Morgunblaðið - 23.12.2010, Síða 28

Morgunblaðið - 23.12.2010, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010 Frænka mín Aðal- heiður Sigurðardóttir hefur kvatt okkur eftir langa en við- burðaríka ævi. Hún fæddist á Set- bergi á Skógarströnd hinn 10. júlí 1912 hjá móðurforeldrum sínum Mar- íu Andrésdóttur og Daða Daníelssyni. Hún var dóttir föðursystur minnar, Ingibjargar Daðadóttur frá Setbergi, og Sigurður Magnússonar ættuðum frá Ísafirði og var önnur í röðinni af fimm systrum sem allar eru látnar. Aðalheiður ólst upp við ástríkt heimili á Kárstöðum þar sem foreldar henn- ar bjuggu rausnarbúi. Hún fór ung að vinna fyrir sér og tókst með harðfylgi að vinna sér inn álitlega peningaupp- hæð sem hún varði til að mennta sig á húsmæðraskóla. Theodóra móður- systir hennar sem þá bjó ásamt manni sínum í Elliðaey hvatti hana óspart til að mennta sig en hjá þeim hafði Aðalheiður verið á annað ár sem kaupakona. Þetta var í kreppunni og lífið var ekki auðvelt. Aðalheiði sagð- ist svo frá að á fyrstu búskaparárum sínum hefði hún orðið að láta frá sér sparifötin fyrir skömmtunarmiðum til að eiga fyrir mat. Svo hörð var krepp- an á Íslandi. Öll él styttir upp um síðir og sólin skín í heiði. Aðalheiður hitti mannsefni sitt Stefán Siggeirsson og giftu þau sig árið 1933 í Stykkishólmi þar sem þau bjuggu æ síðan. Aðal- heiður var listfeng og var mikil hann- yrðakona. Hún kenndi m.a. fatasaum á húsmæðraskólanum á Staðarfelli og nutu skólastúlkurnar góðs af kunn- áttu hennar sem svo dreifðist um landið og prýddi margt heimilið. Fjór- ir ættliðir bjuggu saman í Stykkis- hólmi. María, Ingibjörg, Aðalheiður og Birna systurdóttir hennar sátu oft saman og göldruðu fram fegurstu hluti með hannyrðum sínum. Ullin var spunnin af eldri konunum af mik- illi leikni og úr því gert fegursta lista- verk sem ég er svo lánsöm að eiga ör- lítið sýnishorn af og mörg flíkin rann af höndum Aðalheiðar. Aðalheiður var í kirkjukórnum, hafði góða sópr- Aðalheiður Sigurðardóttir ✝ Aðalheiður Sig-urðardóttir fædd- ist á Setbergi, Skóg- arströnd, 10. júlí 1912. Hún lést á St. Franciskusspít- alanum í Stykk- ishólmi 1. desember 2010. Útför Aðalheiðar fór fram frá Stykk- ishólmskirkju 14. des- ember 2010. anrödd og söng ein- söng þegar svo bar við. Þau hjónin voru fé- lagslynd og tóku mik- inn þátt í félagsmálum í Stykkishólmi. Já- kvæðni og menningar- legar umræður ein- kenndu heimilið. Þau gengust fyrir happ- drætti og gekk ágóðinn allur til hótelbygging- arinnar í Stykkishólmi. Aðalvinningur var eyja á Breiðafirði. Stefán stundaði fyrst búskap. Eftir að hann brá búi ók hann rútunni milli Stykkishólms og Reykjavíkur. Síðar tók hann að sér rekstur bens- ínstöðvarinnar í Stykkishólmi. Alltaf var heimili þeirra opið frændfólkinu sem kom þyrst og ferðlúið úr fjar- lægum sveitum og urðu jafnan fagn- aðarfundir með rausnarlegum mót- tökum. Stefáns naut ekki lengi við en hann lést skyndilega árið 1973. Þeim varð ekki barna auðið en tóku í fóstur Birnu systurdóttur Aðalheiðar. Eftir andlát Stefáns hélt Aðalheiður heimili með foreldrum sínum þar sem hún hugsaði um þau af stakri natni og ræktarsemi. Blómin prýddu glugg- ana sínu fegursta og grænmetið í garðinum bar ríkulegan ávöxt. Að lokum þökkum við frændfólkið frá Miðhúsum elskulegri frænku minni fyrir samfylgdina. Ólína Kristín Jónsdóttir. Aðalheiður Sigurðardóttir var góð vinkona mín. Ég minnist hennar fyrst frá æskuárunum þegar hún rak ásamt manni sínum Stefáni Siggeir- syni stórt kúabú í Stykkishólmi. Þangað var ég sendur með mjólkur- brúsa til að sækja spenvolga nýmjólk, sem Aðalheiður hellti í brúsann hjá mér. Um leið sagði hún alltaf eitthvað fallegt við strákinn, eitthvað sem skildi eftir sig góðar tilfinningar, og núna, að leiðarlokum, á ég hugljúfar minningar um þessa sérstöku og lífs- reyndu konu. Á þessum árum var Að- alheiður full af lífskrafti og þá, eins og æ síðar, virðuleg og yfirveguð. Stefán, sem var búfræðingur að mennt, lést á miðjum aldri og síðustu fimm áratug- ina, sem er langur tími af mannsæv- inni, þurfti Aðalheiður að standa á eigin fótum, en var lengst af í tengslum við Birnu, fósturdóttur sína og fjölskyldu hennar. Foreldrar Að- alheiðar, þau Ingibjörg Daðadóttir og Sigurður Magnússon á Kársstöðum, bjuggu einnig hjá Aðalheiði meðan þeim entist aldur, en langlífi hefur verið áberandi í þessari fjölskyldu. Síðustu árin dvaldi Aðalheiður á Dvalarheimili aldraðra í Stykkis- hólmi, og núna um nokkurt skeið áður en hún lést hafði ég mikla ánægju af að heimsækja hana og borðfélaga hennar í þrjú-kaffi, þar sem hver og einn hafði sitt ákveðna sæti. Og þar spjölluðum við um lífið og tilveruna, um veðrið, um náungann, um ástand þjóðarbúsins en aðallega rifjuðum við upp skemmtilegar endurminningar frá liðnum árum. En þótt líkamlegri heilsu Aðalheiðar hafi hrakað mjög síðustu árin fann ég aftur þessa ein- stöku hlýju sem geislaði út frá henni og skemmtilegar svipbreytingar á andlitinu þegar við spjölluðum saman um dægurmálin og rifjuðum upp ein- stök atvik úr fortíðinni. Og nú er stóll- inn hennar í borðsalnum auður um sinn, en minningin um þessa hugljúfu konu lifir áfram. Og þá er þessu lokið, kæra vinkona. Ég geymi minningarnar og er þakk- látur fyrir þessar stundir sem við gát- um rabbað saman. Vertu sæl, Aðal- heiður. Guð geymi þig. Bragi Jósepsson. Komið er að kveðjustund kærrar vinkonu minnar, Aðalheiðar Sigurð- ardóttur eða Öllu eins og hún var köll- uð. Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Öllu, hún gaf af sér einstak- lega hlýtt og kærleiksríkt viðmót og aldrei var húmorinn langt undan. Það var svo hlýlegt og notalegt að kíkja yfir til Öllu og spjalla um daginn og veginn eða lífsins gildi, hún hafði svo margt að gefa af sér. Alla sat aldrei auðum höndum. Hún var alltaf að búa til eitthvað fallegt, prjóna vettlinga og sokka eða vinna að einhverjum hannyrðum. Alla kenndi mér mörg góð gildi í lífinu. Ég hef alla tíð litið til Öllu sem fyrir- myndar, hún var svo jákvæð, um- hyggjusöm og trú sínum lífsgildum. Þannig hef ég reynt að feta í fótspor hennar. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við þökkum þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og á ókomnum árum eigum við eftir að ylja okkur við dýrmætar minningar um okkar ógleymanlegu samveru- stundir. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Þínir vinir, Hafrún Bylgja og Haukur Páll. Nú þegar komið er að því að kveðja Ás- laugu koma upp í hug- ann ótalmargar minn- ingar. Fyrsta minningin er um fallega og glæsilega konu með sterkan perónu- leika. Konu sem var alltaf bæði hlý og góð. Áslaug var mjög myndarleg hús- móðir og hafði mikinn metnað varð- andi allt sitt heimilishald. Hún var mikil hannyrðakona og voru margir fallegir og vandaðir hlutir sem prýddu heimili þeirra Agnars því til sönnunar. Þó að Agnar væri föðurbróðir minn fannst mér Áslaug alltaf vera jafn- skyld mér og hann. Þau hafa alltaf til- heyrt lífi mínu og alltaf verið traust og trygg eins og bestu foreldrar. Þegar ég var aðeins eins árs gömul var ég í pössun hjá þeim um tíma og aftur þriggja ára, þegar móðir mín lá á sæng, og hefur það sennilega bund- ið okkur sterkari böndum en ella, allavega sagði Áslaug oft að hún hefði viljað eignast mig. Það var líka hægt að treysta þeim Agnari fyrir ýmsum málum, þau brugðust aldrei þeim sem sýndu þeim trúnað. Þeim varð ekki barna auðið, en þau létu börnin í fjölskyldum sínum skipta sig því meira máli. Áslaug og Agnar áttu í mörg ár sumarbústað við Elliðavatn og síðar við Laugarvatn. Þar undu þau sér einstaklega vel, því bæði höfðu mik- inn áhuga á blóma- og trjárækt. Lögðu þau mikla vinnu í að rækta og fegra umhverfið þar og uppskáru mikinn og fallegan unaðsreit, þar sem þau dvöldu yfirleitt um hverja helgi öll sumur. Mikið heilsuleysi hrjáði Áslaugu hin síðari ár, en hún sýndi þá og sann- aði einu sinni enn hversu andlega sterk hún var. Hún þraukaði áfram árum saman, búin að mestu að missa sjónina og illa haldin af parkinsons- sjúkdómi, en vildi aldrei gefast upp, var alltaf dugleg og vildi helst ekki tala um veikindi sín. Áslaug naut að sjálfsögðu aðstoðar Agnars eiginmanns síns, sem í öllum hennar veikindum stóð við hlið henn- ar eins og klettur og vildi allt fyrir Áslaug Árnadóttir ✝ Áslaug Árnadótt-ir fæddist í Reykjavík 6. júní 1917. Hún andaðist á elli- og dvalarheim- ilinu Grund 13. des- ember 2010. Útför Áslaugar fór fram frá Fossvogs- kirkju 21. desember 2010. hana gera, þótt hann væri sjálfur alvarlega heilsuveill. En þannig voru þau, alltaf óað- skiljanleg og sterk saman. Elsku Agnar, missir þinn er mikill og ég og fjölskylda mín sendum þér okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja þig og leiða þessi erfiðu spor. Ég vil þakka Ás- laugu allar samveru- stundirnar, þakka fyrir að fá að vera hluti af lífi þeirra Agnars. Guð blessi minningu hennar. Theodóra og fjölskylda. Fallin er frá Áslaug Árnadóttir ömmusystir mín, síðust af systkinum sínum. Pabbi hélt mikið upp á Ás- laugu móðursystur sína og kallaði hana alltaf stórfrænku. Það var ekki vegna stærðar heldur vegna kær- leika. Það var mikill samgangur milli foreldra minna og Áslaugar og Agn- ars, mannsins hennar. Þau komu oft í heimsókn til foreldra minna og við fórum oft í heimsókn til þeirra. Við heimsóttum þau líka oft í sumarbú- staðinn þeirra uppi við Elliðavatn og þær stundir hafa í huga mér verið umkringdar ævintýrablæ. Ég tók strax á unga aldri eftir því að Áslaug og Agnar voru heimsborgarar. Mér fannst það ákaflega spennandi hversu mikið þau ferðuðust og virtust þaulkunnug stórborgum á við Kaup- mannahöfn og London. Það var því ekki eins ótrúlegt og ætla mætti að í minni fyrstu ferð til London hitti ég þau hjónin við morgunverðarborðið á hótelinu og urðu fagnaðarfundir. Nokkrum árum seinna flutti ég til London og var þar við nám. Mikið fannst mér gaman þegar þau hjónin komu til London og ég fékk að kynn- ast borginni með þeim. Þá var mér boðið með á söfn, í leikhús og út að borða á fín veitingahús, nokkuð sem fátækur námsmaður gat bara látið sig dreyma um. Þessi heimsókn er ógleymanleg og ég á ennþá jólasvein- inn sem Áslaug vildi endilega kaupa handa mér og eins og ævinlega um jólin þá er hann kominn upp á ar- inhilluna og lýsir upp hjá mér aðvent- una. Áslaug var heppin að eiga trygg- an mann sem þrátt fyrir sjóndepurð heimsótti hana á Grund eins oft og hann gat gangandi frá Vesturgöt- unni. Ég og fjölskylda mín vottum Agnari innilega samúð. Jóna Freysdóttir. Í dag kveðjum við einn af heiðursfélögum okkar, frú Ester Kláus- dóttur, sem lést á heim- ili sínu í Hafnarfirði, 88 ára að aldri. Ester var ötull baráttu- maður slysavarna alla sína starfsævi. Hún starfaði í hálfa öld með slysa- varnadeildinni Hraunprýði hér í Hafnarfirði, sem meðstjórnandi frá árinu 1964-1970, varaformaður frá 1970-1986 og formaður deildarinnar frá 1986-1992, síðan varaformaður 1992-1993. Hún var líka einn af helstu frumkvöðlum stofnunar unglinga- deildarinnar Björgúlfs. Það er göfugt málefni að starfa í slysavarnadeild, en Hraunprýði er einnig mjög lifandi og skemmtilegur félagsskapur, sem hef- ur í áranna rás safnað ómældum fjár- Svanlaug Ester Kláusdóttir ✝ Ester fæddist íViðey 30. apríl 1922. Hún andaðist á heimili sínu, Fjarð- argötu 17, 8. desem- ber 2010. Jarðarför Esterar fór fram frá Víði- staðakirkju 17. des- ember 2010. hæðum og látið þær renna til ýmissa slysa- varna og björgunar- starfa hér í bæ, víða um land og til heildar- samtakanna. Greind og ákveðin sem forystukona í deildinni og SVFÍ í langan tíma lagði hún mótandi hönd á afar margt til framfara í slysavarna- og björg- unarmálum. Frá árinu 1982 til 1990 gegndi hún embætti varafor- seta Slysavarnafélags Íslands og var gerð að heiðursfélaga SVFÍ á lands- þingi í Hafnarfirði árið 1992. Hugsjón hefur alltaf knúið starf okkar í Hraunprýði áfram, hana átti Ester í ríkum mæli sem og skapfestu. Hún var mjög góð í upplestri, bæði á ljóðum og sögum, enda fengu hinir heiðursfélagarnir hana alltaf til að tala fyrir þeirra hönd á afmælis- og jólafundum deildarinnar, en svdk. Hraunprýði er einmitt 80 ára í dag. Við Hraunprýðikonur þökkum Ester öll þau ár sem við máttum njóta starfskrafta hennar og kveðjum hana með virðingu. Fjölskyldu hennar sendum við innilegar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning hennar. Kristín Gunnbjörnsdóttir, formaður slysavarna- deildarinnar Hraunprýði, Hafnarfirði. Við fráfall Esterar Kláusdóttur rifjast upp minningar frá þeim tíma er við vorum bæði virk í starfi á vett- vangi Slysavarnafélags Íslands. Einkum áttum við mikið og gott sam- starf er við gegndum störfum forseta og varaforseta félagsins á árunum 1982-1990 og myndaðist þá vinátta milli okkar sem hélst alla tíð síðan sem ég er ákaflega þakklátur fyrir. Ester hafði áður lengi starfað innan félagsins, aðallega innan kvenna- deildarinnar í Hafnarfirði, Hraun- prýði, en þar var hún formaður um nokkurra ára skeið. Sú deild var lengi ein af traustustu stoðum Slysavarna- félagsins og lagði drjúgan skerf til margra góðra mála, er unnið var að innan félagsins í áranna rás. Lét deildin ekki við það eitt sitja að styðja slysavarna- og björgunarstarf í Hafn- arfirði heldur studdi hún og dyggi- lega slíkt starf víðsvegar um landið. Má þar nefna stuðning við byggingu neyðar- og skipbrotsmannaskýla, uppbyggingu björgunarsveita í fá- mennum byggðum, svo og eflingu Slysavarnaskóla sjómanna, sem ein- mitt var stofnað til er við Ester gegndum ofangreindum störfum. Hafði Ester lifandi áhuga á öllu er varðaði þessi mál og reyndi hvarvetna þar sem hún gat því við komið að afla þeim stuðnings. Ester var einörð og einlæg í mál- flutningi sínum og naut mikillar virð- ingar félaga sinna. Hún var glæsileg kona, ætíð frumleg og jákvæð og kunni vel að bera fyrir sig glettni. Var jafnan vel tekið eftir því sem hún hafði til málanna að leggja á fundum okkar og þar var hún hrókur alls fagnaðar. Hún hafði mikinn áhuga á að laða æskufólk til starfa innan fé- lagsins og hvatti mjög til stofnunar unglingadeilda, m.a. í heimabyggð sinni. Í dag er starf slíkra deilda mik- ilvægur þáttur í starfi Slysavarna- félagsins Landsbjargar. Rétt er og að geta þess að Ester var eindreginn stuðningsmaður þess að Slysavarna- félag Íslands stefndi að sameiningu allra björgunarsamtakanna í landinu og var það markmið samþykkt á landsþingi félagsins 1990 er við létum af störfum í stjórn þess. Þegar sam- einingin átti sér stað síðar með stofn- un Slysavarnafélagsins Landsbjargar fagnaði hún því mjög og taldi það heillaspor. Á kveðjustund hugsum við hjónin með þakklæti og söknuði til samveru- stunda með Ester Kláusdóttur sem voru okkur dýrmætar og gefandi. Auðvitað voru slíkar stundir oftast tengdar starfi innan félags okkar en einnig eru okkur ofarlega í huga gleðistundir með henni í faðmi fjöl- skyldunnar þar sem söngurinn var jafnan í hávegum hafður. Við sendum börnum hennar og öllum aðstandend- um innilegar samúðarkveðjur. Haraldur Henrysson. Allt frá stofnun Slysavarnafélags Íslands árið 1928 hafa konur tekið þátt í störfum þess. Jón E. Berg- sveinsson, hinn mikli hugsjóna- og baráttumaður og brautryðjandi, gerði sér grein fyrir því, að með stofn- un sérstakra kvennasamtaka innan félagsins gætu konur lyft margföldu grettistaki í þágu málstaðarins. Jón hvatti konurnar til dáða. Þær brugð- ust vel við herhvötinni; þeim rann blóðið til skyldunnar og á fáum árum spruttu upp kvennadeildir Slysa- varnafélagsins um allt land. Framlag kvennadeildanna verður aldrei metið til fulls. Í störfum mínum fyrir Slysavarna- félagið kynntist ég mörgum hinna þrautgóðu baráttukvenna vítt og breitt um landið. Ein þeirra var Ester Kláusdóttir í Hafnarfirði. Hún starf- aði þar í kvennadeildinni og lagði að lokum að baki farsælt hálfrar aldar starf. Ester var prúð og hæglát í allri framgöngu en föst fyrir og ákveðin þegar til kastanna kom; lét ekki sinn hlut í hugsjónaríkum baráttumálum. Stofnun kvennadeildanna var mik- ið gæfuspor. Þær hafa lagt ómetan- legt starf af mörkum, sem aldrei verð- ur fullþakkað. Örlygur Hálfdánarson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.