Morgunblaðið - 17.03.2011, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 17.03.2011, Qupperneq 31
DAGBÓK 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARS 2011 Sudoku Frumstig 8 2 6 3 2 9 5 6 8 1 1 9 7 8 6 1 5 7 9 1 3 6 3 7 8 1 4 2 1 1 9 1 3 5 9 8 1 4 6 3 8 3 5 4 8 9 9 3 4 6 8 7 6 1 5 8 8 5 2 7 8 7 1 5 9 6 6 3 5 9 5 1 6 2 3 8 1 8 3 9 5 6 4 2 7 5 6 9 2 4 7 1 8 3 4 2 7 1 3 8 5 6 9 8 3 1 4 9 5 2 7 6 9 5 4 7 6 2 8 3 1 2 7 6 8 1 3 9 5 4 7 1 5 6 8 4 3 9 2 3 9 2 5 7 1 6 4 8 6 4 8 3 2 9 7 1 5 6 9 4 7 2 8 5 3 1 5 7 1 3 4 6 9 8 2 8 2 3 1 9 5 4 6 7 7 5 6 2 8 3 1 4 9 4 1 8 9 6 7 2 5 3 9 3 2 4 5 1 8 7 6 2 8 5 6 3 9 7 1 4 1 6 9 8 7 4 3 2 5 3 4 7 5 1 2 6 9 8 1 4 8 5 2 9 3 6 7 6 7 9 8 4 3 2 5 1 2 5 3 6 7 1 8 9 4 7 9 2 1 8 5 6 4 3 8 6 1 9 3 4 5 7 2 4 3 5 2 6 7 1 8 9 5 8 4 7 1 2 9 3 6 3 1 6 4 9 8 7 2 5 9 2 7 3 5 6 4 1 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 17. mars, 76. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr- ir vini sína. (Jh. 15, 13.) Í umsögn um leikrit Ibsens, HedduGabler, sem nú er sýnt í Þjóð- leikhúsinu, í DV rifjar Jón Viðar Jónsson upp að sýning Leikfélags Reykjavíkur fyrir fjörutíu árum með Helgu Bachmann í aðalhlutverki hafi verið tekin upp og sýnd í sjón- varpi. Jón Viðar leiðir að því getum að þessi upptaka ætti að vera til í fórum Sjónvarpsins. „Kannski mað- ur fái að líta hana við tækifæri,“ skrifar hann, „það gæti verið for- vitnilegt að sjá hvernig hún hefur elst.“ x x x Víkverji hefur oft velt fyrir sérhvers vegna hin ýmsu leikrit, sem tekin voru upp fyrir Sjónvarpið á árum áður, skuli aldrei sýnd. Fyrir nokkrum vikum var Víkverji á mál- þingi um Guðmund Kamban þar sem voru sýnd brot úr kvikmyndunum Hadda Padda og Hús í svefni og einnig upptökum Sjónvarpsins á Skálholti. Þessi brot gerðu lítið ann- að en að æsa löngunina í að sjá meira. x x x Ríkissjónvarpið hefur verið ímiklum endursýningarham undanfarið, en það leikna efni, sem til er í fórum þess, hefur þó verið undarlega fyrirferðarlítið. Verið get- ur að þar liggi að baki hve mikið þurfi að greiða fyrir að endursýna efnið, en það er þá heldur undarlegt ef menn semja um svo svimandi upp- hæðir að það verður til þess að efnið verður aldrei endursýnt. Það myndi víst í einhverjum fræðum kallast að verðleggja sig út af markaðnum. x x x Lögreglan er nú sérstaklega ávaktinni gagnvart ökumönnum, sem bruna yfir á rauðu. Víkverji verður að viðurkenna að honum finnst betra að ná græna ljósinu og oft finnst honum að gert sé ráð fyrir að ekið sé á ólöglegum hraða eigi að komast á grænu ljósi til dæmis eftir Kalkofnsvegi og Sæbraut. Víkverji furðar sig líka iðulega á því hvað þeir, sem gefa í á gulu ljósi, fara hægt af stað þegar kemur grænt á næstu ljósum. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 drambsfull, 8 þrífa, 9 varkár, 10 mergð, 11 veslast upp, 13 fífl, 15 reifur, 18 vel verki farinn, 21 skjól, 22 vinna, 23 amboðin, 24 ógallaður. Lóðrétt | 2 skurðurinn, 3 kvarta undan, 4 gera feg- urra, 5 dáin, 6 taflmann, 7 vendir, 12 tangi, 14 eyða, 15 ræma, 16 ráfa, 17 slark, 18 kuldaskjálfta, 19 gæfu, 20 romsa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 baksa, 4 tölta, 7 tældi, 8 pútan, 9 net, 11 raus, 13 hrár, 14 ólmar, 15 spöl, 17 ólag, 20 gró, 22 gónir, 23 sjúga, 24 lemur, 25 litla. Lóðrétt: 1 bítur, 2 kólgu, 3 alin, 4 tæpt, 5 lítur, 6 agnar, 10 eim- ur, 12 sól, 13 hró, 15 segul, 16 önnum, 18 ljúft, 19 grana, 20 grær, 21 ósæl. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 f5 4. d3 fxe4 5. dxe4 Rf6 6. De2 Bc5 7. Bxc6 bxc6 8. Rxe5 De7 9. Rd3 Ba6 10. f3 0-0 11. Be3 Bxe3 12. Dxe3 Hab8 13. Dc5 d6 14. Da3 Bxd3 15. cxd3 Rd5 16. d4 Dg5 17. 0-0 Staðan kom upp á MP Reykjavík- urskákmótinu sem er nýlokið í Ráð- húsi Reykjavíkur. Alþjóðlegi meist- arinn Björn Þorfinnsson (2.419) hafði svart gegn kollega sínum Guðmundi Kjartanssyni (2327). 17. … Re3! 18. Hf2 Hxf3! 19. Rd2 og hvítur gafst upp um leið enda fátt um fína drætti í stöðu hans eftir t.d. 19…Hxf2 20. Kxf2 Hf8+ 21. Ke2 Rc2 22. Db3+ d5 23. Dxc2 Dxg2+ 24. Kd3 Dh3+ 25. Ke2 Dxh2+. Lokastöðu mótsins má finna á www. skak.is sem og ýmsar aðrar upplýs- ingar um mótið, m.a. allar skákir þess. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Viðbúnaður. S-AV. Norður ♠106 ♥763 ♦ÁD10653 ♣87 Vestur Austur ♠K2 ♠DG543 ♥DG1042 ♥985 ♦G42 ♦K7 ♣1043 ♣DG9 Suður ♠Á987 ♥ÁK ♦98 ♣ÁK652 Suður spilar 3G. Spilarar mættu gjarnan taka sér til fyrirmyndar hið fræga kjörorð skát- anna – ávallt viðbúinn. Ekki síst skiptir góður viðbúnaður máli í vörninni. Sagnir ganga hratt fyrir sig eftir Standard-kerfinu: Suður opnar á 1♣, norður svarar á 1♦, suður segir 2G og norður hækkar í 3G. Vestur er líka fljótur að velja útspilið – ♥D. Blindur kemur upp, sagnhafi fer með stutta þakkarþulu, tekur á ♥K og rennir ♦9 yfir til austurs. Nú er spurningin þessi: Er austur viðbúinn? Sé austur sannur skáti mun hann dúkka ♦9 án minnsta hiks. Vænt- anlega spilar sagnhafi tígli aftur og þá reynir á vestur að sýna viðbúnað sinn: Vestur verður að láta gosann fumlaust, eins og hann hafi byrjað með ♦KGx. Eftir svo samstillt átak í vörninni er sagnhafi líklegur til að svína ♦D. 17. mars 1610 Tugir manna urðu úti í stór- hríð, einkum í Borgarfirði og Miðfirði. „Ekki mundu menn slíkan skaða orðið hafa í eins dags veðri á landi,“ segir í Skarðsárannál. Veðrið bar upp á Geirþrúðardag og hefur verið nefnt Geirþrúðarbylur. 17. mars 1917 Tíminn, blað Framsókn- arflokksins, kom út í fyrsta sinn. „Þetta blað mun eftir föngum beitast fyrir heil- brigðri framfarastefnu í landsmálum,“ sagði í inn- gangsorðum. Tíminn varð dagblað árið 1947, var samein- aður Degi 1996 en hætti að koma út haustið 1997. 17. mars 2001 Kosið var um framtíð flugvall- arins í Vatnsmýrinni í Reykja- vík. Meirihluti þeirra sem af- stöðu tóku, 50,6%, vildi að flugvöllurinn færi, en aðeins munaði 384 atkvæðum. Kjör- sókn var 37,2%. 17. mars 2008 Gengi íslensku krónunnar lækkaði um 7% á einum degi, sem var met. „Svartur mánu- dagur,“ sagði Fréttablaðið. 17. mars 2009 Indefence-hópurinn afhenti breskum þingmönnum 83.000 undirskriftir þar sem mót- mælt var þeirri ákvörðun breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum gegn ís- lenskum stjórnvöldum og bönkum í október 2008. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Ég ætla að halda upp á þetta með börnum og barnabörnum á afmælisdaginn, þau fá eitthvað gott að borða,“ segir Jónína Margrét Guðnadóttir, cand. mag. í enskum bókmenntum og löggiltur skjalaþýðandi, en hún er 65 ára í dag. „Síðan fæ ég systkini mín í heimsókn á laugardaginn. Þetta verður bara heima hjá mér en þetta er dágóður hópur þegar nánasta fjölskylda er komin saman, þá erum við þrettán. En við komumst fyrir við borðið!“ Hún segist frekar bjóða upp á mat en tertur og þess háttar, hún sé lítið fyrir bakstur. Jónína á þrjú börn og fimm barnabörn en systkini hennar á lífi eru þrjú. Hún segist hafa haldið myndarlega upp á þrítugs-, fertugs- og fimmtugsafmælin á sínum tíma. Umfangið hafi verið minna á sextugs- afmælinu, þá var hún í sumarbústað með sínu fólki. Foreldrar Jónínu voru Guðni Jónsson prófessor og Sigríður Hjördís Einarsdóttir frá Miðdal í Mosfellssveit. Jónína hefur eins og faðirinn sinnt ættfræði, ritstýrði t.d. bókinni Lækjarbotnaætt, en einnig hefur hún ritstýrt orðabókum um hagfræði og flug. Nú annast hún útgáfu- mál og vefstjórn hjá Landlæknisembættinu. kjon@mbl.is Jónína Margrét Guðnadóttir er 65 ára í dag Komumst fyrir við borðið! Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 17. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.28 3,6 10.53 0,6 16.59 3,5 23.08 0,5 7.40 19.33 Ísafjörður 0.28 0,2 6.29 2,0 13.00 0,1 19.03 1,8 7.45 19.38 Siglufjörður 2.25 0,3 8.37 1,2 15.05 0,1 21.22 1,2 7.28 19.21 Djúpivogur 1.47 1,9 8.00 0,4 14.06 1,8 20.12 0,2 7.10 19.03 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú verður upp fyrir haus í vinnu í dag en mundu að fara samt vel með þig. Þú hefur reynst vinum þínum vel og uppskerð eftir því. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er nauðsynlegt að staldra við og gefa sér tíma til að skoða hlutina vandlega. Ef þú heldur áfram á þessari braut muntu örugglega missa eitthvað út úr þér á óheppi- legum tíma. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ákefð í samskiptum við einhvern gæti svipt hulunni af leyndarmálum. Erfiðast er að bíða – notaðu tímann og gerðu eitt- hvað fyrir sjálfa/n þig. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það eru ósköp litlar upplýsingar til um áhugasvið þitt. Leitaðu þér aðstoðar til þess að geta hafist handa. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Hugmyndir sem þú hefur sett fram í starfi þínu vekja athygli. Þú færð tilboð sem þú getur ekki hafnað. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ástamálin eru í blóma. Einhver vill koma til þín upplýsingum en þú ert efins um hvort þú vilt það. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú verður að freista þess að fá lengri tíma til þess að ljúka þeim verkefnum sem snerta heimilið. Þú þarft á hvíld á halda. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú vilt hafa hlutina í röð og reglu en skalt varast það að ganga of langt í þeim efnum. Við getum lært margt af unga fólkinu. Ekki safna drasli. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Gættu þess að láta ímyndunar- aflið ekki hlaupa með þig í gönur. Mundu að þú hefur makann í vasanum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur verið á útopnu og þarft því nauðsynlega að hægja aðeins á þér og gefa þér tíma til að líta í eigin barm. Þú þolir ekki mont, enda áttu ekki að þurfa þess. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft að tjá þig mjög skýrt í dag, jafnvel þótt þú eigir í samskiptum við fólk sem skilur þig oftast. Ef þú sérð tækifæri skaltu grípa það. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ástríðan fyrir fallegum hlutum virðist gera vart við sig í seinni tíð. Ekki láta undan, nema þú eigir fyrir því. Ef þú þarft að láta í minni pokann skaltu gera það með reisn. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.