Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 11
arnir hafa ótal eiginleika en þeir draga meðal annars úr örvæntingu, ótta og einmananaleika, gera fólki auðveldara með að eiga samskipti og bæta svefn. Teknir inn eða spreyjað „Það er hægt að gefa fólki á öllum aldri blómadropa við hverju því sem fólk er að glíma við. Það geta verið veikindi af ýmsum toga en droparnir gagnast líka til að ná árangri í því sem við erum að gera í okkar daglega lífinu. Í flestum til- vikum tekur fólk þá inn en það er líka hægt að setja þá í bað eða blanda þeim út í vatn. Sumum finnst bragðið af þeim ekki gott og þá er gott að þynna þá með vatni en það hefur enginn áhrif á kraft þeirra. Það er líka hægt að spreyja dropunum í kringum sig,“ segir Stefanía. Hún segir að það sé líka gott við blómadropana að þá er auðveld- lega hægt að taka með lyfjum. Hún hafi til að mynda fengið til sín fólk sem tekið hafi svefntöflur svo árum skipti og hafi verið hrætt við að hætta því. Þó að blómadropar komi ekki í staðinn fyrir lyf þá hafi það hins vegar komið á daginn að mörgum hafi fundist duga að nota blómadropana eftir einhvern tíma. Góður árangur Ég er forvitin að heyra hvort blómadropar virki í raun á alla, hvort maður þurfi kannski að vera „opinn“ fyrir slíkum aðferðum til að finna mun. Stefanía segist eiga svo margar sögur um árangur að það sé ekki annað hægt en að trúa á mátt blómadropanna. Sumir sem hafi prófað að taka dropana tali við sig um að þeim líði betur en þeir hafi jú bætt mataræðið og aukið hreyfinguna líka. Þannig vilji þeir kannski ekki alveg viðurkenna að droparnir hafi haft sín áhrif. Ég fæ með mér heim glas af blómadrop- um sem verka eiga á einbeitingu og róa hugann. Ég spreyja þeim upp í mig kvölds og morgna og get ekki annað fundið en þeir hafi eitthvað að segja. Græðari Stefanía Ólafsdóttir vinnur með huga og líkama sem eina heild. Blómadropar Droparnir hafa ótal eiginleika meðal annars að bæta svefn. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011 „Ég á von á því að sinna fjölskyldunni fram eftir degi, konu og tveimur dætr- um. Seinnipartinn geri ég mig svo kláran fyrir kvöldið, finn til spilagall- ann og athuga hvort strengirnir séu ekki örugglega í lagi á hljóðfær- inu,“ segir Hallur Guðmundsson bassaleikari og sérlegur óláta- belgur Varsjár- bandalagsins, en hljómsveitin sú ætlar að spila á Kaffi Haítí í kvöld. „Við höfum svo gaman af því að spila saman og notum hvert tækifæri sem gefst til þess. Svo er líka gott að boða fagnaðarerindið, leyfa nýju fólki að heyra og gaman að spila á nýjum stað.“ Allir hljómsveitarmeðlimir bera inn- an sviga nöfn sem hljóma vel við tón- listina sem þau spila. Hallur heitir til dæmis Boris Kassaviskíj. „Þetta varð til á sviði og hefur verið að mjatlast síðan við byrjuðum. Menn fóru í ein- hverju gríni að kalla mig Boris og þá smellti ég aftan við Kassaviskíj á ein- hverjum tónleikunum, bara af því það hljómaði rússneskt, en ekki vegna þess að ég sé mikið fyrir viskí. Síðan hafa nöfnin verið að detta inn og þau hafa náð að festast við okkur. Stund- um breytum við til og kynnum okkur með allt öðrum nöfnum, til dæmis kynnti ég okkur einhverju sinni sem ís- lensk tónskáld. Þetta er allt til gamans gert. Um leið og maður fer að taka sig of hátíðlega er ekkert gaman lengur.“ Hallur segir að Varsjárbandalagið hafi orið til fyrir tilviljun. „Sigríður harmonikkuleikari bandsins hitti konu úti í Kaupfélagi árið 2008 sem sagði henni að það vantaði hljómsveit til að spila balkantónlist við leikrit sem sýna átti á Listahátíð. Sigga sagði þá að bragði: „Þá stofna ég bara svona hljómsveit.“ Og það varð úr. Við urðum formlega til sem hljómsveit í febrúar 2009. Það var pláss á markaðnum fyr- ir svona hljómsveit svo við ákváðum að halda áfram að spila saman og hafa gaman.“ Hallur segir að þau hafi fengið góð viðbrögð við nýja diskinum Russian Bride. „Við erum mjög kát með útkom- una og höfum fengið góða dóma og diskurinn selst vel.“ Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og kostar 1.500 kr. inn. Hvað ætlar þú að gera í dag? Stemning Varsjárbandalagið er mikið gleðiband eins og hér má sjá. Ætlar að ólátabelgjast á tónleikum um helgina Hallur Guðmundsson Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Við ætlum fyrst og fremst að njóta þess að vera saman og fagna þessum tímamótum,“ segir Rósa Guðbjarts- dóttir, formaður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, sem fagnar tuttugu ára afmæli á morgun, sunnu- dag. „Í félaginu eru fjölskyldur 270 barna sem greinst hafa með krabbamein en árlega greinast um 10-12 börn með krabbamein á Íslandi,“ segir Rósa sem sjálf kom inn í félagið árið 2000 þegar sonur hennar greindist með krabbamein. Síðastliðin tvö ár hefur hún verið formaður stjórnar félagsins en hún gegndi um árabil starfi fram- kvæmdastjóra þess. „Félagið ætlar að halda afmælisveislu í Gullhömrum í Grafarholti með blöðrum, kökum og tilheyrandi, fyrir sína skjólstæðinga sem eru börn og unglingar sem hafa greinst með krabbamein og þeirra nánustu fjölskyldur. Við viljum líka gjarnan sjá velunnara félagsins og bjóða þeim að gleðjast með okkur,“ segir Rósa og bætir við að heiðursgestir verði Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og að Þóra Arnórsdóttir ætli að halda utan um skemmtidagskrána. „Þessi félagsskapur er mjög þéttur og samheldinn og félagið hefur getað stutt vel við fjölskyldur sem lenda í þessum hremmingum. Málstaður okkar hefur notið mikillar velvildar í samfélaginu í gegnum tíðina og við höfum notið stuðnings bæði frá einstaklingum og fyrir- tækjum sem hafa gert okkur kleift að styðja vel við bakið á fjölskyldum, bæði fjárhagslega og félagslega. Þetta er félag sem enginn vill lenda í en þegar fólk mætir þessum örlögum með barnið sitt, þá er afskaplega gott að vita af traustum stuðningsaðila.“ Rósa segir að félagið haldi sumarhátíðir á hverju ári og samkomur þar sem fólki finnst gott að koma saman. „Þetta er fólk sem skilur hvert annað og á þessa erfiðu lífsreynslu sameiginlega og það myndast mjög góður vin- skapur milli fólks. Eftir að meðferð lýkur þá heldur fólk áfram að vera félagsmenn og það heldur sínum rétt- indum. Fólk er oft í langan tíma að jafna sig, jafnvel þó allt endi vel, eins og það gerir langoftast. Allir í fjölskyld- unni verða fyrir áfalli þegar barn fær krabbamein og það er til dæmis mikið álag á systkinum veika barnsins. Því finnst fólki gott að eiga okkur að. Og á morgun verður gaman hjá okkur.“ Afmælisveislan hefst kl. 15. Tímamót Morgunblaðið/Kristinn Formaður „Þessi félagsskapur er mjög þéttur og sam- heldinn,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir. Afmælishátíð Félags krabbameinssjúkra barna Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is vi lb or ga @ ce n tr u m .is Berjaís með Magimix Verð kr.: 44.990 Farðu alla leið með Magimix Berja- og safapressa af fullkomnustu gerð frá Magimix. Með safapressunni má útbúa girnilega og heilsusamlega drykki með lágmarks fyrirhöfn. Ísvél að andvirði kr. 14.ooo fylgir með hverri safapressu meðan birgðir endast. Nú er upplagt að búa til heimalagaðan bláberja- eða krækiberjaís.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.