Ný saga - 01.01.1993, Page 79

Ný saga - 01.01.1993, Page 79
íslendingar á 18. öld. flakkara í Húnavatnssýslu, í staðinn freistar þess að bjarga sál Símonar Jónssonar, sem var elstur ófermdra flakkara sem hann þekkti til. Samt sem áður hafði sýnt sig, að jafnvel þegar tímarnir voru skárri, hafði samfélagið ekki haft bolmagn til að sinna skyldum sínum við hann. Kirkjusókn Urræðaleysi yfirvalda gagnvart almennum og einstökum brotum sést víðar. hað er til dæmis ljóst, að menn mættu ekki alltaf til kirkju þótt til þess væri ætlast. Meira að segja séra Jón Steingrímsson eldprestur viðurkennir eigin tregðu og tilraunir til að sleppa við kirkjuferð- ir.w Séra Þorsteinn Pétursson segir að síra Wormur, prófastur á Melstað hafi látið messa á hverjum helgum degi, .þótt fáir eða engir kæmi“.w Margir prestanna sem Harboe biskup yfirheyrði, er hann vildi kynna sér ástand kristnidómsins á Islandi, kvörtuðu yfir lélegri kirkjusókn og rápi á meðan á messu stóð.1" Meðan séra Þorsteinn var kapellán séra Worms á Melstað tóku þeir til bragðs að læsa kirkj- unni á meðan á predikun stóð til að „... hindra útgöngu fólks eftir fornum vana. Slíkt gekk ekki af án lastmæla. Sumir kölluðu kirkjuna fangahús, sögðust ætla að gjöra þar inni sínar nauðsynjar etc“." Þessi örvæntingarfulla að- gerð til að hafa hemil á almúganum er til marks um togstreituna milli kirkjunnar og þeirra sem ekki vildu beygja sig undir yfir- valdið, sem kemur víða fram, og hversu auð- velt var að komast undan refsingum, sem hót- að var í lögum. Samkvæmt þeim áttu allir að hlýða á Guðs orð og menn áttu fyrst að fá á- minningu og vera síðan teknir út af sakrament- inu ef þeir létu hjá liða að koma til kirkju.'- Eitthvert sérkennilegasta dæmið um það, hvernig yfirvaldið stendur ráðþrota gagnvart mótþróasömum einstaklingi, er þegar Gísli Ól- afsson frá Suðra-Rauðalæk neitaði að taka af- lausn frá árinu 1703 til 1732. Hann var aðvar- aður, bannfærður og honum hótað með gapa- stokki, svo eitthvað sé nefnt. Þótt úr bannfær- ingunni yrði, lét Gísli sér þaö í léttu rúmi liggja en aðrar refsingar, sem til stóðu, virðast hafa verið í lágmarki. Athyglisvert er, aö kirkj- an virðist ekki hafa nein vopn til að ráða við slíkt mál. Afskipti hennar af Gísla hófust ekki fyrr en 1705, tveimur árum eftir að hann neit- aði fyrst að taka aflausn og stóðu í 30 ár. Á meðan Gísla stóð á sama gerði bannfæring ekkert gagn, áminningar enn síður og hótun- um um líkamlegar refsingar var ekki franrfylgt. Ef til vill hefur Gísli þóst vita að svo yröi, enda virðist úrræðaleysi kirkjunnar algert.1' Kirkjunni gekk illa að halda uppi aga, jafnt innan sinna vébanda sem annars staðar í sam- félaginu. Drykkjuskapur og áflog í kirkju voru algeng umkvörtunarefni." Ástand sóknanna í landinu var mjög mismunandi og virðist hafa verið ltelst undir mann- gildi prestsins kom- ið. Margir prestanna voru áhugalitlir og sinntu spurningum og vísitasíum lítið. Þeir voru iðulega illa menntaðir og áttu fáar bækur, jafnvel ekki Bilrlíu." Aórir lestir Að ýmsu öðru leyti gætti óánægju með- al klerkanna og yflr- valda. Séra Þor- steinn Pétursson hafði til dæmis á- hyggjur af skraut- serni fólks, sérstak- lega kvenna og unglinga. ...[þau hafa] yndi sitt og gaman í svoddan fánýtri prýöi og hégóma- dýrð aö hrúka silki, flauel, damask, flús, fiannel, frúnsur, snúrur, boröa, galúnur, út- saum, silfur, hnappa, helti, hláan lit og annað slík.t óþarfa apaspil eftír framandi þjóöum. Jesús segir, Lúk. 7, aö þeir, sem mjúkan og dýnncetan klceönaö hera séu í konunga gjörðum. En hvaö k.emur þaö oss viö, fátceklingum þessa auma lands, hverja nii vantar hceöi þaö, sem þeir þurfa aö éta og drekka, og margur gengur r\. i\a*l % ■ ú \ i' 77

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.