Morgunblaðið - 17.06.2011, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 17.06.2011, Qupperneq 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2011 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Eins og alkunna er, var allt betra í gamla daga. Þá voru handfæra- veiðar leyfðar, Dúmbó-kvintettinn var vinsælasta hljómsveitin og epla- át var aðeins leyft á jólunum. Í anda þess ætlar Dúmbó-kvintettinn að koma aftur saman í Gamla kaup- félaginu á Akranesi núna, um fimm- tíu árum eftir að hann var stofnaður. Á sunnudaginn munu þeir spila þar milli klukkan 15 og 17 og verða vöffl- ur og kaffi í boði Akraneskaup- staðar. Kvintettinn var í fyrstu skip- aður þeim Leifi Magnússyni (14 ára) á bassa, Trausta Finnsyni (14 ára) á píanó, Gunnari Sigurðssyni (15 ára) á trommur, Jóni Trausta Hervars- syni (15 ára) á tenórsaxófón og Ólöfu (Lóu) Gunnarsdóttur (17 ára) sem sá um sönginn. Gísli S. Einarsson (15 ára) gítarleikari kom svo í hópinn þegar hann kom heim af síldinni. Alltaf fullt í gamla daga Í gamla daga voru þessar skemmtanir kallaðar rellur og rekstrarsjón og var blaðamaður for- vitinn um hvaðan þessi orð væru komin, en Gunnar Sigurðsson, einn upphafsmanna Dúmbó-kvintettsins, hafði ekki hugmynd um það. „Þetta var bara kallað þetta,“ segir Gunnar. Aðspurður hvernig það kom til að þeir ákváðu að spila aftur núna eftir langt hlé segir hann að Jón Trausti hafi fengið hugmyndina. „Mér fannst hún alveg fráleit til að byrja með, en svo skipti ég um skoðun. Ótrúlegt nokk þá erum við allir lif- andi ennþá og höfum komist yfir æf- ingar án vandræða. Í það minnsta munum við hafa gaman af þessu, þetta er bara spurning um áhorf- endur. Ég veit ekkert hvernig þeim mun falla við þetta. En þegar við vorum að þessu á sínum tíma var alltaf fullt hús af fólki á öllum aldri,“ segir Gunnar. Aðspurður hvort þeir muni endurtaka þessa skemmtun segir hann að það verði bara ákveðið á sunnudaginn. Spurningunni hvort þeir taki kannski upp plötu í fram- haldinu svarar hann; „Ég held nú ekki.“ Dúmbó-kvintettinn snýr aftur með glans  Um hálf öld er síðan Dúmbó-kvintettinn kom fyrst saman  Mun leika og syngja á Akranesi yfir vöfflum með rjóma Í árdaga F.v. Jón Trausti Hervarsson, Trausti Finnsson, Ólöf Gunnarsdóttir, Leifur Magnússon, Gunnar Sigurðsson og Gísli S. Einarsson með gítar. Í dag F.v. Trausti Finnsson, Gunnar Sigurðsson, Leifur Magnússon, Jón Trausti Hervarsson, Ólöf Gunnarsdóttir og Gísli S. Einarsson. á allar sýningar merktar með grænu1.000SPARBÍÓ 3D BEINT Á TOPPIN N Í USA HHHH „Djarfasta og best skrifaða X-Men-myndin til þessa.” -T.V., Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt HHHH „Þetta er sannarlega fyrsta flokks ofurhetjumynd!“ -Þ.Þ., Fréttatíminn 100/100 "THE YEAR'S MOST THRILLING, FEELING MAINSTREAM MOVIE." - TIME "SUPER 8 IS A THRILLING RETURN TO MOVIE MAGIC OF OLD, FILLED WITH WONDER, HORROR AND CHILLS." - JIMMYO, JOBLO.COM HHHH "SUPER 8 ER AUÐVELDLEGA BESTA SUMARMYND ÁRSINS EF EKKI BESTA SUMARMYND SEM HEFUR KOMIÐ Í ÁRARAÐIR." - ENTERTAINMENT WEEKLY HHHHH "SUPER 8 ER NÁNAST FULLKOMIN" - QUICKFLIX HHHH HHHH "SPENNANDI OG DULARFULL ALLA LEIÐ... EIN AF ÓVÆNTARI MYNDUM ÁRSINS." - KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ & HEYRT SUPER 8 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 12 THE HANGOVER 2 kl. 6 - 8 - 8:25 12 X-MEN: FIRST CLASS kl. 5:10 - 8 - 10:45 14 KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 3 - 5:30 L PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 3 - 8:20 10 DÝRAFJÖR 3D ísl. tal kl. 3 L / ÁLFABAKKA / EGILSHÖLL SUPER 8 kl. 2 - 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 - 11:30 12 KUNG FU PANDA 2 3D M/ísl. kl. 1:20 - 2 - 4 - 6 L SUPER 8 kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 VIP KUNG FU PANDA 2 M/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 9 - 10:20 12 KUNG FU PANDA 2 M/ensku tali kl. 10:20 M.texta L PIRATESOFTHECARIBBEAN kl. 6 -8 -10:50 10 SOMETHING BORROWED kl. 8 L EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS SÝND Í EGILSHÖLL OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.