Morgunblaðið - 17.06.2011, Page 4

Morgunblaðið - 17.06.2011, Page 4
SVIÐSLJÓS María Elísabet Pallé mep@mbl.is Það var tilfinningaþrungin stund í bland við þjóðhátíðarstemningu í Nauthólsvík í gær. Stór hópur stuðn- ingsmanna, barna og fullorðinna, hafði safnast saman til að hlaupa með fjórmenningunum síðustu 1,5 km og ljúka þar með hlaupinu í kringum landið til styrktar krabbameins- sjúkum börnum. Sólin skein á hetj- urnar sem höfðu hlaupið vel um 1.350 km og var síðasti spretturinn tileink- aður syni þeirra Signýjar Gunn- arsdóttur og Sveins Benedikts Rögn- valdssonar, Gunnari Hrafni. Foreldrar hjóluðu með lítil börn, hlupu með börn í kerrum og litlir fæt- ur hlupu sennilega sinn fyrsta kíló- metra með heimilishundinn í eft- irdragi. Hlaupararnir voru sólbrúnir og sællegir. „Mér líður rosalega vel andlega, kannski ekki alveg eins vel lík- amlega,“ sagði Signý áður en hún lagði af stað í síðustu 1,5 km. „Ég er rosalega ánægð með söfn- unina, þetta hefur farið fram úr okk- ar björtustu vonum.“ Þegar hópurinn kom á endastöð við Valsheimilið voru mikil fagn- aðarlæti og hamingjuóskum rigndi yfir hetjurnar sem söfnuðu hátt í tólf milljónum króna með framtaki sínu. Mikil gleði braust út og hjá sumum stuðningsmannanna mátti greina gleðitár. „Þetta er svo óraunverulegt ennþá, ég er ekki alveg búin að átta mig á því að ég sé búin að þessu,“ sagði Alma María Rögnvaldsdóttir, systir Sveins, við komuna í Valsheimilið. Hlupu sig í gott form „Þetta er alveg ótrúlega mögnuð tilfinning. Við erum búin að hlaupa okkur í gott form. Styrkurinn er orð- inn mjög mikill, það kemur á óvart,“ sagði Alma María. „Það efldi mann mjög að finna allan þennan stuðning, hversu vel fólk hefur staðið við bakið á okkur kemur mest á óvart í þessu verkefni. Börnin hafa fylgt okkur frá Akureyri. Ég var samt í burtu frá þeim í níu daga sem er meira en ég hef nokkurn tímann gert. Þetta er bara algjörlega þess virði, alveg mögnuð tilfinning.“ „Ætli maður hvíli sig ekki eitthvað aðeins, ég hleyp alla vega ekki meira í dag. Ég æfi hlaup en þetta er alveg frábær árangur hjá hópnum,“ sagði Guðmundur Guðnason, maraþon- hlauparinn í hópnum, maður Ölmu Maríu. „Alveg mögnuð tilfinning“  Fjórmenningarnir hlupu 1.350 km  Fólk hefur sýnt mikinn stuðning Söfnun til styrktar krabbameinssjúkum börnum » Hlupu í kringum landið frá 2.-16. júní, 1.350 km » Tæpar tólf milljónir hafa safnast. » Stuðningurinn efldi hlaup- arana mikið. » Signý Gunnarsdóttir hljóp meidd hluta leiðarinnar. » Söfnunin fór fram úr björt- ustu vonum. Morgunblaðið/Eggert Áfangi Signý, Sveinn, Alma María og Guðmundur fagna árangrinum að hlaupa hringinn til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Morgunblaðið/Eggert Fögnuður Fjöldi fólks tók á móti fjórmenningunum í Valsheimilinu. Á sérstökum minningarfundi um Jón Sigurðsson sem haldinn var á Alþingi hinn 15. júní síðastliðinn var samþykkt þingsályktunartillaga forsætisnefndar Alþingis um stofn- un sérstakrar prófessorsstöðu tengda nafni hans. Með stöðunni er Alþingi að heiðra minningu Jóns og störf hans sem forseta Alþingis. Hún er þakk- lætis- og virðingarvottur fyrir fram- lag hans á Alþingi bæði sem stjórn- málaleiðtogi þingsins og sem hinn formlegi forustumaður þess. Helstu verkefni tengd stöðunni verða tengd árlegu ráðstefnu- og námskeiðahaldi í tengslum við starf sumarháskólans á Hrafnseyri ásamt rannsóknum og kennslu á sviðum sem tengjast lífi og starfi Jóns. Við skipun í prófessorsembættið verði höfð hliðsjón af því hvernig áætlun umsækjenda um rannsókn- arstarf og kennslu tengist lífi, starfi og arfleifð Jóns Sigurðssonar og efli þekkingu á sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Gert er ráð fyrir að ráða í stöðuna frá og með næstu áramótum. Staðan er við Háskóla Íslands en starfsskyldur verða tengdar Rann- sóknarsetri Háskólans á Vest- fjörðum og Háskólasetri Vestfjarða. Ætlast er til að prófessorinn hafi búsetu í grennd við setrið. Skipað verður í stöðuna til fimm ára og heimilt verður að endurnýja skipunartímann einu sinni. Verkefnið er hluti af áætlun Há- skólans um uppbyggingu rann- sókna- og fræðasetra á lands- byggðinni sem nú eru orðin átta talsins. Prófessorsstaða Jóns Sigurðssonar 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2011 Spölur hf. hefur ákveðið að hækka veggjald í Hval- fjarðargöngin um nærri 10% frá og með 1. júlí nk. Gjald fyrir staka ferð í I. gjald- flokki fer úr 900 í 1.000 krónur og hver ferð áskrif- anda með 100 ferða veglykil fer úr 259 í 283 krón- ur. Inneign áskrifenda minnkar sjálfkrafa við gjaldskrárbreyt- inguna, þ.e. ónotuðum ferðum fækk- ar sem svarar til hækkunar gjalds- ins. Meginástæður fyrir þessari ákvörðun segja Spalarmenn vera minnkandi umferð um göngin. Um- ferð hafi dregist verulega saman og tekjur af veggjaldi rýrnað töluvert. Einnig er nefnd hækkandi greiðslu- byrði af lánum, hækkandi verðlag og fjárfestingar í göngunum til að upp- fylla öryggiskröfur ESB, eða fyrir um 225 milljónir á þessu og síðasta ári. Búist er við 6% samdrætti í um- ferðinni í ár. bjb@mbl.is Gjaldið í göngin hækkar Nærri 10% hækkun veggjalda frá 1. júlí Minni umferð og hærra veggjald. Undirritaður hef- ur verið samn- ingur um sölu á rekstrarfélagi Tíu-ellefu ehf. frá Eignabjargi ehf., dótturfélagi Ar- ion banka, til fé- lags í eigu Árna Péturs Jóns- sonar. Í tilkynningu sem Arion banki sendi frá sér í apríl og í auglýsingum sem birtar voru í kjölfarið var rekstrarfélag Tíu-ellefu auglýst til sölu. Í kjölfar kynningar á félaginu var kallað eftir tilboðum frá áhugasömum fjárfestum og á þeim grundvelli var ákveðið að ganga til viðræðna við fyrrgreindan aðila sem átti hagstæðasta tilboðið. Árni Pétur var áður forstjóri Teymis og Vodafone en lét af störf- um hjá félögunum árið 2009. Hann stýrði áður matvælasviði Baugs. Gengið frá sölu á 10-11 Árni Pétur Jónsson Jón Sigurðsson 200 ára Kristel Finnbogadóttir kristel@mbl.is Spretta gróðurs er lítil og þröngt er um beitarhaga. Víða eru tún veru- lega kalin og það er staðreynd að menn eru orðnir heylausir. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu Bú- garðs, ráðgjafarþjónustu á Norð- austurlandi, í gær. „Við erum að horfa á starfssvæði okkar sem nær frá Siglufirði til Bakkafjarðar en þetta á líka við um hluta Austur- lands,“ segir María Svanþrúður Jónsdóttir, héraðsráðunautur hjá Búgarði. Hún segir ástand á svæðinu ekki gott en misjafnt sé hve slæmar aðstæður eru. Nýta þarf allar slægjur „Það er ljóst að margir eru að klára sínar heybirgðir og það eru dæmi um að verið sé að miðla heyi á milli bæja,“ segir María. Mikið hey fer í sauðfé núna þar sem úthagi er lítið farinn af stað. Þá hafa fáir bændur treyst sér til að setja kýr út. Eru bændur hvattir til að nýta allar slægjur sem sláanlegar eru og láta vita af slægjum sem þeir hyggjast ekki nýta en gætu komið öðrum til góða. Þá eru bændur sem sjá fram á ónógan heyfeng í sumar hvattir til að hafa samband við ráðunauta en stefnt er að heymiðlun eftir þörfum. Að sögn Maríu eru skilyrði til að laga skemmd tún víða erfið vegna bleytu og óvíst hvort hægt er að vinna þau. „Á kalárum hafa menn yfirleitt sáð einærum grösum til að fá meira fóð- ur, til dæmis rýgresi og höfrum. Af því getur orðið ágæt uppskera en ef menn vilja reyna þetta í ár þurfa þeir að sá fyrir lok mánaðarins til að ná sprettutímanum,“ segir María. Mannlegi þátturinn mikilvægur María segir að tíminn muni leiða í ljós hve víðtækar afleiðingar verði af harðindunum. Í þessu skiptir veður- far öllu máli. Einungis er hægt að vona að hlýna fari og gróður fari að taka við sér. „Það er þreyta í fólki. Í svona ástandi skiptir mannlegi þátt- urinn miklu máli því menn verða að hafa andlegt þrek til að standa þessa erfiðleika af sér,“ segir María. Víða kalskemmdir á tún- um og gróðurspretta lítil  Heyi miðlað milli bæja  Þreyta er í fólki vegna aðstæðna Kalskemmdir Víða eru tún kalin á Norð- austurlandi. Myndin er úr safni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.