Morgunblaðið - 26.02.2011, Side 5

Morgunblaðið - 26.02.2011, Side 5
FRÉTTIR 5Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Ég gat ekki látið annan bílinn standa verkefnalausan,“ segir Jón Tómas Ásmundsson flutningabíl- stjóri sem er búinn að fara fjórar ferðir til Norðurlanda með búslóðir burtfluttra Íslendinga frá höfuðborg- arsvæðinu og alla leiðina heim að dyrum. Fimmtu ferðina fer hann með ferjunni Norrænu eftir helgi og fleiri eru pantaðar. Hyggst Jón Tóm- as færa út kvíarnar í þessum flutn- ingum, m.a. með opnun sérstakrar heimasíðu þar sem þessi þjónusta verður kynnt nánar. Slóðin er voru- flutningar.is eða transport.is. „Nágranni minn nefndi þetta við mig þegar ég var að barma mér yfir því að ég ætti tvo bíla og hefði bara vinnu fyrir annan,“ segir Jón Tómas, spurður hvernig þessir flutningar hefðu byrjað. Hann setti inn auglýs- ingu á Facebook-síðu Íslendinga í Noregi og áður en hann vissi af var hann búinn að fylla í fyrstu ferðina. Þrjár ferðir voru farnar til Noregs sl. sumar og í einni þeirra var „skutlast“ með búslóðir tveggja námsmanna til Danmerkur. Í síðustu ferðinni núna í janúar fór Jón Tómas, ásamt aðstoð- armanni sínum, með báða bílana auk aftanívagna. Jafnaðist sá flutningur á við tvo fulla 40 feta gáma og vel það. Ferðinni eftir helgi er heitið til Noregs en í maí hefur hann verið pantaður til Svíþjóðar og jafnvel einnig Noregs og Danmerkur í sömu ferð. Í Noregsförinni framundan verður farið með búslóðir á sex staði þannig að bíllinn verður vel pakk- aður. Markhópurinn ætti að vera stækk- andi en Íslendingum hefur fjölgað verulega sem ákveða að flytja af landi brott. Jón Tómas sér einnig tækifæri í að flytja landa sína heim síðar meir. Til að nýta ferðirnar sem best hef- ur Jón Tómas tekið vörur og ýmsan varning til baka fyrir íslensk og er- lend fyrirtæki. Hann segist engan stórgróða hafa upp úr þessu en mestu skipti að hafa upp í kostnaðinn við flutninginn. Er hann sáttur við 80-90% nýtingu á bílnum. Erfitt sé að græða á þessu, verandi í samkeppni við Samskip og Eimskip sem flytji tugþúsundir gáma til og frá landinu. „Ég veit ekki betur en að fólk hafi verið ánægt með þessa þjónustu, að minnsta kosti hefur enginn kvartað. Það er óneitanlega kostur að hafa sama flytjandann alla leið,“ segir Jón Tómas, sem reiknar með að gera meira út á flutninga til Norðurlanda á næstunni og jafnvel víðar í Evrópu. Og heimasíðan er enn í vinnslu þó að hún sé opin. Flytur búslóðir til Norðurlandanna  Jón Tómas flutningabílstjóri á leið til Noregs í fimmtu ferðina með Norrænu með búslóðir burt- fluttra Íslendinga  Byrjaði með auglýsingu á Facebook  Í samkeppni við Eimskip og Samskip Morgunblaðið/Sigurgeir S. Flutningabílstjórar Jón Tómas Ásmundsson, til vinstri, ásamt aðstoðarmanni sínum, Sigurbirni Guðmundssyni. Lengsti túrinn hjá Jóni Tómasi hefur verið 4.500 km akstur fram og til baka og þá er sjó- ferðin með Norrænu til Dan- merkur ekki tekin með og ferja þaðan til Noregs. Var þá komið í land í Kristiansand, ekið upp vesturströnd Noregs til Ála- sunds og þaðan niður til Óslóar, gegnum Svíþjóð og upp eftir Danmörku í Norrænu aftur. Hann hefur notið sérkjara hjá Norrænu og segist ánægður með þá þjónustu, þó að „ein- hver barningur“ hafi verið í upp- hafi með gistinguna en góð hvíld sé atvinnubílstjórum afar nauðsynleg. Ekið lengst 4.500 km LANGT FERÐALAG Flutningar Bílar Jóns ferðbúnir við ferjuna Norrænu. Reykjavík SKEMMTUM OKKUR INNANLANDS Með rjóðar kinnar og rjúkandi kakó bíða þín fannhvítar hæðir og fjöll. Taktu flugið í næstu skíðabrekku og lyftu þér upp milli þess sem þú rennir þér niður. Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði. FLUG OG GISTING Í EINA NÓTT FRÁ AÐEINS 21.030 KR.*

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.