Morgunblaðið - 23.12.2010, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 23.12.2010, Qupperneq 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Bókin Skáldsaga um Jón ber eflaust einn af lengri undirtitlum jóla- bókaflóðsins í ár: & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma. Sá Jón sem hér um ræðir er séra Jón Steingrímsson en höfundur bók- arinnar, Ófeigur Sigurðsson, komst fyrst í kynni við eldklerkinn á ung- lingsaldri. „Hann hefur fylgt mér mjög lengi, enda margslunginn og áhugaverður maður sem margt er hægt að læra af. Ég vissi af honum þegar ég var í dauðarokkinu sem unglingur og þá þótti maður sem bar viðurnefnið „eldklerkur“ mjög spennandi per- sóna,“ segir höfundurinn og hlær. „En svo kynntist ég honum nánar þegar ég var í íslensku í Háskól- anum, þá opnaði Matthías Viðar æfi- söguna fyrir mér og sýndi fram á hversu víðtæk, djúp og nákvæm hún er. Við síðari tíma lestur heillar mig síðan mest hversu ástríðufullur, ást- ríkur og ástfanginn Jón er af Þórunni konu sinni og hvað hann dáir hana mikið.“ Skáldsaga um Jón segir frá því ári þegar klerkurinn dvaldi í helli í Mýr- dal veturinn 1755-1756 en þar hefst hann við á meðan Katla gýs og sveip- ar landið dimmum skugga. Jón hafði verið á leið suður eftir að hafa misst djáknaembættið í Reynistaðaklaustri fyrir að hafa barnað Þórunni, ekkju klausturhaldarans. Þau létu gefa sig saman en voru síðan grunuð um að hafa valdið dauða mannsins og þótti best að hafa sig á brott. „Jón stendur þarna á tímamót- um, eins og raun- ar landið sjálft. Hann skrifar bréf til konu sinnar, sem átti að koma á eftir honum suður, en þar sem þessi bréf eru ekki til hef ég tekið mér skáldaleyfi og byggi þau á heimildum úr ævisögu hans,“ segir Ófeigur og bætir því við að reyndar standi sárafátt um dvölina í hellinum í ævisögunni. „Þetta er bara lítil klausa þar sem stendur að þeir hafi átt hið rólegasta og besta líf í hell- inum. Þó glittir í það sumstaðar að hann hafi ekki setið auðum höndum heldur stundi skriftir af miklu kappi og byggir upp býlið en Jón var mikill hleðslumeistari. En þegar hann kem- ur þarna í Mýrdalinn tekur Katla að gjósa og samkvæmt annálum og heimildum er þetta einn versti vetur sem Ísland hefur séð. Þannig að þetta fer ekki alveg saman.“ Samanfléttað tungutak „Það sem er merkilegt er að þarna er Jón í hellinum að læra þýsku og þýða þýsk rit, hann skrifar um Kötlu- gosið, stundar fræðastörf og lærir lækningar með aðstoð frá Bjarna Pálssyni, fyrsta landlækninum. Hann er einn af upphafsmönnum upplýs- ingarinnar á Íslandi og að upplýs- ingin skuli nánast eiga sér upphaf þarna í þessum helli neðanjarðar, í svartamyrkri vegna öskufallsins frá Kötlu, er mjög ljóðrænt; að landið lýsist upp innan frá.“ Ófeigur segir andann í skáldsög- unni byggðan á heimildum, t.d. ævi- sögunni og skrifum Jóns um Kötlu- gosið, en að efnið, t.d. bréf hans til Þórunnar, sé alfarið skáldað. Hann lagði þó mikla vinnu í það að flétta saman heimi Jóns og skrifum sínum. „Ég vildi ekki reyna að skrifa al- farið í 18. aldar stíl þannig að ég væri að blekkja lesandann eins og bréfin væru raunverulega til. Ég vildi að það sæist á textanum að bréfin væru skálduð í nútímanum en til þess að gefa þeim rétta yfirbragðið reyndi ég að flétta orðtaki mínu og Jóns Stein- grímssonar saman.“ En ætlaði hann að setja lengdar- met með undirtitlinum? „Nei,“ segir hann og hlær. „Bókin hét nú fyrst bara Jón. En svo bættist við að þetta væri skáldsaga, svo fólk héldi ekki að þetta væri ævisaga. Og síðan varð þetta bara að svona í 18. aldar stíl, en í þá tíma voru und- irtitlar eins og kápubökin eru í dag. Þetta er innihaldslýsing bókarinnar á knappasta formi.“ Upplýsingin hófst nán- ast í helli neðanjarðar Morgunblaðið/Kristinn Ófeigur Sigurðsson Hefur ritað skáldsögu um ársdvöl eldklerksins í helli í Mýrdal. Síðdegi Vilborgar Dagbjarts-dóttur er ekki þykk bók ogskáldskapurinn við fyrstusín áreynslulítill og hvers- dagslegur. En þegar ljóðin eru lesin sést glögglega að þau eru verk þroskaðs og öruggs skálds, það er dýpt í þessum fallegu ljóðum og í heimunum sem opnast lesandanum. Síðdegi er skipt í þrjá hluta. Sá fyrsti, „Fjallkonan“, er ljóð í átta hlutum og var ort um fornkonu sem fannst á Vestdalsheiði árið 2004; það var frumflutt af annarri Fjallkonu á Austurvelli. Meginhluti bókarinnar kallast „Í haustvindinum“. Þetta er áhrifarík- ur bálkur 18 ljóða og prósa. Þarna gengur hauströkkrið hljóðlega inn í hús ljóðmælanda í einu ljóðinu, í öðru er ort um aspir nágrannans en „Þegar kvöldar / slöngva þær / þétt- riðnu neti / upp í dimmblátt / him- indjúpið // Fáeinar stjörnur / glitra eins og maurildi / í svörtum möskv- unum.“ Þarna er ljóð um sorgina sem er falin en er „myrk og köld / upp- spretta // Hylur sem aldrei hemar yfir“. Og drifhvít sængurver grann- ans kalla á skáldið: „rétt eins og óskrifuð blöð / sem biðja mig um ný ljóð“. Lokahluti síðdegis er hækuflokk- urinn „Árstíðirnar í húsinu“ og er þar að hefð hækuskálda ort af inn- lifun um nærumhverfið á öllum tím- um árs. Þessi vísar á jólin: Þorratunglið fullt eins og laufabrauðskaka á skreyttum borðdúk. Glitrandi stjörnur Síðdegi bbbbn Eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur. JPV útgáfa, 2010. 57 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON LJÓÐABÓK Vilborg Dagbjartsdóttir Jón Steingrímsson fæddist árið 1728 á Þverá í Blönduhlíð og lést 1791. Hann er hvað þekkt- astur fyrir að hafa stöðvað hraunstraum með eldmessu sinni þann 20. júlí 1783 sem að óbreyttu hefði eyðilagt kirkjuna á Prestbakka og nálæga byggð. Stöðvaði hraunið ELDKLERKURINN METSÖLULISTI BÓKAVERSLANA byggir á upplýsingum frá flestum bókaverslunum landsins og öðrum verslunum sem selja bækur (stórmörkuðum, bensínstöðvum o.fl.) . Þessar verslanir eru eftirtaldar: Bókabúð Máls og menningar, Bókabúðin Iða, Bóksala stúdenta, Bónus, Hagkaup, Krónan, Kjarval, Nóatún, N1, Nettó, Office 1, Penninn - Eymundsson og Samkaup. Rannsóknasetur verslunarinnar tekur saman listann fyrir Félag íslenskra bókaútgefenda. Metsölulisti Félags bókaútgefenda 13. - 19. desember Allar bækur 1 Furðustrandir - Arnaldur Indriðason / Vaka-Helgafell 2 Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir / Veröld 3 Léttir réttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir / Hagkaup 4 Gunnar Thoroddsen - Guðni Th. Jóhannesson / JPV útgáfa 5 Lífsleikni Gillz - Egill Gillz Einarsson / Bókafélagið 6 Eldað með Jóa Fel - Jóhannes Felixson / Hjá Jóa Fel 7 Þokan - Þorgrímur Þráinsson / Mál og menning 8 Svar við bréfi Helgu - Bergsveinn Birgisson / Bjartur 9 Stelpur! - Þóra Tómasdóttir/Kristín Tómasdóttir / Veröld 10 Ertu Guð, afi? - Þorgrímur Þráinsson / Vaka- Helgafell Íslensk skáldverk 1 Furðustrandir - Arnaldur Indriðason / Vaka-Helgafell 2 Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir / Veröld 3 Svar við bréfi Helgu - Bergsveinn Birgisson / Bjartur 4 Ljósa - Kristín Steinsdóttir / Vaka- Helgafell 5 Morgunengill - Árni Þórarinsson / JPV útgáfa 6 Handritið að kvikmynd ... - Bragi Ólafsson / Mál og menning 7 Mér er skemmt - Einar Kárason / Mál og menning 8 Heimanfylgja - Steinunn Jóhannesdóttir / JPV útgáfa 9 Mörg eru ljónsins eyru - Þórunn Valdimarsdóttir / JPV útgáfa 10 Önnur Líf -Ævar Örn Jósepsson / Uppheimar Barnabækur 1 Þokan - Þorgrímur Þráins- son / Mál og menning 2 Stelpur! - Þóra Tómasdóttir/Kristín Tómasdóttir / Veröld 3 Ertu Guð, afi? - Þorgrímur Þráinsson / Vaka- Helgafell 4 Jólasyrpa 2010 - Disney / Edda 5 Lítil saga um latan unga - Guðrún Helgadóttir / Vaka-Helgafell 6 Artemis Fowl - Atlantisduldin - Eoin Colfer / JPV útgáfa 7 Jólasmásyrpa - Disney / Edda 8 Töframaðurinn - Michael Scott / JPV útgáfa 9 Aþena - Hvað er málið með Haiti? - Margrét Örnólfsdóttir / Bjartur 10 Goðheimar 1 - Úlfurinn bundinn - Peter Madsen / Iðunn Þýdd skáldverk 1 Hreinsun - Sofi Oksanen / Mál og menning 2 Dávaldurinn - Lars Kepler / JPV útgáfa 3 Hjartaþeginn - Mary Higgins Clark / Bifröst 4 Maðurinn sem var ekki morðingi - Hjorth & Rosenfeldt / Bjartur 5 Danskennarinn snýr aftur - Henning Mankell / Mál og menning 6 Hringnum lokað - Michael Ridpath / Veröld 7 Gleðileikurinn guðdómlegi - Alighieri Dante / Mál og menning 8 Borða, biðja, elska - Elisabeth Gilbert / Salka 9 Sigurvegarinn stendur einn - Paulo Coelho / JPV útgáfa 10 Fæddur í dimmum skugga - Andrea Busfield / JPV útgáfa Fræði og almennt efni 1 Léttir réttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir / Hagkaup 2 Lífsleikni Gillz - Egill Gillz Einarsson / Bókafélagið 3 Eldað með Jóa Fel - Jóhannes Felixson / Hjá Jóa Fel 4 Útkall - Pabbi hreyflarnir loga - Óttar Sveinsson / Útkall 5 Eyjafjallajökull - Ari Trausti Guðmundsson & Ragnar Th. Sigurðsson / Uppheimar 6 Dömusiðir Tobbu - Þorbjörg Alda M arinósdóttir / Bókafélagið 7 Spilabókin - Þórarinn Guðmundsson / Bókafélagið 8 Stóra Disney matreiðslubókin - Ýmsir höfundar / Edda 9 Einfalt með kokkalandsliðiðinu - Ýmsir höfundar / Sögur 10 Hver er ég? - Gunnlaugur Guðmundsson / Útkall Æviminningar 1 Gunnar Thoroddsen - Guðni Th. Jóhannesson / JPV útgáfa 2 Þóra biskups og raunir íslenskrar.... - Sigrún Pálsdóttir / JPV útgáfa 3 Alvara leiksins - ævisaga Gunnars Eyjólfssonar - Árni Bergmann / JPV útgáfa 4 Jónína Ben - Sölvi Tryggvason / Sena 5 10.10.10 - atvinnumannssaga Loga Geirssonar - Henry Birgir Gunnarsson / Vaka-Helgafell 6 Það reddast - Inga Rósa Þórðardóttir / Hólar 7 Með létt skap og liðugan talanda - Anna Kristine Magnúsdóttir / Hólar 8 Guðrún Ögmundsdóttir - Hjartað ræður för - Halla Gunnarsdóttir / Veröld 9 Á valdi örlaganna - Þórunn Sigurðardóttir / JPV útgáfa 10 Í ríki óttans - Magnús Bjarnfreðsson / Hólar  Skáldsaga um eldklerkinn Jón Steingrímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.