Morgunblaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.09.2010, Blaðsíða 20
VIÐSKIPT | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2010 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Miðað við það verð, sem Hagar greiddu fyrir bréf stjórnenda fyr- irtækisins árin 2008 og 2009 var markaðsvirði fyrirtækisins 22 milljarðar og var svokallað P/E hlutfall því um 30-40. Um er að ræða hlutfall markaðsvirðis og hagnaðar, en reikningsárið 2007/ 2008 var hagnaður Haga um 530 milljónir og ári síðar var 5,3 millj- arða króna tap á rekstrinum. Al- mennt er miðað við að eðlilegt P/E hlutfall sé um 15 nema búast megi við því að hagnaður viðkomandi fyrirtækis muni aukast í framtíð- inni. Arion banki tók yfir rekstur 1998 ehf., móðurfélags Haga, skömmu eftir að Hagar keyptu eigin hlutabréf af stjórnendum í seinna skiptið. Morgunblaðið ósk- aði eftir upplýsingum frá bank- anum um hvort til greina kæmi að rifta kaupsamningunum eða hvort bankinn teldi viðkomandi stjórn- endur skaðabótaskylda. Svarar ekki fyrir samningana Í svari bankans segir að um- rædd sala hafi verið „...hluti af þeim kjörum sem lykilstjórnendur Haga sömdu um við fyrrverandi stjórn/eigendur. Arion banki sér ekki ástæðu til að svara fyrir slíka samninga, sem voru gerðir all- löngu áður en bankinn tók félagið yfir.“ Í október 2009, skömmu áður en Arion tók yfir rekstur 1998 ehf., keyptu Hagar hlutabréf að nafn- virði 17 milljóna króna af Finni Árnasyni, forstjóra Haga, Guð- mundi Marteinssyni, framkvæmda- stjóra Bónuss og Jóhönnu Waag- fjörð, þáverandi fjármálastjóra Haga. Greiddi fyrirtækið alls 315 milljónir fyrir hlutabréfin. Hvað varðar kaupverðið hefur Finnur Árnason sagt við Morgunblaðið að þriðji aðili hafi unnið verðmat á fyrirtækinu til að ákvarða sölu- verð. Finnur vildi þó ekki gefa upp hver sá þriðji aðili var. Ætlað markaðsverð Haga í hærra lagi  Arion segist ekki svara fyrir kaup Haga á hlut stjórnenda Verslanir Tap Haga á rekstrarárinu 2008/2009 nam 5,3 milljörðum og skýr- ist það að stærstum hluta vegna 7,9 milljarða taps á fjármagnsliðum. Morgunblaðið/Heiddi Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Nauðasamningar, sem fela í sér að lánardrottnar Straums hafa nú tekið við stjórn bankans, gætu verið fyr- irmynd sambærilegra samninga um gömlu viðskiptabankana, einkum Glitni og Kaupþing. Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, segir að markmiðið sé að á endanum taki lánardrottnar gamla bankans við taumunum í bank- anum, en líklega sé nokkuð í að það geti gerst. „Áður en af því getur orðið verður að vinna úr gríðarlegum fjölda dómsmála. Ganga verður úr skugga um hverjir séu réttilega taldir til kröfuhafa bankans og það mun taka tíma. Lausleg tímaáætlun gerir ekki ráð fyrir að því verki verði lokið fyrr en um árið 2015, en það fer allt eftir fjölda mála og því hve hratt þau fara í gegnum dómskerfið.“ Árni segir að ekki sé hægt að færa lánardrottnum bankann í hendur fyrr en þetta sé ljóst, því hlutverk skila- nefndar og slitastjórnar sé að gæta hagsmuna allra kröfuhafa bankans. Ný stjórn kosin í október Samkvæmt nauðasamningum Straums, sem samþykktir hafa verið af héraðsdómi, verður Straumi skipt upp í tvö félög. Annars vegar eigna- umsýslufélagið ALMC hf. og nýjan fjárfestingabanka sem ber nafnið Straumur IB hf. Straumur IB mun taka yfir alla fjárfestingabankastarf- semi Straums, en mun þurfa að fá nýtt bankaleyfi frá Fjármálaeftirlit- inu. Allar eignir munu hins vegar liggja eftir í ALMC, sem verður að fullu í eigu kröfuhafa Straums. Nýi bank- inn, Straumur IB, verður dótturfélag ALMC. Helstu kröfuhafar bankans, sem áttu 1,3 milljarða evra kröfur í hann, nærri 200 milljarða króna, munu hér eftir fara með eignir hans. Boðað hef- ur verið til fyrsta hluthafafundar, þar sem nýir eigendur ALMC munu kjósa nýja stjórn, þann 5. október. Morgunblaðið/Sverrir Mál Að minnsta kosti 1.500 dómsmál tengd gömlu bönkunum þremur eiga eftir að fara í gegnum íslenska dómskerfið, að mati Árna Tómassonar. Örlög Straums eru fyrirmynd  Langur tími mun líða þar til lánar- drottnar geta tekið yfir stóru bankana „Þau lifðu af jarðskjálfta, erfiða veðráttu og eldgos sem stoppaði flugsamgöngur á stórum hluta hnattarins, en það virðist vera sem áætlanir um stórt, íslenskt gagna- ver hafi verið skotnar niður af miklum ólíkindatólum; þeirra eigin stjórnmálamönnum.“ Á þessum orðum hefjast skrif pistlahöfund- arins David Cherniocoff, sem gerir ákvörðun IBM um að slíta samstarf- inu við Verne Holding vegna skattaumhverfis hér á landi að um- ræðuefni. Chernicoff hefur í 20 ár skrifað um tæknitengd málefni við ágætan orðstír. Hann bendir á að netþjónar séu virðisaukaskatt- skyldir á Íslandi, ólíkt því sem tíðk- ast víðast. Chernicoff segir að því þurfi að breyta. „Ákvörðunin virð- ist vera í höndum fjármálaráðu- neytisins, sem hefur ekki ennþá tekið hana,“ skrifar hann á ZDNet, sem er með þekktari vefsvæðum á netinu er gera upplýsingatækni að umfjöllunarefni sínu. Fjármálaráðherra sendi á fimmtudag bréf til fyrirtækja á sviði gagnavera. Þar kom fram að samkeppnisstaða þeirra verði jöfn- uð og unnið sé að útfærslum að því. thg@mbl.is Gagnrýnir stjórnvöld Áætlanir um gagna- ver nú í uppnámi                                            !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +,0-1, ++2-01 0.-+3 +/-./ +4-1 ++5-0/ +-2.5+ +3,-23 +5.-+/ ++,-13 +,0-,0 ++2-54 0.-00/ +/-+24 +4-12, ++5-4+ +-2./0 +3/ +5.-4+ 0.5-+504 ++,-45 +,1-04 ++2-,/ 0.-0,, +/-0.0 +4-1/4 ++5-/1 +-2+11 +3/-51 +5+-.1 Sportbúðin Ódýra veiðibúðin Í leiðinni úr bænum Ódýrustu gervigæsirnar? Ódýrusta gæsaskotin? 2 3/4” - 42 gramma gæsaskot frá 1.895,- 3” - 50 gramma gæsaskot frá 2.395,- 2 3/4” - 24 gramma æfingskot frá 890,- Optima S12. Y/U tvíhleypa. Einn gikkur, val á milli hlaupa. Útdragari. Frábært verð. Aðeins 109.900. 5% staðgreiðsluafsláttur eða vaxtalausar afborganir til 6 mánaða. Beretta ES. Hálfsjálfvirk, bakslagsskift. Tekur 2 ¾“ og 3“ skot. 3 þrengingar fylgja. Verðlækkun. Aðeins frá 159.900. 5% staðgreiðslu- afsláttur eða vaxtalausar raðgreiðslur til 6 mánaða. Sportbúðin • Krókhálsi 5 • 517 8050 sportbudin.is Munið vinsælu gjafabréfin okkar 12 grágæsaskeljar með lausum hausum og öllum festijárnum á frábæru verði. Aðeins 17.900,- Léttöl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.