Morgunblaðið - 17.06.2011, Side 14

Morgunblaðið - 17.06.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2011 Morgunblaðið og mbl.is hafa efnt til hugmyndasamkeppni á meðal lesenda sinna um nafn á hæsta fossi Íslands sem mynd- aðist í Morsárjökli. Kominn er hnappur „Hvað á fossinn að heita?“ á forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á hann opnast eyðublað þar sem les- endur geta skráð tillögu sína að nafni og merkt hana nafni, heimilisfangi og símanúmeri. Hugmyndasamkeppninni lýkur á hádegi fimmtudaginn 30. júní næstkomandi. Ritstjórn Morgunblaðsins mun fara yfir tillögurnar og velja þær sem hún telur koma til greina sem nafn á fossinn. Veitt verða þrenn vegleg bóka- verðlaun fyrir þær tillögur sem þykja skara fram úr. Nið- urstaðan verður tilkynnt í Morgunblaðinu og á mbl.is laugardaginn 2. júlí næstkom- andi. Tillögurnar verða síðan send- ar örnefnanefnd sem tillögur að nafni á fossinum. Ljósmyndir/Jón Viðar Sigurðsson Hvað á fossinn að heita? Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hæstu fossa landsins er líklega að finna í klettabelti innarlega á Mors- árjökli í Öræfum. Fossar þessir hafa stækkað og hækkað eftir því sem jök- ullinn hefur hopað og rýrnað. Jón Viðar Sigurðsson jarðfræð- ingur hefur fylgst með svæðinu allt frá því hann fór fyrst á Morsárjökul 1983. Mikið jarðhlaup varð vorið 2007 þegar um fimm milljóna tonna berg- flykki losnaði úr snarbröttum hrygg inn af Birkdal. Neðri endi skriðunnar var nærri tvo kílómetra frá brots- árinu. Nýju fossarnir eru nálægt þar sem berghlaupið varð. Jökullinn nær alveg fram á brún þverhnípts hamars. Vatnið undan jöklinum steypist fram af brúninni og myndar fossana. „Vatnsmagnið er breytilegt. Þetta er breiðufoss sem fellur í mörgum kvíslum sem eru breytilegar frá ári til árs,“ sagði Jón. Sumir fossanna eru þó á sama stað. Inni í hvilftinni eru fleiri fossar sýnilegir. Sumir þeirra eru talsvert vatnsmiklir. Jón Viðar sagði að Morsárjökull hefði þynnst um átta metra á ári að jafnaði síðustu árin og skaflarnir eitt- hvað svipað. Hann sagði að sig hefði lengi grunað að fossarnir væru þeir hæstu hér á landi. Jón Viðar fór til mælinga ásamt fleirum á Morsárjökli á sunnudaginn var. Að þessu sinni tók hann með sér hornamæli og sló máli á hæð fossanna. Hann mældi hæðina vera að minnsta kosti 228 metra en hann telur að líklega séu þeir nær 250 metra háir. „Þessir fossar koma alltaf betur og betur í ljós og stækka ár frá ári. Mað- ur veit ekki nákvæmlega hversu hátt þetta er. Þetta var einföld hornamæl- ing sem við gerðum. Þeir eru örugg- lega vel yfir 200 metrar og eitthvað nær 250 metrum.“ Það veldur erfiðleikum við að mæla raunverulega hæð fossanna að vatnið steypist niður í sprungu upp við berg- stálið. Þar fyrir framan eru háir skafl- ar sem byrgja sýn að sprungunni. Fallhæðin er því meiri en við blasir á myndum. Nú er stöðugt og mikið ís- hrun úr jökulstálinu á brúninni fyrir ofan og því óðs manns æði að fara alla leið að sprungunni til að mæla dýpt hennar á þessum árstíma. Jón Viðar taldi að það yrði frekar hægt seinna í sumar þegar íshrunið minnkaði. Fossafansinn í Morsárjökli Helstu fossar landsins Grunnkort: Landmælingar Íslands Nýr foss á Morsárjökli (líklega) 240 m Hengifoss íHengifossá 128 m Dettifoss íJökulsáá Fjöllum44m Goðafoss í Skjálfanda- fljóti 12 m Dynjandi 140 m (Fjallfoss 100 m) Gullfoss íHvítá 32 m Háifoss í Fossá 122 m Hrauneyja- foss íTungnaá 122 m Skógafoss í Skógá 62 m Seljalands- foss í Seljalandsá 65 m Hjálparfoss í Fossá 13 m Glymur íBotnsá 190 m Ljósm ynd:M ats.is 240 m 190 m 140 m 128 m 122 m 65 m 62m 44m 32 m 29m 13 m 12 m 74,5 m Nýr foss á Morsárjökli Glymur í Botnsá Dynjandi í Arnarfirði Hengifoss í Hengifossá Háifoss í Fossá Hallgrímskirkja Seljalandsfoss í Seljalandsá Skógafoss í Skógá Dettifoss í Jökulsá á Fjöllum Gullfoss í Hvítá Hrauneyjafoss í Tungnaá Hjálparfoss í Fossá Goðafoss í Skjálfandafljóti Nýr foss Skaftafell Sk af ta fe lls jök ull M or sá rj. Vatnajökull Morsárjökull Háu fossarnir eru til hægri á myndinni. Til vinstri má sjá afar kraftmikinn foss sem einnig er nafnlaus líkt og hinir fossarnir í fjallasalnum á jöklinum. Fossarnir sjást ekki vel fyrr en komið er upp á skriðjökulinn. Ragnarstindur Jökullinn er brattur rétt neðan við nafnlausu fossana. Skannaðu kóðann til að senda inn hugmynd um nafn á fossinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.