Ný saga - 01.01.1993, Blaðsíða 33
Ráöabrugg á dulmáli
MBXICANSKE GOLF
5at>a#
Sl £osi*iiu»\
Sf Chfisíophef (Kllts)
f|^ Antlgua
« S#n Salvaöor
Moniserfa!
SIO«£ ANTl
Pueno R.co 'ff' .Tofto|a
CrabOon tsiand g, c|0* ’ ^
(VtactuM) St Chriiloph#r (K.n»r
% Antígua
Guaðeioupe
CARAIBISKt HAV
^ Martimque
ANTtLLER
Cur*<
# Grenada
T rmtdað
STILLEHAVCT
Á þessu korti niá sjá staösetningu Krabbaeyjar í Vestur-Indíum. Eyjuna áttu Danir aö fá í
skiptum fyrir ísland og mögulega einnig Fœreyjar, samkvœmt hugmyndum John
Cochrane.
í umræddri skýrslu ber ýmislegt á góma.
Johnstone byrjar á því að þakka fyrir skýrslur
utanríkisráðuneytisins (í þetta skipti frá 8. nóv-
ember), eins og venja var. í þeim hafði
Carmarthen lávarður skilað kveðju frá Georg
III, sem hafði lýst ánægju sinni með frammi-
stöðu Johnstones í embætti. Johnstone lofar
jafnframt að rækta hið góða samband sitt við
Bernstorff greifa (to cultivate the distinguished
Politeness and Confidence with which 1 have
been hitherto treated by Count Bernstorff).
Eins og kunnugt er veitti Bernstorff greifi
dönsku ríkjsstjórninni forystu um þessar
mundir og fór með utanríkismál. Verslunarmál
voru hins vegar fyrirferðamest í skýrslunni,
einkum þau sem tengdust Austur-Indíum, en
þar bjuggu Bretar við samkeppni Dana. I
framhaldi af þeirri umræðu kemur sá kafli
skýrslunnar sem fjallar um ísland og er efni
þessarar greinar. Johnstone segir siðan frá því,
að Danakonungur ætli að gera út leiðangur
norður á bóginn sem eigi m.a. að kanna aust-
urströnd Grænlands. Þá er í skýrslunni tekið
fram, að Danir myndu nú veita erlendum
skipum leyfi til að flytja hafra um stundarsakir
frá Skotlandi til Kristiansand gegn greiðslu
tolla, en óttast var, að Norðmenn myndu líða
mikinn skort um veturinn. Danir myndu hins
vegar ekki leyfa innflutning annarra kornteg-
unda nema með dönskum skipum. Að lokum
gerir Johnstone grein fyrir ferðum nokkurra
franskra, sænskra og rússneskra sendierind-
reka um Danaveldi, minnist á að hertoginn af
Augustenborg sé kominn til Kaupmannahafn-
ar (en hann var væntanlegur tengdasonur
Kristjáns VII) og að nýr spænskur sendiherra
hafi aflient konungi trúnaðarbréf sitt.
Heimildagildi
Skýrsla Johnstones er fyrst og fremst heimild
um það sem var aö gerast í bresku utanríkis-
þjónustunni á þessum tíma. Það heimildagildi
er út af fyrir sig óháð því hversu rétt skýrslan
31
L