Morgunblaðið - 02.12.2010, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
Tilkynningum til barnavernd-
arnefnda fjölgaði um rúmlega 1%
fyrstu níu mánuði ársins 2010 sam-
anborið við fyrstu níu mánuði ársins
2009. Þetta er minni fjölgun en var í
samanburði fyrstu þrjá mánuði og
fyrstu sex mánuði áranna 2009 og
2010, en fjölgunin þá var um 3%.
Fram kemur á vef Barnavernd-
arstofu, að nokkur munur sé eftir
landsvæðum. Tilkynningum fækkaði
um tæplega 2% á höfuðborgarsvæð-
inu en fjölgaði um tæplega 7% á
landsbyggðinni.
Flestar tilkynningar voru vegna
áhættuhegðunar barna eða 47,1%
tilkynninga fyrstu níu mánuði ársins
2010, en 46,3% fyrstu níu mánuði
ársins 2009. Alls voru 31,3% tilkynn-
inga vegna vanrækslu fyrstu níu
mánuði ársins 2010, en 35,2% fyrstu
níu mánuði ársins 2009. Hlutfall til-
kynninga um ofbeldi var 21,1%
fyrstu níu mánuði ársins 2010, en
18,0% fyrstu níu mánuði ársins 2009.
Hlutfall tilkynninga vegna þess að
heilsu eða lífi ófædds barns var
stefnt í hættu var 0,5% fyrstu níu
mánuði ársins 2010, en 0,4% fyrstu
níu mánuði ársins 2009. Sam-
anlagður fjöldi barna sem tilkynnt
var um fyrstu níu mánuði ársins
2010 var 5773 börn, en sambærileg
tala fyrir árið 2009 var 5720 börn.
Oftast til-
kynnt um
áhættu-
hegðun
Nokkur munur
eftir landsvæðum
Morgunblaðið/Heiddi
Úthlutað var úr Þjóðhátíðarsjóði í gær en
alls bárust 273 umsóknir um styrki að fjár-
hæð samtals um 418 milljónir króna. Úthlut-
að var að þessu sinni 59 styrkjum að fjárhæð
samtals kr. 35 millj. kr. og hlutu eftirtaldir 8
aðilar (verkefni) hæstu styrkina, þ.e. 1 millj.
kr. hver:
Hugvísindastofnun Háskóla Íslands; v.
gagnasöfnunar og skráningar á íslensku
táknmáli. Ríkisútvarpið, Rás 1; v. þátta um
sögu Ríkisútvarpsins í tilefni 80 ára afmælis.
Ísl. tónverkamiðstöð; v. flutnings og varð-
veislu handrita í Þjóðarbókhlöðu. Ísl. land-
námshænan; til kynningarstarfs og ræktun-
ar á Vatnsnesi. Fræðslufélag um forystufé;
til uppbyggingar fræðaseturs í Þistilfirði.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum; til að skrásetja
í gagnagrunn allar fornleifar þjóðgarðsins.
Sauðfjárræktarfélag Hrunamanna; til
endurgerðar á Hrunaréttum og varðveislu á
eyktanöfnum og notkun sólarklukku. Þjóð-
minjasafn Íslands; til að skrá og nýta heim-
ildir um jörð og byggingar að Þverá í Lax-
árdal og setja upp sýningu.
Hænur og handrit
Ljósmynd/Jóhanna Bergmann
Í Þjóðmenningarhúsinu Jóhanna Sigurðardóttir flutti ávarp við athöfnina.
Fjölbreytt viðfangsefni styrkþega Þjóðhá-
tíðarsjóðs 35 milljónum króna úthlutað
Rangt var farið með tölur í blaðinu í
gær í frétt um útreikninga Sjálf-
stæðismanna á auknum kostnaði
dæmigerðrar barnafjölskyldu vegna
hækkana hjá Reykjavíkurborg. Alls
vantaði hækkanir upp á kr. 19.522 en
lokatalan var hins vegar rétt, árs-
hækkun upp á kr. 165.322.
Sleppt var liðunum leikskólagjald
vegna barns 2, sem áður var nið-
urgreitt 100% en verður nú nið-
urgreitt 75%, þetta merkir nýjan
kostnað upp á kr. 59.840 yfir árið.
Einnig var sleppt liðunum Sund,
Fjölskyldu- og húsdýragarður,
Menningarkort og Sumarnámskeið,
hækkanir á þeim valda samtals
kostnaðarauka upp á alls kr. 13.440
yfir árið. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Rangar tölur
LEIÐRÉTT