Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011 Opið verður í Sveinshúsi í Krýsuvík nk. sunnudag, frá kl. 13.00 til 17.30. Þar stendur nú yfir sýning á verkum Sveins Björnssonar sem nefnist Huldu- fólk og talandi steinar. Þetta er lokadagur þessarar fimmtu sýn- ingar safnsins í Krýsuvík. Sýn- ingin lýsir myndheimi Sveins Björnssonar sem var að þróast yf- ir í fantasíur upp úr 1960 í verkum sem sýnd voru á samsýningum hans og danskra listamanna á Charlottenborg í Kaupmannahöfn á 7. áratugnum. Opið er í Sveinshúsi fyrsta sunnudag í mánuði á sumrin og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Sveinshús blasir við, ljósblátt að lit, frá Krýsuvíkurvegi upp af gamla Krýsuvíkurfjósinu og rétt hjá Gestsstaðavatni. Nánari upp- lýsingar í síma 8610562 og 8607211. Á síðasta opnunardegi í ágúst las Matthías Johannessen upp úr bókum sínum um Kjarval og Scheving en næsta sumar kemur Gyrðir Elíasson í heimsókn og les upp úr verkum sínum um mynd- list. Huldufólk og talandi steinar  Sýningu á verkum Sveins Björnssonar lýkur á sunnudag Sveinn Björnsson Söngkonan Hreindís Ylva Garð- arsdóttir Holm og hljómsveit hennar halda útgáfutónleika í Salnum á sunnudagskvöld, en tón- leikarnir eru haldnir í tilefni af disknum Á góðri stund þar sem þau flytja dægurlagaperlur söng- konunnar Erlu Þorsteinsdóttur. Yfirskrift tónleikanna er Stúlkan með lævirkjaröddina, en Erla var ein vinsælasta dægurlagasöngkona þjóðarinnar á árunum 1950-1960 og söng mörg þekkt dægurlög, til að mynda Heimþrá, Draumur fangans, Litli tónlistarmaðurinn, Kata rokkar, Hreðavatnsvalsinn, Ítalskur calipso og fleiri lög. Í hljómsveitinni eru auk Hrein- dísar Sigurður Ingi Einarsson sem leikur á trommur, Tómas Jónsson sem leikur á hljómborð, Valgeir Daði Einarsson sem leikur á bassa, Yngvi Rafn Garðarsson sem leikur á gítara og Snæbjörn Gauti Snæbjörnsson sem leikur á saxó- fón Á góðri stund í Salnum Lævirkjarödd Hreindís Ylva Garð- arsdóttir Holm og hljómsveit. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Hinir hæfileikaríku bræður Arthur og Lucas Jussen frá Hollandi halda tónleika í Hörpu annað kvöld en þeir ætla að leika verk eftir Schubert. Þeir koma fram sem einleikarar og einnig leika þeir fjórhent hina þekktu Fantasíu í f-moll. Með tónleikunum, sem hefjast klukkan 20 á sunnudags- kvöld, hefst ný tónleikaröð sem hlotið hefur nafnið Heimspíanistar í Hörpu. Þeir lærðu hjá Mariu Joao Pires, sem heillaði áheyrendur í Hörpu í júlí síðastliðnum. Þeir dvöldu hjá henni nokkra mánuði í senn þegar þeir voru yngri, samtals í ár, bæði í Portú- gal og Brasilíu og hugsa mjög hlýtt til hennar. „Hún spilaði þessi verk eftir Schu- bert mjög oft þegar við vorum hjá henni, þannig að við þekkjum þau mjög vel. Við eiginlega ólumst upp með þessum verkum. Við erum mjög heppnir að hafa verið hjá henni,“ seg- ir Lucas í símaviðtali. „Við þekkjum líka hvor annan svo vel því við höfum heyrt hvor annan spila svo oft.“ Lucas er 18 ára og var að klára menntaskóla en Arthur er 14 að verða 15 og bræðurnir hafa spilað saman árum saman. Lucas fer til Bandaríkjanna í jan- úar að læra hjá Menahem Pressler. „Þangað til hef ég hálft ár til að æfa mig heima,“ segir hann. „Ég þarf ennþá að mæta í skólann og verð í Hollandi næstu þrjú árin,“ segir Arthur. „Ég hugsa ekki um framhaldið ennþá. Það er alveg nóg- ur tími til þess.“ Verður ekki öðruvísi fyrir ykkur bræðurna að vera aðskildir? „Ég held það verði ekki vandamál. Þetta er bara nýtt ævintýri,“ segir Arthur. Gaman að ferðast Hafið þið ferðast mikið? „Í sumar héldum við tónleika í Þýskalandi og Frakklandi og núna erum við að koma til Íslands. Í októ- ber förum við síðan til London. Við ferðumst ekki mjög mikið en alveg nóg. Okkur finnst mjög gaman að ferðast,“ segir Arthur. Geisladiskur með Schubert- verkum í flutningi bræðranna kemur út hinn 23. september. „Við erum að fara að gefa út nýja plötu hjá Deutsche Grammophone með sama prógrammi og við spilum á Íslandi,“ segir Lucas, sem er að vonum ánægður með að hafa fengið samning við útgáfufyrirtækið. „Það var stórt skref fyrir okkur. Við vorum mjög heppnir að fá þetta tækifæri,“ segir hann en í öllu spjallinu skín í gegn auðmýktin svo ekki sé minnst á kurt- eisina en bræðurnir koma afskaplega vel fyrir. Ferðalögin eiga þó ekki eftir að aukast mikið með útkomu plötunnar því Arthur gengur enn í skóla. Bræðurnir hafa elst og flokkast því ekki sem undrabörn lengur heldur vilja vera teknir alvarlega á tónlistar- legum forsendum. Þeir finna fyrir því að fólk tekur þá alvarlegar núna. „Þegar við vorum nokkrum árum yngri vorum við lítil börn að spila fjórhent og einhverjum fannst það kannski sérstakt því við vorum svona ungir. Fyrir okkur snerist þetta allt- af um tónlistina, að spila á píanóið. Ég held að við höfum það alltaf efst í huga, píanóleikurinn verður að vera góður,“ segir Arthur. En hvað er erfiðast við það að velja sér þennan feril að verða píanóleik- ari? „Þegar nafn manns byrjar að verða aðeins þekkt er margt sem truflar mann frá því mikilvægasta, sem er að æfa sig og halda áfram að bæta sig. Það er gaman að spila á tónleikum, fara á nýja staði og hitta skemmtilegt fólk. Mikilvægast er samt að vera með fókusinn á það sem kom manni á þennan stað og það er að spila vel. Og til að spila vel þarftu að hafa í huga að þetta er aldrei full- komið, aldrei nógu gott. Þegar þú spilar vel þarftu að hafa hugann við næstu tónleika en ekki horfa til baka,“ segir Lucas. Hæfileikar og vinna Hvað finnst ykkur um eilífu spurn- inguna um þátt hæfileika annars veg- ar og vinnu hins vegar? „Ég held að þú verðir að vera fæddur með einhvers konar hæfi- leika því annars gæti hver sem er orðið góður píanisti. En þú þarft að leggja mjög hart að þér til að rækta hæfileikann og þróa hann. Þetta er kannski ástæðan fyrir því að svona mikið af ungu hæfileikafólki í klass- ískri tónlist er frá Rússlandi og Kína. Þar leggja allir mjög hart að sér og aginn er mikill,“ segir Lucas en hol- lenska samfélagið sem þeir ólust upp í er öðruvísi. Arthur er líka með sína sýn á þetta. „Ég held að umhverfið þar sem þrýstingurinn er mikill og þú verður að spila fimm eða átta tíma á dag sé ekkert endilega betra. Þá hugsarðu bara um píanóið og spilar ekkert endilega af því að þig langar til þess heldur af því að þú verður. Við byrjuðum vegna þess að okkur langaði til þess og það er ennþá þannig. Það er mjög mikilvægt að finna gleði í píanóleik.“ Bræðurnir eru greinilega með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir að hafa notið velgengni og horfa jákvætt fram á veg. „Við erum ennþá ungir svo okkur finnst við ekki þurfa að gera allt núna,“ segir Lucas. „Við höfum ennþá tíma en við erum ánægðir með þróunina og allt sem er í gangi núna. Við vonum bara að það komi ekki annað eldgos svo við komumst til Ís- lands!“ Gleðin í píanóleiknum  Hinir ungu og hæfileikaríku bræður Arthur og Lucas Jussen spila í Hörpu ann- að kvöld  Leika verk eftir Schubert og spila bæði sem einleikarar og fjórhent Hæfileikaríkir Bræðrunum Arthur og Lucas Jussen er margt til lista lagt. Myndlistarkonan Þóra Þórisdóttir heldur kynningu á sýningu sinni „Rubrica“ eftir messu í Hallgrímskirkju á morgun. Kynningin hefst um kl. 12.30 og eru allir velkomnir. Á sýningunni Rubrica, sem verið hefur í forkirkju Hallgrímskirkju í sumar, eru mynd- verk sem fjalla um túlkun Þóru á Heilögum anda, en hún leggur áherslu á að rétta við kynjað táknmál Biblíunnar. Lykilverkið á sýn- ingunni er Biblía sem Þóra hefur þvegið með saltvatni og blóði ásamt því að skrifa inn ýms- ar hugleiðingar og leiðbeiningar. Yfirskrift sýningarinnar Rubrica, þýðir það sem var prentað með rauðu sem fyrirsögn eða yf- irskrift eða leiðbeiningar, sem vísar og í rauð- an leir og líka í blóð. „Ég skrifa líka með rauðu útskýringar mínar og leiðbeiningar í Biblíuna og svo þrútnar hún út við þvottinn og hleypir lofti og ljósi inn í sig og blöðin verða svo mjúk og krumpuð að ekki er hægt að loka henni.“ Rubrica er þriðja sýningin í sýningarröð Listvinafélags Hallgrímskirkju, Kristin minni. Sýningarstjóri er Ólöf Nordal, myndlist- armaður. Hugmyndasmiður sýningarrað- arinnar er Guðrún Kristjánsdóttir myndlist- armaður. Sýningin stendur fram yfir miðjan september. Samtal Þóru við Sólveigu Önnu Bóasdóttur guðfræðing og Ólaf Gíslason listfræðing má finna á vef Listvinafélags Hallgrímskirkju, listvinafelag.is. Upptaka og úrvinnsla sam- ræðna var í höndum Ævars Kjartanssonar út- varpsmanns. Þóra kynnir Rubrica Túlkun Hluti af verki Þóru Þórisdóttur, „Pentacost“.  Myndverk um túlkun á Heilögum anda Mig vantaði bara alltaf eitthvert kons- ept, að vera með eitthvert markmið 43 » „Foreldrar okkar studdu við píanó- leikinn en gættu þess líka að við gætum hagað lífi okkar eins og venjuleg börn og hugsað um fleira en tónlistina. Við spiluðum fótbolta og gerðum aðra hluti sem okkur langaði til,“ segir Lucas. Hver eru helstu áhugamál ykkar? „Við spilum fótbolta og tennis og á veturna förum við á skíði í Aust- urríki,“ segir Arthur. Hvert er uppáhaldsliðið ykkar? „Það er Ajax,“ segja bræðurnir einum rómi en þeir búa í Hilversum nálægt Amsterdam. „Ég biðst af- sökunar á því að þekkja ekki ís- lenskt lið,“ segir Arthur. „En við þekkjum Gudjohnsen,“ segir Lucas og á þá að sjálfsögðu við Eið Smára. Fótbolti, tennis og skíði PÍANÓIÐ EKKI EINA ÁHUGAMÁLIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.