Morgunblaðið - 26.02.2011, Side 11

Morgunblaðið - 26.02.2011, Side 11
sem er lagt í og jafnvel geta tekið margra ára æfingu og þjálfun, ár- angurinn veitir manni mikla ánægju,“ segir Ingó og sýnir mér nokkur brögð sem voru alveg ótrú- leg. Hann byrjaði á því að breyta pappírssneplum, en ég sá að þetta voru bara pappírssneplar, í fimm þúsund króna seðla. Þá var komið að spilagaldri sem gerði mig orðlausa. Hann lét mig velja spil, setja það inn í bunkann og svo lét hann það hoppa efst í spilabunkann með einum fing- rasmelli, ég var alveg ofan í honum og sá spilið hoppa upp í bunkann en hvernig það fór að því er mér hulin ráðgáta. Enda sagði Ingó að fjar- lægðin gerði þetta ekki að bragði, góð töfrabrögð virkuðu jafn vel þó fólk væri alveg ofan í þeim sem bragðið gerði. Þá tók hann sig til og beyglaði hnífapör með hugaraflinu, það var ótrúlegt að fylgjast með því – að sjá gaffal sem ég handlék stuttu áður og var í góðu lagi snúast í 180 gráður. Það var ekki að sjá annað en hugaraflið væri það eina sem hann beitti. Já, Ingó náði að gera mig orð- lausa. Best að byrja á spilagöldrum „Langflestir hafa gaman af töfrabrögðum ef þau eru vel gerð. Þetta er eina listformið sem snýst al- gjörlega um undrun, að brjóta öll náttúrulög- mál,“ segir Ingó. Hann er ný- fluttur heim til Ís- lands aftur eftir þriggja ára dvöl í Svíþjóð þar sem hann starfaði við að sýna töfrabrögð á skemmti- ferðaskipti sem fór á milli Gauta- borgar og Friðrikshafnar í Dan- mörku. Hann vinnur fyrir sér með töfrabrögðum og segir vera ágætt að gera í því hér heima þó það sé árs- tíðabundið, til dæmis sé góður tími núna þegar mikið sé af þorrablótum og árshátíðum. Spurður hvort það sé mikil þró- un í töfrabrögðum svarar hann ját- andi. „Á síðustu árum hafa menn farið aftur til fortíðar og eru að kynna sér hvað töframenn voru að gera fyrir 200 árum, uppfæra það og koma þá með eitthvað sem er alveg nýtt. Það er ekkert nýtt undir sól- inni en það er hægt að uppfæra allt og gera á nýjan máta.“ Ingó segir að það að skemmta með töfrabrögðum krefjist meira en að kunna trixin. „Töfrabrögð krefj- ast fingraleikni, maður þarf að hafa góðan takt, tímasetningu og tilfinn- ingu. Það verður líka að framreiða atriðin svo allt sjáist vel og skiljist vel og með töfrabrögðunum verður maður að skemmta fólki.“ Hann seg- ist horfa heilmikið á aðra töframenn. „Ég horfi mjög mikið á myndbönd með öðrum töframönnum til að spá í hvað þeir eru að gera, það er alltaf hægt að læra. En það er erfitt að fá þessa tilfinningu undrunar sem maður fékk sem krakki, það þarf orðið meira til að maður verði fyrir þeirri upplifun.“ Fyrir þá sem hafa áhuga á að gerast töframenn segir Ingó best að byrja að lesa sér til um töfrabrögð. „Það er mjög sniðugt að byrja á spilagöldrum. Það eru til margir ein- faldir spilagaldrar og það er alltaf hægt að taka spilin lengra og lengra. Nú er ég búinn að stúdera spilin í mörg ár og leyndardómarnir sem þau búa yfir eru miklir, það er hægt að vinna óendanlega með þau,“ segir Ingó en spilagaldrar eru í mestu uppáhaldi hjá honum. „Já spilin eru í uppáhaldi, það er hægt að gera nán- ast allt með þeim.“ Orðlaus Ingó beyglaði hnífapör með hugaraflinu og það var ótrúlegt að sjá gaffal sem var í góðu lagi stuttu áður snúast í 180 gráður. Það var ekki að sjá annað en hugaraflið væri það eina sem hann beitti. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 „Ég ætla að byrja daginn á því að fara í Krossfitt-tíma í World Class í Kringl- unni klukkan tíu. Þá er ég að spá í að kíkja niður í miðbæ á markað til styrktar Reykjadal og kannski kíki ég líka í Kolaportið, planið er að minnsta kosti að stússast eitthvað niður í bæ. Eftir það er ég að spá í að heimsækja félaga minn en við erum að vinna að litlu verkefni saman sem við þurfum að vinna í. Um kvöldið ætla ég að fara á leik- sýningu hjá Leikdeild ungmenna- félagsins Vöku í Þjórsárveri í Flóa- hreppi. Vaka setur upp tvö stutt gamanverk sem heita Amor ber að dyrum og Þriðja hæð og þar fara margir góðir vinir mínir með stór sem lítil hlutverk. Ég á von á að það verði góð skemmtun. Eftir leiksýninguna er ekkert sér- stakt planað, kannski fer ég út á lífið á Selfossi eða hef það rólegt í sveit- inni hjá föður mínum. Ég vinn í kerskálunum í Álverinu í Straumsvík og er í vaktavinnu svo ég fæ voða sjaldan hefðbundin helgarfrí. En ég er í fríi þessa helgi og ætla að nýta hana til hins ýtrasta til að gera margt og mikið.“ Halldóra Markúsdóttir Hvað ætlar þú að gera í dag? Morgunblaðið/Árni Sæberg Markaður Halldóra mun líklega kíkja á úrvalið í Kolaportinu. Stúss og leiksýning í Flóanum Halldóra Markúsdóttir Félag kvenna í læknastétt hefur opn- að sýningu í Þjóðarbókhlöðu um Kristínu Ólafsdóttur lækni en hún var fyrsta konan sem stundaði nám við Háskóla Íslands. Kristín var þriðja konan sem lauk stúdentsprófi á Íslandi, vorið 1911. Þá um haustið hóf hún nám við nýstofn- aðan Háskóla Íslands og lauk emb- ættisprófi í læknisfræði fyrst kvenna á Íslandi árið 1917. Í læknadeildinni kynnist Kristín Vilmundi Jónssyni, og gengu þau í hjónaband árið 1916. Sama ár og Kristín útskrifaðist var Vilmundur settur héraðslæknir á Ísa- firði. Störfuðu þau hjón þar um vet- urinn en héldu utan til framhalds- náms í Danmörku og Noregi sumarið eftir. Að námi loknu var Kristín starf- andi læknir á Ísafirði og sinnti fyrst og fremst lyflækningum. Kristín var mjög áhugasöm um allt sem laut að heimilisfræðslu enda taldi hún að góð þekking á heimilishaldi stuðlaði að aukinni hollustu og hreinlæti. Þegar Vilmundur var skipaður landlæknir árið 1931 fluttist fjöl- skyldan til Reykjavíkur og þar opnaði Kristín eigin lækningastofu. Sam- hliða læknisstörfum sínum kom Kristín að félagsmálum og ritaði bækur og greinar um heilsufræði. Kristín rak læknastofuna fram á síð- ustu æviár. Hún lést í Reykjavík árið 1971 á 82. aldursári. Lilja Sigrún Jónsdóttir formaður Félags kvenna í læknastétt – hefur haft veg og vanda af sýningunni en félagið gaf Háskóla Íslands málverk af Kristínu í tilefni af 100 ára afmæli Háskólans. Málverkið er á sýning- unni. Sýning Morgunblaðið/Golli Læknar Sýning um frumkvöðul. Sýning um frumkvöðul kvenna Sunnudaginn 13. mars næst- komandi mun Ingó Geirdal halda töfrasýningu í Austurbæ kl. 17. Hugsanalestur, spenni- treyjur og flugbeitt rakvélablöð eru meðal þess sem Ingó leikur sér með á væntanlegri sýningu. Kynnir á sýningunni er leikarinn Björgvin Franz Gíslason en að sögn Ingós kann Björgvin ým- islegt fyrir sér í töfrabrögð- unum. „Þegar ég fór að skemmta á skemmtiferðaskipunum þurfti ég að lengja prógrammið mitt ansi mikið en þar var ég með klukkutíma sýningar tvisvar á dag sem máttu ekki vera eins. Ég sá að það væri tilvalið að setja upp sýningu á Íslandi og gerði það í samvinnu við um- boðsskrifstofuna Prime. Sýn- ingin verður eins og leiksýning, einn og hálfur tími með hléi. Ég er gítarleikari í þungarokks- hljómsveitinni Dimma og ætla ég að nota tón- list okkar sem undir- leik við at- riðin, svo þetta verður svolítið öðruvísi en fólk hefur séð,“ segir Ingó um sýninguna. Aðeins verður þessi eina sýn- ing og er miðasala haf- in á Midi.is. Ingó sýnir töfrabrögð TÖFRASÝNING MMeira á mbl.is/sjónvarp STÓRAFSLÁTTARHELGI Verkfæralagerinn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.isMán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17 Myndlista vörur í miklu ú rvali 16 ára Veltisög 68.970 -20% 50.176 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM *ekki sértilboð 25. feb. – 2. mars

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.