Morgunblaðið - 03.09.2011, Page 1
Fjöldi atvinnulausra
sem missa bótarétt á
næstu 3 mánuðum
Erlendir ríkis-
borgarar 13
Íslenskir ríkis-
borgarar 102
Samtals: 115
Baldur Arnarson
Kristján Jónsson
Á fimmta þúsund manns hafa verið
án vinnu í samtals ár eða lengur.
Takist ekki að ganga á atvinnuleysið
í þessum hópi er viðbúið að fjöldi
fólks missi rétt til atvinnuleysisbóta
á næsta ári og þurfi því að leita til
sveitarfélaga um aðstoð.
Vignir Hafþórsson, sérfræðingur
hjá Vinnumálastofnun, staðfestir að
fjöldi fyrirspurna hafi komið inn á
borð stofnunarinnar frá sveitarfélög-
um að undanförnu, þar sem spurst sé
fyrir um hversu margir séu að fara
að missa rétt til atvinnuleysisbóta.
Vignir treystir sér ekki til að
áætla hversu margir missi bótarétt-
inn á næsta ári en upplýsir að þeim
fjölgi að óbreyttu er líður á árið.
Næsta ár gæti reynst erfitt
Alls missa 115 bótaréttinn á næstu
þremur mánuðum og liggur ekki fyr-
ir hversu hátt hlutfall þeirra er með
börn á framfæri sínu.
Hjördís Árnadóttir, félagsmála-
stjóri hjá Reykjanesbæ, sagði að
þessi vandi hefði byrjað fyrr þar en
víða annars staðar vegna lokunar
herstöðvarinnar árið 2006. Um 200
manns hefðu nú misst réttinn til at-
vinnuleysisbóta eða aldrei haft slík-
an rétt og því þurft að fá fjárhags-
aðstoð frá sveitarfélaginu í ágúst.
Oftast væri um að ræða fólk sem
aldrei hefði unnið sér inn bótarétt,
t.d. nýútskrifað námsfólk og fólk
sem hefði unnið sjálfstætt. Útgjöld
bæjarins vegna þessa hóps væru nú
á annað hundrað milljónir króna ár-
lega sem bættust ofan á mikil útgjöld
vegna félagslegs húsnæðis, samtímis
því sem útsvarstekjurnar dvínuðu.
„Þetta er falinn vandi af því að
þegar nefndar eru atvinnuleysistöl-
ur vantar þennan hóp inn í þær,“
sagði Hjördís.
MTifandi bótasprengja »21
Bótarétturinn að renna út
Á annað hundrað manns missa rétt til atvinnuleysisbóta í haust Í Reykja-
nesbæ fengu um 200 aðstoð í ágúst af því að atvinnuleysisbætur voru ekki í boði
KRAFTUR BLÓM-
ANNA FANG-
AÐUR Í FLÖSKU
SKIPTA UM
HLUTVERK Í
LEIKRITI
VERKIN SPANNA
ALLA LISTA-
MANNSÆVINA
SUNNUDAGSMOGGINN SÝNINGIN ERRÓ-TEIKNINGAR 42MÁTTUR BLÓMADROPA 10
Reuters
Grímsstaðir Huang Nubo hefur lagt inn
kauptilboð í stóran hluta jarðarinnar.
Fjöldi fólks hefur haft samband
við Hjörleif Sveinbjörnsson, vin
kaupsýslumannsins kínverska Hu-
ang Nubo, til að reyna komast í við-
skipti við hann. Meðal þess sem
nefnt hefur verið eru hótelbygg-
ingar í Reykjavík og Hafnarfirði.
Þá segir hann fólk á Norðaust-
urlandi mjög áhugasamt og margir
í nágrenninu hafi nefnt möguleika
á samstarfi. Þá hefur markaðsstofa
ferðamála á Norðurlandi lýst yfir
fögnuði yfir áformum Nubo til að
standa fyrir uppbyggingu á svæð-
inu.
Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra segir ærið tilefni til að
taka til endurskoðunar alla löggjöf
vegna landeignarstefnu. »20
Margir vilja eiga
í viðskiptum við
Huang Nubo
Morgunblaðið/Árni Torfason
Vændi Lísa leitaði sér hjálpar hjá
Stígamótum til að komast úr vændi.
„Ég byrjaði árið 2007. Þá kom ég
úr sambandi og var í miklum skuld-
um. Ég sá í fréttum að það væri bú-
ið að lögleiða vændi á Íslandi og
hugsaði sem svo að ég myndi bara
redda þessu svona,“ segir Lísa,
fyrrverandi vændiskona sem rætt
er við í Morgunblaðinu í dag. „Í
fyrstu törninni hélt ég það út í sex
mánuði. Ég setti mig í hlutverk og
sannfærði mig um að þetta væri
ekkert mál. Eftir hálft ár hætti ég
og fór í samband en það stóð ekki
lengi. Ég var skemmd,“ segir Lísa.
Eftir þriggja mánaða vændistörn í
fyrra ákvað hún að leita sér hjálpar
og sótti til Stígamóta þar sem verið
var að setja á laggirnar hóp fyrir
konur sem vildu koma sér út úr
vændi. „Meðferð mín á Stígamótum
gaf mér nýja von og núna er ég von-
góð um framtíðina. Ég held að það
komist enginn upp úr vændi án þess
að hafa stuðning.“
Í gær var opnað kvennaathvarf í
Reykjavík fyrir konur á leið úr
vændi og mansali. Árlega koma um
30-40 konur og nokkrir karlar í við-
töl á Stígamót vegna kláms og
vændis. »12
„Ég setti mig í hlutverk“
Ung kona leiddist út í vændi vegna fjárhagsvandræða
Ýmsar kynjaverur í öllum litum mátti sjá í mið-
borg Reykjavíkur um miðjan dag í gær. Þar á
meðal voru trúðar, fólk íklætt tjöldum, stífmál-
aðir aðdáendur hljómsveitarinnar Kiss og svo
fólk með pappakassa sem höfuðföt. Engum sög-
um fór af því hvað þarna lá að baki en víst er að
gestir miðborgarinnar skemmtu sér vel yfir
furðulegheitunum, sem settu óvenjulegan blæ á
annars hefðbundinn föstudag.
Litadýrð og furðulegheit í miðbænum
Morgunblaðið/RAX
„Það er [...] svo
hagkvæmt að
flytja í nýjan
spítala að reikn-
að er með að
hagræðingin
dugi fyrir bygg-
ingarkostn-
aðinum, með
vöxtum,“ segir
Björn Zoëga, for-
stjóri Landspítalans, um nýjan
Landspítala sem stefnt er á að
reisa. „Það er reiknað með að þeir
40 milljarðar sem þarf til að reisa
húsið verði endurgreiddir með
þeim fjármunum sem sparast við að
koma starfseminni fyrir á einum
stað.“ »26
Hagræðing borgar
byggingarkostnað
Björn Zoëga
Stofnað 1913 206. tölublað 99. árgangur
L A U G A R D A G U R 3. S E P T E M B E R 2 0 1 1
tvær nýjar bragðtegundir!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
7
3
7
0
NÝ
BRAGÐTEGUND– BÉARNAISE
NÝ
BRAGÐTEGUND– SÍTRÓNA OG
KARRÍ