Morgunblaðið - 17.06.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.06.2011, Blaðsíða 2
VIÐTAL Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Eftir afburðaíþróttaferil glímir Sigursteinn Gíslason nú við erfitt krabbamein. Knattspyrnukappinn sem níu sinnum varð Íslandsmeist- ari greindist í síðasta mánuði með krabbamein í nýrum og lungum og heyr nú mestu baráttu lífs síns. „Ég ætla að takast á við þetta af æðruleysi, reyni að vera jákvæður og nýta mér það sem íþróttirnar hafa kennt mér. Þetta er dauðans alvara eins og einhver sagði og önnur barátta en ég þekki. Þessi leikur verður langur og strangur, en ég ætla að vinna hann eins og svo marga á ferlinum,“ segir Sig- ursteinn, sem verður 43 ára eftir viku. Föstudaginn þrettánda Hann segist ekki hafa kennt sér meins fyrr en um miðjan síðasta mánuð. „Það var í rauninni enginn fyrirvari,“ segir hann. „Svo var það þennan skrýtna dag, föstudaginn 13. maí, að ég fór að kenna til í síð- unni vinstra megin. Ég var í vinnunni hjá Eimskip og gerði ekk- ert með þetta, en þetta ágerðist um helgina þannig að ég fór á sunnu- dagsmorguninn upp á bráða- móttöku. Eftir að hafa verið þar í nokkra klukkutíma í alls konar rannsóknum var staðfest að fyr- irstaða var í báðum nýrum og báð- um lungum. Eftir helgina fékk ég svo að vita að um nýrnakrabbamein væri að ræða. Móðuræxlið var í vinstra nýra og hafði dreift sér í bæði lungu og hægra nýrað. Það fylgdi upplýsingunum að meinið væri í raun ólæknanlegt, en hægt væri að reyna að halda því niðri með lyfjagjöf. Fyrsta ákvörðun var að taka vinstra nýrað. Það var gert fyrir tveimur vikum og sú aðgerð tókst vel. Nú þarf ég að jafna mig áður en ég byrja í lyfjameðferð- inni.“ Í versta falli nýrnasteinar Sigursteinn sagðist aldrei hafa leitt hugann að því að hann gæti veikst af svo alvarlegum sjúkdómi. Á leiðinni upp á sjúkrahús hefði hann hugsað með sér að þetta væru í versta falli nýrnasteinar. Svo hefðu fréttirnar komið og eðli- lega verið mikið áfall fyrr sig og sína nánustu. Kona Sigursteins er Anna Elín Daníelsdóttir og börn þeirra, fimm, sjö og tólf ára, eru Magnús Sveinn, Unnur Elín og Teitur Leó. „Maður finnur það best núna þegar á bjátar hvað maður á stóran og sterkan bakgrunn og á svona stundum er ekkert mikilvægara en fjölskylda og vinir,“ segir Sig- ursteinn. » Íþróttir „Önnur barátta en ég þekki“  Sigursæll íþróttamaður glímir við krabbamein 43 ára  „Þessi leikur verður langur og strangur, en ég ætla að vinna hann eins og svo marga á ferlinum“ Morgunblaðið/Kristinn Mikill stuðningur Sigursteinn ásamt konu sinni Önnu Elínu Daníelsdóttur og börnunum Magnúsi Sveini, Unni Elínu og Teiti Leó. Sigursteinn segir að þegar á bjáti sé ekkert mikilvægara en fjölskyldan og vinirnir. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Með þessum kaupum erum við að hasla okkur völl á nýju sviði. Ferða- menn í dag vilja meiri þjónustu en áður, til dæmis góða gistiaðstöðu, veitingasölu og fleira – okkur verður gerlegt að sinna því með þessu land- námi í Húsadal,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Ís- lands. Í gær var gengið frá kaupum FÍ á skálasvæðinu í Húsadal í Þórsmörk af Kynnisferðum. Kaupverðið er 125 milljónir króna. Húsadalur er annað tveggja skálasvæða í Þórsmörk, hitt er í Langadal þar sem FÍ hefur verið með starfsemi í áratugi. FÍ kaupir allar eignir í Húsadal, þjónustumiðstöð, svefnskála, snyrti- aðstöðu og aðrar byggingar. Far- fuglar hafa leigt aðstöðuna í Húsadal síðustu ár og gera það út sumarið uns Ferðafélagið tekur við 1. október nk. „Við sjáum margvíslegan ávinning með þessu,“ segir Páll Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Ferðafélags- ins, í samtali við Morgunblaðið. Hann nefnir að Húsadalur sé loka- punkturinn þegar genginn er Lauga- vegurinn úr Landmannalaugum. Í dag eigi Ferðafélagið skála á fimm stöðum á og við Laugaveg – og nú bætist sá sjötti við. Ætlunin er, að sögn Páls, að í öllum þessum skálum verði í náinni framtíð boðið upp á þá þjónustu sem kallað er eftir og að framan er nefnd. Eftir sem áður sé stefnan sú að sem flestir skálar fé- lagsins verði með frumstæðri að- stöðu og lítilli þjónustu. Mörgum þykir sjarmi fjallaferða einmitt felast í því. „Húsadalurinn hefur verið afar vinsæll, þangað er mikið sótt af t.d. skólahópum og svo almennum ferða- mönnum. Það er mat okkar að fyrir FÍ felist margvíslegur ávinningur í þessum kaupum og ná megi fram hagræðingu með samþættingu við starfsemi í Langadal. Þar er Skag- fjörðsskáli, sem er samofinn sögu FÍ og ein af táknmyndum þess. Allt ber þetta að sama brunni; Þórsmörk er okkur kær og við teljum skyldu okk- ar að byggja upp aðstöðu og veita þjónustu á svæðinu,“ segir Páll. Haslar sér völl í Húsadal  Ferðafélag Íslands kaupir byggingar af Kynnisferðum fyrir alls 125 milljónir  Bætir aðstöðu á lokapunkti Laugavegarins, fjölförnustu gönguleiðar landsins Húsadalur Ferðafélag Íslands hefur nú numið þar land og keypt aðstöðuna. Árið 1979 sýndi Félagsstofnun stúdenta söngleikinn Skeifa Ingibjargar eftir Benóný Æg- isson. Innblásturinn að verkinu var að sögn Benónýs eina myndin af Jóni og Ingibjörgu sem varð- veist hefur. Á henni má sjá Ingibjörgu með mikinn skeifu- svip sem varð honum að um- hugsunarefni. ,,Ingibjörg var mun eldri en Jón sem lét hana bíða í ein tólf ár á meðan hann var úti í Kaup- mannahöfn án þess að sýna mikinn áhuga á því að fá hana út til sín,“ segir Benóný. Skeif- an fræga var því afrakstur bið- arinnar löngu sem sumir hafa túlkað þannig að Ingibjörg hafi skipt um lið í fjarveru Jóns ef svo mætti að orði komast. Ben- óný vill ekkert gefa upp um það en segir helsta markmið verksins hafa verið að færa Jón niður af þeim stalli sem hann var kominn á og gera hann mennskari fyrir vikið. Þá var Ingibjörg einnig svo- lítið gleymd að sögn Benónýs sem bendir á að blómsveigur sé lagður að leiði Jóns hinn 17. júní ár hvert en fáir muna eftir því að Ingibjörg liggur þar líka. Fleiri sögufrægir Íslendingar, sem bjuggu í Kaupmannahöfn lengst af en lofuðu Ísland í verkum sínum, koma við sögu. Þannig er skoðað hvernig Ís- lendingar hafa varðveitt þann þjóðararf sem þessir ein- staklingar skildu eftir sig. Verkið var svo sett upp að nýju á Grand Rokk fyrir tveim- ur árum. Skeifa Ingibjargar Sigursteinn varð fimm sinnum Íslandsmeistari með Skagamönnum og fjórum sinnum með KR-ingum. Á síðustu áratugum mun enginn hafa fagnað meistaratitli í knattspyrnu jafnoft. Sigursteinn lék 22 landsleiki fyrir Íslands hönd og í hálft ár var hann á lánssamningi hjá Stoke í Eng- landi meðan Guðjón Þórðarson var þar við stjórnvölinn. Hann segist hafa átt möguleika á að fara í atvinnumennsku til Skandinavíu, en ekki haft áhuga. Hann var í nokkur ár aðstoðarþjálfari hjá KR og var á sínu þriðja ári sem þjálfari Leiknis í Breiðholti þegar veikindin gerðu vart við sig. Á morgun, laugardag, hafa vinir Sigursteins blásið til „Meist- araleiks Steina Gísla“ á Akranesi. Þar mætast samherjar hans úr meistaraliðum ÍA og KR klukkan 17.15 og verður þar mörg kempan á ferð. „Þeir eru aldeilis búnir að blása til sóknar gömlu vinirnir í þessum félögum,“ segir Sigursteinn. „Þegar ég frétti af þessu hugsaði ég með mér að það yrði gaman að hitta alla strákana. Síðan hefur þetta und- ið upp á sig enda eru þeir stórhuga þessir strákar og ég er þakklátur fyrir allan þennan vinarhug,“ segir Sig- ursteinn. Gömlu vinirnir blása til sóknar MARGFALDUR MEISTARI OG LANDSLIÐSMAÐUR Í baráttunni með Skagamönn- um gegn KR. Samkvæmt veðurspá fyrir þjóðhá- tíðardaginn lítur út fyrir að ýmist verði vætusamt eða skýjað á land- inu. Spáð er dálítilli rigningu eða súld með köflum en norðanlands og suðvestanlands verður skýjað og úrkomulítið. Hiti verður á bilinu 5 til 16 stig en hlýjast verður á suð- vestanverðu landinu. Skýjað verður um helgina en bjart á köflum og út- lit fyrir sólskin víða á sunnudag. Súld og skýjað á þjóðhátíðardaginn Hæstiréttur stað- festi í gær 2½ árs fangelsisdóm yfir Mohamed J. Turay sem fund- inn var sekur um nauðgun í mars árið 2009. Nýtti hann sér að fórn- arlambið, ung kona, gat ekki spornað við samræði og endaþarmsmökum sökum svefn- drunga og ölvunar. Honum var einn- ig gert að greiða konunni 800 þús- und krónur í miskabætur. Turay neitaði við fyrstu yfir- heyrslu hjá lögreglu að hafa haft samfarir við konuna. Í síðari yfir- heyrslu breytti hann framburði sín- um og viðurkenndi að hafa haft við hana samræði, með hennar vilja. Dómurinn taldi að það rýrði veru- lega sönnunargildi Turays að hann hefði ekki borið á sama hátt um málsatvik frá upphafi. Var því byggt á staðfastri frásögn konunnar, sem studd var öðrum gögnum, og skýr- ingum Turays hafnað. 2½ ár fyrir nauðgun Jón Sigurðsson 200 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.