Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Þó að sumarið sé senn á enda og haustlitirnir að hefja innreið sína var hitinn í Reykjavík í gær eins og best lætur á góðum sumardegi. Mældist hitinn mestur í mælitækjum við Reykjavík- urflugvöll og komst nærri því að slá hitamet við flugvöllinn. Hæst hefur hitinn mælst 18,3 gráður í september árið 2006 en var 18,1 gráða í gær. Hitinn í Reykjavík var almennt um 16 gráður og virtust borgarbúar taka honum fegins hendi. Trausti Jónsson veðurfræðingur segir hitann ekki einsdæmi þó að hann sé í hærra lagi í Reykjavík á þessum árstíma. „Hitinn í dag var á svo litlu svæði og þess vegna kemst dagurinn varla inn á mettöflur fyrir landsmeðaltalið. Það er bara venjuleg tíð annars staðar þó svo að það hafi verið hlýtt í Reykjavík.“ Ekki hægt að fullyrða um áhrifin Leifarnar af fellibylnum Irenu eru lægðin sem gengur nú yfir landið. „Það er ekki hægt að full- yrða neitt um það hvaða áhrif fellibylurinn hefur á veðrið hér. Við fáum eiginlega aldrei þetta eig- inlega hitabeltisloft sem fylgir fellibyljum. Þeir koma þó hlýju lofti norðar en mörg önnur veð- urfyrirbrigði,“ segir Trausti. Einstaka sinnum, að sögn Trausta, höfum við fengið mjög vond skaðaveður vegna fellibylja en það gerist að hans sögn ekki nema einu sinni á þrjátíu ára fresti. Síðast gekk mjög vont veður yfir landið vegna fellibyls árið 2008 en þá rigndi mikið og var nokkuð hvasst. vilhjalmur@mbl.is Sló næstum hitamet í Reykjavík  Leifarnar af fellibylnum Irenu eru lægðin sem gengur yfir landið með nokkrum hlýindum  Hitastigið ekki einsdæmi en þó í hærra lagi á höfuðborgarsvæðinu á þessum árstíma Morgunblaðið/Eggert Á bol Þessir ungu menn þurftu ekki að klæða af sér veðrið þegar þeir skokkuðu við Tjörnina. Fellibyljir » Lægðir sem ganga yfir Ís- land myndast á mörkum hlýrra og kaldra loftmassa og því geta leifar af fellibyl valdið djúpri lægð yfir Íslandi og tölu- verðu óveðri. Sjálfur fellibyl- urinn sækir hins vegar kraft sinn í varma sem losnar við að raki í lofti þéttist í skýjadropa. » Aðstæður til myndunar felli- byls er að finna yfir úthöfum í hitabeltinu. » Algengt er að fólk rugli sam- an fellibyl og skýstrók en um er að ræða gjörólík veður- fyrirbrigði. Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, tilkynnti fé- lögum sínum í gær að hún mundi segja af sér þingmennsku á mánudag- inn. Ákvörðun Þórunnar, sem er for- maður þingflokks Samfylkingarinnar og gegndi þar á undan embætti um- hverfisráðherra í ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar fyrir bankahrun, kom flestum á óvart. Þórunn hefur setið á Alþingi fyrir Samfylkinguna frá árinu 1999. Fyrst sem þingmaður Reykvíkinga til árs- ins 2003 en eftir það hefur hún verið fulltrúi kjósenda í Suðvesturkjör- dæmi. Að hennar sögn langar hana að setjast á skólabekk og leggja fyrir sig heimspeki, m.a. siðfræði. Hún segist hvorki vera að setjast í helgan stein né ætli hún að hætta öllum afskiptum af pólitík. Ætlar hún að halda áfram að starfa í þágu kvenfrelsis, umhverf- isverndar og jafnaðarstefnu innan Samfylkingarinnar. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur starfað með Þórunni frá því hún kom inn á þing fyrir tólf árum. „Ég kom á undan Þór- unni inn á Alþingi og hef því starfað með henni frá því hún kom þangað. Ákvörðun hennar að hætta kom mér eins og öðrum í þingflokknum á óvart. Þórunn býr yfir mikilli reynslu sem þingmaður og það verður erfitt að horfa á eftir henni úr pólitíkinni og enn erfiðara að fylla hennar skarð. Ég á eftir að sakna hennar mikið og vildi gjarnan hafa hana áfram núna þegar við erum að fara að taka ný þingskap- arlög í gagnið en Þórunn leiddi starf nefndarinnar sem tók við frumvarp- inu á sínum tíma,“ segir Ásta og bætir því við að ekki sé enn ljóst hver taki við starfi Þórunnar sem þingflokks- formaður. Hættir á þingi fyrir heimspekina Morgunblaðið/Eggert Gleði Þórunn Sveinbjarnardóttir var sæl á svip á þingfundi í gærdag.  Þórunn Sveinbjarnardóttir hættir á Alþingi til að hefja heimspekinám  Ásta Ragnheiður Jóhann- esdóttir segir það vera erfitt að fylla skarð Þórunnar sem sé bæði reyndur og duglegur þingmaður Á Laugarnestanganum í Reykjavík kennir margra grasa, hnarreistur njólinn ber auðvitað höfuð og herðar yfir flesta granna sína hvað dugnað og þrautseigju snertir. Í baksýn er gamla höfuðbólið Viðey með fornfrægum húsum sínum sem anga af sögu en líka kaffi og kleinum þegar gesti ber að garði. Spáð er ágætu veðri í höfuðborginni um helgina og göngumaðurinn naut blíðunnar í gær. Morgunblaðið/Kristinn Sveitasæla í miðri höfuðborginni Róbert Marshall, formaður alls- herjarnefndar Alþingis, sagði í gær að ekki hefði náðst sam- komulag við stjórnarandstæð- inga í nefndinni um fund síðdegis til þess að ræða frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnarráðinu. Þrá- inn Bertelsson, VG, stóð með stjórn- arandstæðingum og greiddi á fundi nefndarinnar um morguninn at- kvæði gegn því að frumvarpið yrði afgreitt. Róbert Marshall sagði að fundað yrði í nefndinni á mánudag. Vigdís Hauksdóttir úr Framsókn- arflokki andmælti og sagði að sam- ið hefði verið um að nota ekki sept- emberþingið til að afgreiða mál í nefndum nema full eining væri um þau. kjon@mbl.is Stjórnar- ráðstillaga féll í nefnd Nýr fundur í allsherj- arnefnd á mánudag Þráinn Bertelsson Lúðvík Geirsson er fyrsti vara- maður Samfylkingarinnar í Suð- vesturkjördæmi. Hann hefur ekki enn gert það upp við sig hvort hann tekur sæti á Alþingi í stað Þórunnar Sveinbjarn- ardóttur. „Ég er að skoða mína stöðu út frá þeim verkefnum sem ég er að sinna í dag. Það skýrist um helgina hvað ég geri,“ segir Lúðvík og bætir því við að þingið sé áhugaverður vettvangur en það sé sérstakt andrúmsloft á þingi. Skoðar stöðu SKÝRIST UM HELGINA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.