjórnstöð Strætó
bs. nákvæmar rauntímaupplýsingar
um alla vagna í akstri og getur
brugðist við með öruggum hætti
þegar útlit er fyrir að þjónustu-
brestur verði í strætisvagnakerfinu.
Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs., segir að innleiðing
nýja kerfisins sé mikilvægt skref
fyrir Strætó bs. enda hafi gamla
kerfið verið komið til ára sinna. Með
nýja kerfinu sé komið til móts við
óskir farþega um aukna þjónustu.
Hann leggur áherslu á að umfangs-
mikil innleiðing á borð við þessa
gangi ekki í gegn á einni nóttu og
sníða þurfi af hnökra sem óhjá-
kvæmilega komi upp til að byrja
með.
Nafn næstu biðstöðvar
tilkynnt í hátalara
Morgunblaðið/Golli
Strætó bs. endur-
nýjar upplýsingakerfi
í strætisvögnunum
Komið í marga vagna
» Grunnbúnaður kerfisins er
nú þegar kominn í u.þ.b. 40
strætisvagna.
» Allur strætisvagnaflotinn
verður kominn með nýja kerfið
á næstu vikum.
Ríkisstjórnin hefur heimilað að
þriðja björgunarþyrlan verði tekin
á leigu til að efla björgunargetu
Landhelgisgæslunnar, en dóms-
málaráðherra tók málið upp á fundi
ríkisstjórnarinnar í gærmorgun.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði að fundi loknum að
þyrlan yrði tekin á leigu í haust.
Leitast yrði við að halda þremur
þyrlum í rekstri á vegum Gæsl-
unnar og að tvær áhafnir yrðu til
taks.
Vonast væri til þess að sértekjur
Gæslunnar dygðu fyrir þessu. Ann-
ars yrði málið endurskoðað.
Ríkiskaup óskaði eftir tilboðum í
leigu á björgunarþyrlu fyrir Land-
helgisgæslu Íslands í auglýsingu í
Morgunblaðsins nýlega. Óskað var
eftir björgunarþyrlu af tegundinni
Super Puma til gæslu og björg-
unarstarfa á og við Ísland í eitt ár
frá og með haustmánuðum 2010,
með heimild til framlengingar í allt
að fimm árum.
Landhelgisgæslan hafði yfir að
ráða fjórum þyrlum þegar mest
var. Nú eru þyrlurnar aðeins tvær.
Georg Lárusson, forstjóri Gæsl-
unnar, segir að þessi staða tak-
marki mjög tæknilega getu hennar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gæslan Ný þyrla bætist í hópinn.
Gæslunni heimilað
að leigja þyrlu
Er kominn tími til að gera eitthvað?
Námskeið sem opna þér nýjar leiðir
Hringsjá náms- og starfsendurhæfing býður mikið úrval af öðruvísi og
spennandi námskeiðum sem hafa hjálpað mörgum að komast aftur
eða í fyrsta sinn af stað til meiri virkni, meiri lífsgæða og fleiri valkosta
í námi eða starfi.
Námskeiðin eru sniðin fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem hafa
verið frá vinnumarkaði eða námi vegna slysa, veikinda, félagslegra
erfiðleika eða annarra áfalla. Námskeiðin geta líka hentað þeim sem
hafa litla grunnmenntun eða hafa átt erfitt með að tileinka sér
hefðbundið nám.
Um er að ræða eftirfarandi námskeið:
Bókhaldsnámskeið - hagnýtt námskeið fyrir þá sem stefna á frekara nám
eða skrifstofustörf
Excel fyrir byrjendur - Þátttakendur læra að setja upp tölur á vinnublaði
og læra að beita einföldum reiknireglum. Kenndar eru helstu
vinnuaðferðir og að útbúa myndrit.
Enska fyrir byrjendur - Námskeiðið er fyrir þá sem hafa átt mjög erfitt
með að læra ensku/önnur tungumál. Notast er við myndrænar og
óhefðbundnar aðferðir sem nýst hafa vel á öðrum sviðum. Áhersla er lögð
á að bæta orðaforða og að auka sjálfstraust nemenda.
Fjármál einstaklinga - Fjármál á mannamáli! Námskeiðinu er ætlað að
veita þátttakendum yfirsýn yfir eigin fjármál og auka fjármálalæsi.
Minnistækni - Kennd er tækni til þess að efla og bæta minnið.
Námskeiðið hentar þeim sem eiga við hversdagsgleymsku að stríða, hafa
skert minni eftir veikindi eða áföll eða vilja bæta minni sitt af öðrum
ástæðum.
Stærðfræði fyrir byrjendur - Námskeiðinu er ætlað að skapa áhuga á
stærðfræði og jákvætt viðhorf. Kennsluaðferðir eru nýstárlegar þar sem
nemendur læra að meðhöndla tölur með áþreifanlegum hætti í
skemmtilegum æfingum. Beitt er óhefðbundnum aðferðum í kennslunni.
Sjálfstyrking - Námskeiðinu er ætlað að efla getu nemenda til að tjá sig
og vera til. Þetta verður gert á skemmtilegan og líflegan hátt og
nemendur öðlast þjálfun í öruggri framkomu.
Tölvugrunnur - Kennd er tölvunotkun fyrir byrjendur og lengra komna.
Farið er í Windows umhverfið, ritun og útlitsmótun texta, Internetið,
tölvupóst, teikningu, skjalaumsjón og fleira.
Næstu námskeið eru að hefjast!
Frekari upplýsingar og skráning hjá Hringsjá
í síma 510-9380 eða á www.hringsja.is