Morgunblaðið - 26.02.2011, Síða 43

Morgunblaðið - 26.02.2011, Síða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2011 Nú er ljóst hvernig dagskrá Sinfón- íuhljómsveitar Íslands verður í Hörpu í vor, eftir vígslu tónlistar- hússins. Eins og fram hefur komið stjórnar Vladimir Ashkenazy hljómsveitinni á vígslutónleikunum en þar verður frumflutt tónverk Þorkels Sig- urbjörnssonar, Velkomin Harpa, Víkingur Heiðar Ólafsson leikur pí- anókonsert Griegs og þá verður flutt níunda sinfónía Beethovens. Ein- söngvarar verða Christiane Oelze, Sesselja Kristjánsdóttir, Kolbeinn Jón Ketilsson og Bjarni Thor Krist- insson, og einnig koma fram Kór Ás- kirkju, Hljómeyki, Kór Íslensku óp- erunnar og Óperukórinn í Reykja- vík. Þýski tenórinn Jonas Kaufmann kemur fram með hljómsveitinni á tónleikum 21. maí en hann er einn kunnasti óperusöngvari samtímans. Boðið verður til Mahler-veislu 28. maí en þá eru á efnisskránni Söngv- ar úr Des Knaben Wunderhorn og Sinfónía nr. 4. Einsöngvari verður Camilla Tilling og Markus Poschner stjórnar. Páll Óskar tvisvar Yfirskrift tónleika 3. júní er Manstu gamla daga. Þá taka tveir af vinsælustu dægurlagasöngvurum þjóðarinnar, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, höndum saman með Sinfóníunni og flytja vin- sælar söngperlur frá 6. og 7. ára- tugnum í nýjum útsetningum Hrafn- kels Orra Egilssonar. Bernharður Wilkinson stjórnar. Loks kemur Páll Óskar Hjálmtýs- son fram á tvennum tónleikum með hljómsveitinni, 10. og 11. júní. Bern- harður stjórnar þeim einnig. „Það var löngu frágengið að Ashkenazy myndi stjórna upphafs- tónleikunum og nokkurn veginn hver efnisskráin yrði þá. Síðan reyn- um við að hafa þetta eins fjölbreytt og hægt er, þannig að hljómsveitin sýni allar sínar hliðar í sem fjöl- breyttustu prógrammi,“ segir Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri. „Við vildum leyfa áheyrendum að finna eitthvað við sitt hæfi í okkar dagskrá, gefa sem flestum tækifæri til að upplifa Sinfóníuhljómsveit Ís- lands í Hörpu. Þetta eru svo mikil tímamót í íslensku tónlistarlífi að loksins eigum við heimili fyrir Sin- fóníuhljómsveitina okkar. Stóru sinfóníutónleikarnir eru fyrst, opnunartónleikarnir, og síðan Mahler-veislan, þar sem er líka klassískur söngur. Tónleikar Kauf- manns eru frábært tækifæri fyrir óperuáhugafólk og loks koma ólíkir dægurtónleikar.“ efi@mbl.is Efnisskrá SÍ í Hörpu kynnt  Klassík, óperu- og dægurtónlist í vor Morgunblaðið/Ómar Í Hörpu Stóri salurinn, Eldborg, er óðum að taka á sig mynd. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Klassískt diskótek, sjálft of- urmennið og túba í tilvistarkreppu eru meðal þess sem krakkar og full- orðnir munu upplifa á tónleikum sem haldnir verða undir formerkjum Töfrahurðar í Salnum á sunnudag. Þetta er þriðja starfsár þessarar fjölskyldutónleikaraðar þar sem klassísk tónlist er flutt í æv- intýralegri umgjörð fyrir börn á öll- um aldri. Flautuleikarinn Pamela De Sensi stendur fyrir Töfrahurð í samvinnu við Salinn en hugmyndina kom hún með til landsins frá Ítalíu þar sem hún starfaði í fimm ár við tónleika- uppfærslur fyrir börn. „Við köllum þetta Töfrahurð því við erum með al- vöru töfrahurð á sviðinu,“ segir Pa- mela. „Á tónleikunum köllum við einhvern krakka upp á sviðið sem fer svo í gegn um töfrahurðina og kemur út aftur klæddur eins og t.d. Mozart eða Händel, og fær svo að stjórna hljómsveitinni eins og þeir hefðu gert. Händel stjórnaði t.d. ekki með tónsprota heldur með staf sem hann barði í gólfið til að halda takti. Þannig læra krakkarnir í gegnum leik hvernig tónleikar voru haldnir á þessum tíma.“ Íslenskir krakkar vel að sér Á dagskrá sunnudagsins verður m.a. Tobbi túba eftir George Kleins- inger en Tim Buzbee fer með tit- ilhlutverkið. Þá mun salurinn taka stakkaskiptum því honum verður breytt í klassískt diskótek undir stjórn DJ Sóra eða Sigurþórs Heim- issonar leikara. Danstónlistin verður ekki af dæmigerðara taginu því krakkarnir fá m.a. að skekja sig við Turkish Marsch eftir Beethoven, Á Sprengisandi Sigvalda Kaldalóns, Eine kleine Nachtmusik eftir Moz- art, tónlist Bleika pardusins og þe- malagið úr myndunum um Of- urmennið svo eitthvað sé nefnt. „Ég geri þetta aðallega af því að ég er sjálf eins og krakki og finnst svo gaman að halda svona tónleika,“ segir Pamela. „Og það er ekki síður skemmtilegt að gera þetta hér en á Ítalíu því íslenskir krakkar kunna mun meira um tónlist en jafnaldrar þeirra á Ítalíu. Þegar ég tala við 8-9 ára krakka hér og spyr þá um Bach og Mozart þá vita þeir eitthvað svo- lítið um þá.“ Fallin fyrir landinu Hljómsveit hússins er Skóla- hljómsveit Kópavogs sem Össur Geirsson stýrir en að auki verður kammerhópurinn Shererazade með- al flytjenda. Þá koma dansarar úr Listdansskóla Íslands við sögu sem og leikarar auk þess sem tenórinn Gissur Páll Gissurarson tekur þátt í fjörinu. En hvað dregur ítalskan flautu- leikara hingað á hjara veraldar? „Ég kom til Íslands því ég á íslenskan mann,“ svarar Pamela. „Og ég er ekki bara fallin fyrir manninum heldur landinu líka.“ Töfrað og tjúttað við klassíska tónlist  Fjölskyldutónleikar undir formerkjum Töfrahurðar í Salnum á sunnudag  Klassísk tónlist færð í ævintýralegan búning til að vekja áhuga barnanna  Fá einnig að spreyta sig á hljómsveitarstjórn Uppáklædd „Á tónleikunum köllum við einhvern krakka upp á sviðið sem fer svo í gegn um töfrahurðina og kemur út aftur klæddur eins og t.d. Mozart eða Händel,“ segir Pamela um það hvernig töfrahurðin á sviðinu virkar. Búningar leika stórt hlutverk á tónleikum Töfrahurðar og eru gestir hvattir til að mæta uppá- klæddir til leiks. „Það á ekki bara við um krakkana heldur alla fjölskylduna – ömmu, afa og foreldrunum er velkomið að koma í grímubúning,“ segir Pa- mela. „Í fyrra komu nokkuð margir fullorðnir í búningum, sem var rosalega skemmtilegt.“ Fjörið hefst um hálftíma fyrir tónleikana með svokallaðri Zumba-dansupphitun – að sjálf- sögðu við tónlist gömlu meist- aranna – auk þess sem blöðr- umeistari verður á staðnum og boðið verður upp á andlits- málun. „Við erum með tvo kennara í Zumba og krakkarnir fá verð- laun ef þeir þekkja lögin,“ segir Pamela. „Við viljum byrja þetta með svolitlu partíi til að ýta undir það að krakkarnir komi á réttum tíma, í stað þess að lenda í því að allir komi á síð- ustu stundu.“ Gestirnir í grímubún- ingum KARNIVALSTEMNING Großstadtsafarieftir Jo StrömgrenHeilabroteftir Brian Gerkeog Steinunni Ketilsdóttur White for Decayeftir SigríðiSoffíu Níelsdóttur Sýnt í Borgarleikhúsinu aðeins sex sýningar 4. mars – uppselt5. mars – örfá sæti laus 6. mars – uppselt 9. mars 11. mars 12. mars Miðasala í síma 568 8000 eða www.id.is Íslenski dansflokkurinn frumsýning 4. mars

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.