Morgunblaðið - 17.06.2011, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 17.06.2011, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 2011 Kvikmyndin Super 8 er velgerð mynd en söguþráð-urinn þótti mér örlítiðþunnur. Myndin er falleg og hjartnæm og tekur á erfiðum tengslum foreldra og barna sem og illskiljanlegum fyrirbærum. Hún minnti mig á E.T. og Goonies, nema auðvitað með miklu betri brellum, og nánast ósambærilegt. Ég hafði gert miklar væntingar til Super 8. Stiklu úr myndinni sá ég um daginn, sem fékk hárin til að rísa og var ég viss um að þarna væri um að ræða meist- araverk, í boði J.J. Abrams og meistara Stevens Spielbergs. Myndin fjallar um krakkahóp í smábæ í Ohioríki í Bandaríkjunum, þau Joe, Alice, Cary, Preston, Charl- es og Martin. Krakkarnir eru að taka upp stuttmynd og við vinnslu verða þau vitni að hræðilegu lest- arslysi. Bandaríski flugherinn er óvenjusnöggur á staðinn en und- arlegir atburðir fara að eiga sér stað eftir slysið. Hundar flýja bæinn og fólk og hlutir fara að hverfa á dul- arfullan hátt. Herinn getur þó engin svör gefið og lögreglunni í bænum líst ekki á blikuna. Krakkarnir ákveða að rannsaka málið upp á eig- in spýtur þegar það er ljóst að engu verði bjargað. Í hléi áttaði ég mig á því að ég var enn að bíða eftir ein- hverju ákveðnu. Lestarslysið umtal- aða hafði þó átt sér stað sem var virkilega trúverðugt og vel gert. Engu að síður fann ég fyrir smá- svekkelsi en var ákveðin í því að nú hlyti allt að fara að gerast. Fljótlega rann það upp fyrir mér að búið væri að magna upp ákveðna spennu sem náði ekki alveg að standa undir sér. Krakkarnir í myndinni fá þó topp- einkunn fyrir leik og það er alveg óhætt að fullyrða að þau slógu eldri kynslóðina út hvað það varðar. Elle Fanning fær sérstaklega mikið hrós fyrir að túlka stúlkuna Alice. Ég hefði þó viljað kynnast eldra fólkinu betur, eins og til dæmis faðir Alice, sem ég er ennþá forvitin um. Krakkahópurinn var fyndinn og skemmtilegur og fékk salinn oft til að skella upp úr. Börnin stóðu sig bara eins og hetjur. Super 8 finnst mér ekki komast á þann stall sem titlaður er „klassík fyrir krakka“ eins og áðurnefnd E.T., en hins veg- ar er þetta klárlega mynd sem verð- ur að sjá í bíó. Super 8 bbbmn Leikstjóri: J.J. Abrams. Leikarar: Elle Fanning, Amanda Michalka og Kyle Chandler. 2011. Framleidd í Bandaríkj- unum. Lengd: 112 mín. GUNNÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR KVIKMYNDIR Börnin toppuðu fullorðna Sjálfstæð Krakkarnir ganga í málið. „Hugmyndin er sú að gera söguna aðgengilega fyrir krakka og hjálpa þeim að ferðast til baka með því að draga fram hliðar á sögunni sem krakkar gætu haft áhuga á,“ segir Brynhildur Þórarinsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri. Í dag kemur út ný bók eftir Brynhildi sem ber titilinn „Óska- barn – Bókin um Jón Sigurðsson“. Brynhildur hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir bækur sínar, m.a. Norrænu barnabókaverðlaun- in fyrir endursögn sína á Íslend- ingasögunum Njálu, Eglu og Lax- dælu og bókin um Jón er í svipuðum anda. „Við förum að sjálfsögðu yfir sjálfstæðisbaráttuna, en fyrst og fremst reynum við að segja frá því hvernig var að vera barn á fyrri hluta 19. aldar. Við vildum gera þetta áhugavert fyrir börn með því að draga upp mynd af Jóni sem hluta af samfélaginu. Hann er son- ur, fósturpabbi og eiginmaður og við förum inn í fjölskyldulífið og hvernig það mótar hann. Hvernig var tæknin? Hvað fengu krakkar að leika sér með? Hvernig voru samgöngur milli landshluta og milli landa?“ segir Brynhildur. Fyrri bækur Brynhildar hafa víða verið notaðar í kennslu og ekki ólíklegt að eins verði um bókina um Jón. Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla ber að fræða börn í 8. bekk um Jón en Brynhildur segir að þessi bók sé ætluð börnum allt niður í 8-10 ára aldur. „Mér fannst rétt að kynna Jón fyrir yngri hópi en fermingarkrökk- unum, þeim sem eru kannski mest að halda upp á 17. júní, og skapa tengingu við eitthvað meira en blöðrurnar,“ segir Brynhildur. Bók- in er myndskreytt af Sigurjóni Jó- hannssyni en þau Brynhildur unnu einnig saman að sýningu fyrir börn um Jón í Þjóðmenningarhúsinu. Óskabarnið á nýrri bók Jón Sigurðsson 200 ára 750 kr. á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ ÞRÍVÍDD EINS OG HÚN GERIST BEST FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN HHHH - BOX OFFICE MAGAZINE 90/100 THE HOLLYWOOD REPORTER SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI HHHH “SJÓNRÆN VEISLA” “STÓR SKAMMTUR AF HASAR” - K.H.K. - MORGUNBLAÐIÐ HHHH “SANNKALLAÐUR GIMSTEINN! HIN FULLKOMNA SUMARMYND Í ALLA STAÐI. JACK SPARROW ER SANNARLEGA KVIKMYNDAFJÁRSJÓÐUR” - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE HHHH "KUNG FU PANDA 2 ER SKOTHELD SKEMMTUN." - Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN HHHH “IT ACTUALLY IMPROVES ON THE JOKES” - TIME OUT NEW YORK HHHH “EIGINLEGA NAUÐSYNLEGT FYRIR MIG AÐ SJÁ MYNDINA AFTUR...” - R.M. - BÍÓFILMAN.IS “BANGKOK ADVENTURE IS NOT WITHOUT ITS SHOCKING, LAUGH-OUT-LOUD MOMENTS.” - HOLLYWOOD REPORTER 80/100 RÓMANTÍSK GAMANMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR. ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND SEM ÞÚ MUNT ELSKA! „MYNDIN ER FRÁBÆR: KYNÞOKKAFULL OG FYNDIN“ - P.H. BOXOFFICE MAGAZINE HHHH - IN TOUCH HHHH SÝND Í ÞRÍVÍDD MEÐ ÍSLENSKU TA LI DÝRAF JÖR FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA 90/100 VARIETY JACK SPARROW ER MÆTTUR Í STÆRSTU MYND SUMARSINS! MIÐASALA Á SAMBIO.IS SUPER 8 kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 12 KUNG FU PANDA 2 3D M/ísl. tali kl. 4 - 6 L KUNG FU PANDA 2 3D M/ensku tali kl. 8 Ótextuð L THE HANGOVER 2 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 PIRATES OF THE CARIBBEAN 4 3D kl. 10 10 DÝRAFJÖR 3D ísl. tal kl. 4 L KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 6 L SUPER 8 kl. 8 - 10:20 12 PIRATES OF THE CARIBBEAN kl. 5 10 THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 12 SUPER 8 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 BRIDESMAIDS kl. 8 - 10:30 12 KUNG FU PANDA 2 3D ísl. tal kl. 5:50 L / KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK SUPER 8 kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 KUNG FU PANDA 2 ísl.tal kl. 6 L THE HANGOVER 2 kl. 8 12 X-MEN:FIRSTCLASS kl. 10:20 14 / SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI OG EGILSHÖLLSÝND Í ÁLFABAKKA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.