Morgunblaðið - 29.12.2010, Blaðsíða 5
Eignastýring Íslandsbanka 440 4900
eignastyring@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is/fjarfestingar
Eignastýring
Íslandsbanka
mun heitaVÍB
á nýju ári
VÍB verður öflug eining með skýra aðgreiningu
eignastýringar frá annarri starfsemi Íslandsbanka.
Eignastýring Íslandsbanka mun starfa aftur
undir merkjumVÍB á nýju ári. Þessi breyting
er gerð til að skerpa enn frekar á aðgreiningu
eignastýringarstarfsemi frá annarri banka-
starfsemi. Á sama tíma verður starfsemi og
þjónusta einingarinnar efld enn frekar.
Áhrif á þjónustu
Eignastýring verður sem fyrr staðsett á Kirkju-
sandi og engin röskun verður á þjónustu við
viðskiptavini vegna nafnabreytingar.
Undir merkjumVÍB leitast eignastýringin við að
veita viðskiptavinum afburða þjónustu á sviði
sparnaðar, eignastýringar, verðbréfaviðskipta
og lífeyrisþjónustu með langtímaárangur að
leiðarljósi. VÍB verður einn stærsti og öflugasti
aðilinn á markaðnum á sviði eignastýringar þar
sem áhersla verður lögð á fagleg vinnubrögð og
fræðslu til fjárfesta.
Endurvakið vörumerki
Eignastýringarstarfsemi Íslandsbanka var
rekin undir merkjumVÍB á árunum 1986–2001.
VÍB var frumherji á sviði eignastýringar og þekkt
fyrir faglega nálgun með áherslu á fræðslu.
VÍB og síðar Eignastýring Íslandsbanka gaf
meðal annars út bækur og önnur rit um eigna-
stýringu, verðbréf og lífeyrismál sem var
dreift meðal viðskiptavina og voru auk þess
notaðar við kennslu í háskólum. Starfsemi VÍB
einkenndist alla tíð af vönduðum vinnubrögðum
í fjármálastarfsemi.
Aðgreining frá annarri starfsemi bankans
Tímasetning breytingarinnar er ekki tilviljun.
Á síðastliðnum tveimur árum hafa verið stigin
fjölmörg skref í því að styrkja undirstöður
eignastýringarstarfsemi Íslandsbanka og byggja
þannig umgjörð að traust geti ríkt um sjálf-
stæði og fagmennsku á hverjum tíma. Samhliða
því hefur mikil áhersla verið lögð á að styrkja
skipulag, verkferli, viðskiptakerfi, innra eftirlit og
áhættustýringu. Skýrari aðgreining eignastýr-
ingarstarfsemi Íslandsbanka frá annarri banka-
starfsemi er enn eitt skrefið í þessari þróun.
Við hvetjum þig til að hafa samband við
Eignastýringu í síma 440 4900 eða senda
okkur tölvupóst á eignastyring@islandsbanki.is
ef spurningar vakna.