Morgunblaðið - 29.12.2010, Page 34

Morgunblaðið - 29.12.2010, Page 34
34 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2010 Sudoku Frumstig 6 1 7 1 4 3 9 8 5 7 8 1 9 6 5 5 6 8 4 5 1 3 3 4 5 7 9 9 6 7 6 4 1 4 3 1 3 7 3 5 6 8 8 7 9 6 4 8 1 7 5 8 3 2 5 5 7 4 8 8 2 6 6 2 2 7 3 8 5 9 4 9 1 7 1 9 3 7 6 2 4 5 7 9 8 1 3 8 1 3 4 2 6 7 9 5 9 7 5 8 3 1 6 4 2 3 8 7 6 9 4 5 2 1 5 9 6 2 1 8 4 3 7 1 4 2 3 5 7 9 6 8 4 3 1 7 6 5 2 8 9 2 5 8 9 4 3 1 7 6 7 6 9 1 8 2 3 5 4 9 6 3 2 8 4 1 5 7 8 1 7 9 3 5 4 6 2 4 5 2 7 6 1 3 9 8 5 4 1 6 9 8 7 2 3 3 2 9 4 1 7 5 8 6 7 8 6 5 2 3 9 4 1 1 7 4 8 5 2 6 3 9 2 9 5 3 7 6 8 1 4 6 3 8 1 4 9 2 7 5 4 8 9 7 6 3 1 2 5 5 2 7 1 4 8 3 9 6 6 3 1 9 5 2 4 8 7 9 6 3 2 1 5 8 7 4 7 5 2 8 3 4 9 6 1 1 4 8 6 7 9 2 5 3 3 9 4 5 2 6 7 1 8 8 1 5 4 9 7 6 3 2 2 7 6 3 8 1 5 4 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 29. desember, 363. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Sá sem trúir á mig, – frá hjarta hans munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin segir. (Jh. 7, 38.) Merking orðasambandsins aðvera myrkur eða ómyrkur í máli virðist vera á fleygiferð um þessar mundir. Víkverji hefur skilið þetta orðasamband svo að sá, sem er ómyrkur í máli, tali tæpitungulaust. Að vera myrkur í máli hljóti þá að þýða hið gagnstæða. Víkverji hefur hins vegar tekið eftir því að nú fær- ist í vöxt að nota orðasambandið myrkur í máli í þeim skilningi að boða váleg tíðindi. x x x Nú síðast rakst Víkverji á frétta-tilkynningu um spá völvu Vik- unnar um næsta ár og stendur þar að hún sé „myrk í máli þegar horft er yfir árið 2011“. Hún mun sjá fyrir sér springandi ríkisstjórn, byltingu og óeirðir, en einnig óvænta pen- inga. Samkvæmt fréttatilkynning- unni hlýtur aftur á móti að vera ógerningur að lesa þetta út úr spánni vegna þess hvað völvan er „myrk í máli“ eða óræð. x x x Orðaskak heitir nýr leikur ámarkaðnum og hefur sam- kvæmt umbúðum unnið til fjölda verðlauna. Víkverji fór í þennan leik um jólin og hafði gaman af. Leik- urinn snýst um að sanka að sér orð- um og er meðal annars hægt að hnupla orðum frá andstæðingunum með því að bæta við þau stöfum, en um leið verður merking þeirra að breytast. Hnuplið getur leitt til mik- illa átaka, sérstaklega hjá yngstu keppendunum, enda í beinni mót- sögn við þá meginreglu að láta eigi eigur annarra í friði. x x x Víkverji verður reyndar að við-urkenna að honum er heldur ekkert um slíka hegðun gefið, sér- staklega þegar aðrir stunda hana en hann, enda er Víkverji tapsár með afbrigðum. Einnig urðu deilur um það hvenær orði hefur verið breytt nógu mikið til að það teljist hafa breytt um merkingu erfiðar. Orða- skak er því skemmtilegt spil, en get- ur leitt til víðtækara orðaskaks en ástæða er til að ætla að óreyndu. vík- verji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 stríðsfánar, 8 þreyttir, 9 lýkur, 10 nytja- land, 11 kaka, 13 stig, 15 for- aðs, 18 þor, 21 velur, 22 tappi, 23 þreytuna, 24 högna. Lóðrétt | 2 alda, 3 kroppa, 4 frek, 5 örskotsstund, 6 ríf, 7 vaxa, 12 veðurfar, 14 visinn, 15 bráðum, 16 ragur, 17 kvenvargur, 18 mannsnafn, 19 espast, 20 sívinnandi. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 grund, 4 bulls, 7 lúgur, 8 rykmý, 9 tám, 11 ilma, 13 árna, 14 krass, 15 þota, 17 skot, 20 hak, 22 forði, 23 öflug, 24 rúmið, 25 dýrin. Lóðrétt: 1 galli, 2 ungum, 3 durt, 4 barm, 5 líkur, 6 skýla, 10 ásaka, 12 aka, 13 áss, 15 þófar, 16 tærum, 18 kælir, 19 tágin, 20 hirð, 21 köld. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. g3 d5 2. Bg2 Rf6 3. Rf3 c6 4. 0-0 Bg4 5. d4 Rbd7 6. Rbd2 e6 7. He1 Be7 8. e4 0-0 9. e5 Re8 10. c3 c5 11. dxc5 Rxc5 12. Rb3 Hc8 13. Rbd4 Rc7 14. h3 Bh5 15. Re2 Dd7 16. Rf4 Bxf3 17. Dxf3 Hfd8 18. h4 b5 19. Be3 Ra4 20. He2 Bc5 21. Hf1 Bxe3 22. fxe3 Rb6 23. Rh5 Re8 24. Hef2 Hc7 25. Dg4 Rc4 26. Dg5 h6 27. Df4 De7 28. Bh3 Dc5 29. He2 Db6 30. b3 Ra5 31. g4 Kh7 32. g5 g6 Staðan kom upp í opnum flokki Ól- ympíumótsins í skák sem lauk í Khanty-Mansiysk í Rússlandi sl. októ- ber. Azerski stórmeistarinn Shak- hriyar Mamedyarov (2.756) hafði hvítt gegn indverska kollega sínum Kris- hnan Sashikiran (2.681). 33. gxh6! gxh5 34. Hg2 Rc6 35. Dg5 f5 36. Dg6+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sýndarmennska. A-Enginn. Norður ♠K1075 ♥G63 ♦1052 ♣ÁKD Vestur Austur ♠Á32 ♠DG984 ♥D7 ♥92 ♦G8 ♦ÁKD ♣976542 ♣G108 Suður ♠6 ♥ÁK10854 ♦97643 ♣3 Suður spilar 4♥. „Við köllum við lágum spilum,“ sagði vestur drjúgur með sig og henti spaða- ásnum í háum boga inn á mitt borð. Hugmyndin var góð, en tímasetningin afleit. Austur vakti á 1♠, suður sagði 2♥, vestur 2♠ og norður 4♥. Út kom ♦G og austur tók fyrstu þrjá slagina. Þriðji tígullinn vakti vestur til umhugsunar. Hann sá að enn einn tígullinn myndi tryggja fjórða varnarslaginn á ♥D. En myndi austur hafa sömu sýn? Vestur taldi ástæðulaust að treysta á hyggju- vit félaga síns og henti ♠Á eins og hverjum öðrum héppa. Austur lét sér skiljast að makker vildi tígul, en gat því miður ekki orðið við þeirri ósk. Það er auðvelt að gagnrýna vestur fyrir sýndarmennskuna, en austur hefði að skaðlausu mátt spila spaða í öðrum slag. Bæring Jóhann Björgvinsson, rafvirki, er þrítugur í dag en hann segist ekki hafa skipulagt neitt sér- stakt í tilefni dagsins enda hafi hann varla áttað sig á tímamótunum ennþá. „Þetta er ákveðið áfall, maður vill nú frekar vera nær tvítugu en þrítugur, nú fer maður að verða svolítið gamall.“ Bæring viðurkennir líka að afmælið hans hafi stundum átt það til að falla svolítið í skuggann af hátíðunum og hann leggi sig ekkert eftir því sjálfur að vekja at- hygli á því. „Þetta er náttúrlega svolítið spes, mað- ur er rétt að jafna sig á jólunum og alveg að koma áramót. Það er svolítið erfitt að gera mikið úr þessu og frekar að ég leyfi fólki bara að vita af mér heima um áramót- in, þá eru oft einhverjir sem kíkja við.“ Hann segist þó hafa átt marga góða afmælisdaga, oft í góðu brasi á fjöllum með félögum sínum og svo hélt konan hans, Guðbjörg Ólafsdóttir, óvænta en minnisstæða veislu fyrir hann á 25 ára afmælinu. Í dag segist Bæring hinsvegar ætla að setja börnin sín tvö í fyrsta sætið, þau Óla og Þóru, og fara með þau á jólaball. „Svo kemur örugglega eitthvað skemmtilegt upp á, það þarf ekkert að skipuleggja það sérstaklega því það er aldrei neitt leiðinlegt í kringum mann.“ una@mbl.is Bæring Jóhann Björgvinsson 30 ára Fer með börnin á jólaball Nýirborgarar Reykjavík Bjarki Hrafn fæddist 27. október kl. 22.10. Hann vó 3.915 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Ragnhildur Jóhann- esdóttir og Sveinn Orri Sveinsson. Flóðogfjara 29. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 0.25 3,4 6.38 1,1 12.49 3,3 19.09 1,1 11.22 15.38 Ísafjörður 2.36 1,8 8.46 0,7 14.46 1,9 21.21 0,6 12.07 15.03 Siglufjörður 4.59 1,2 10.57 0,3 17.20 1,1 23.33 0,3 11.52 14.44 Djúpivogur 3.37 0,6 9.45 1,7 15.57 0,7 22.31 1,9 11.01 14.59 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er ljóst að þú verður að leggja á þig talsverða aukavinnu til þess að klára þau verkefni sem þú hefur tekið að þér. Hafðu gætur á þínum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Sambönd verða fyrir truflunum. Leyfðu vinum þínum að umvefja þig kærleika. Ein- hver býður þér á skemmtun. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þig langar til að taka þátt í heillandi ævintýri, en veist að maður leikur sér ekki að eldi. Með því að lesa bók eða hlusta á sjálfs- hjálpardisk verður þú meðvitaðri. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er nauðsynlegt að huga að hverju smáatriði ef heildarútkoman á að vera rétt. Renni þér eitthvað úr greipum verðurðu að trúa því að eitthvað nýtt komi í staðinn. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þér sárna ummæli sem falla í samtali innan fjölskyldunnar. Ekki hika við að ræða sýn þína á framtíðina við þá sem eru hærra settir en þú. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ekki er ólíklegt að samtal í dag komi þér í uppnám eða í opna skjöldu. Þolinmæði er nauðsynleg næstu daga. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Allt sem tengist kennimarki og ímynd skiptir þig máli. Kynntu þér málavexti og þá mun fólk virða ákvarðanir þínar. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það skiptir sköpum að þú sért skorinorð/ur þannig að ekki fari á milli mála hvað þú meinar. Lífið er ekki alltaf auðvelt. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það kemst enginn hjá því að mæta örlögum sínum þegar þau berja að dyr- um. En vertu róleg/ur, erfiðleikar líða hjá og þú nærð aftur vopnum þínum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Fólkið í þínu nánasta umhverfi er þér sem fjölskylda og það skiptir máli hvað því finnst. Ekkert er þér jafndýrmætt og af- kvæmin. Farðu og sinntu þínu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Fullt tungl getur freistað þín til að eyða of miklu í börn, ástvini eða skemmtanir. Farðu varlega, gættu vel að smáatriðunum, því ekki er allt gull sem glóir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það getur verið notalegt að rifja upp bernskuna og margt má af henni læra. Sýndu dirfsku, taktu málin í þínar hendur. Stjörnuspá 29. desember 1950 Leikritið Marmari eftir Guð- mund Kamban var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en það hafði komið út á dönsku árið 1918. „Leiksýningin er frábær,“ sagði gagnrýnandi Morgunblaðsins og taldi frum- sýninguna vera leiksögulegan viðburð. 29. desember 1969 Sigurður Nordal prófessor hlaut heiðursverðlaun úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright þegar þau voru veitt í fyrsta sinn. 29. desember 1976 Um tvö hundruð íbúar í Æsu- felli 2 í Reykjavík urðu að flýja íbúðir sínar þegar eldur kom upp í geymslum. Gangarnir fylltust af reyk svo að mörgum varð að bjarga af svölum. 29. desember 1994 Sjö skipverjum og ungbarni var bjargað í þyrlur af hol- lenska flutningaskipinu Hend- rik B, sem fékk á sig brotsjó um hundrað sjómílur suð- vestur af Vestmannaeyjum. 29. desember 1995 Ríkisstjórnin ákvað að ekki væri lengur hægt að óska nafnleyndar þegar sótt væri um opinberar stöður. 29. desember 1999 Björk Guðmundsdóttir var valin tónlistarmaður ald- arinnar á samkomu í Há- skólabíói. Bubbi Morthens var valinn rokkari aldarinnar og Vilhjálmur Vilhjálmsson söngvari aldarinnar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist …

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.