Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 41
Metnaðurinn á bak viðmynd Giuseppes Tor-natores um fæðing-arbæ sinn á Sikiley, Bagheria eða Baarìa eins og eyj- arskeggjar segja, leynir sér ekki. Mikil vinna er lögð í að skapa trú- verðugt umhverfi í þessari fjöl- skyldusögu, sem spannar stóran hluta síðustu aldar, og gerði Tornatore að skilyrði þegar hann valdi leikara að þeir kynnu mál- lýskuna, sem töluð er á Sikiley. Mun myndin hafa verið sýnd með ítölskum texta á Ítalíu. En því miður vantar neistann. Tornatore er einn af þekktustu leikstjórum Ítalíu og gat sér heimsfrægð með myndinni Cinema Paradiso. Hér er hann á sínum gömlu heimaslóðum og rekur sögu þriggja ættliða með megináherslu á einn þeirra, Peppino Torrenuova, sem Francesco Scianna leikur. Áhorfandinn er leiddur í gegnum valdatímabil fasista, hernám Bandaríkjamanna, uppgang mafí- unnar, eflingu kommúnistahreyf- ingarinnar og ólgu sjöunda og átt- unda áratugarins án þess að leikstjóranum takist að skapa dýpt og samúð hjá áhorfandanum. Peppino byrjar að vinna fyrir sér sem smali, gerist hliðhollur kommúnistum og fer út í stjórn- mál. „Bella politica,“ segir faðir hans á dánarbeði, en engin tilraun er gerð til að skýra hvað er fallegt við stjórnmálin. Peppino verður ástfanginn af fegurstu stúlku bæj- arins, Manninu, sem hin heillandi Margareth Madè leikur og þau ná saman þótt foreldrar hennar telji þennan kommúnista með öllu ósamboðinn dóttur sinni. Söguþráðurinn býður upp á mik- ið drama, en þrátt fyrir það verður sagan átakalítil. „Ég sá hræðilega hluti,“ segir Peppino er hann kem- ur frá Moskvu, en það hefur engin áhrif á stjórnmálavafstur hans. Hann heldur ótrauður áfram og það er vinur hans, sem yfirgefur kommúnista og fer yfir til sósíal- ista, reyndar án þess að útskýra hvers vegna. Peppino leiðir tilraun bænda til að ná til sín ónotuðu landi úr höndum mafíunnar, en þegar líður á myndina verður ljóst að hann mun ekki leiða neina byltingu. Sonur hans verður vitni að því að yngri eldhugar gagnrýna föður hans fyrir linkind. Þegar hann spyr föður sinn hvað skamm- aryrðið „umbótasinni“ þýði svarar Peppino að það sé sá, sem hafi vit á að „berja ekki höfðinu við stein- inn“. Mörg falleg og vel gerð atriði eru í myndinni en hún nær aldrei flugi og tilraunir til að bæta við dulúð og fyrirboðum, brotnum eggjum og slímugum snákum bæta engu við. Baarìa gefur góð fyr- irheit, en stendur ekki undir þeim og er langt að baki Amarcord Fell- inis og Þremur bræðrum Frances- cos Rosis, sem kynnu að teljast fyrirmyndir. Aldarspegill án dýptar og átaka Sambíó Kringlunni Baarìa bbnnn Leikstjóri: Giuseppe Tornatore. Aðal- hlutverk: Francesco Scianna, Margareth Madè, Ángela Molina, Giovanni Gamb- ino. 150 mín. Ítalía, Frakkland. 2009. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Lífsbaráttan á Sikiley Francesco Scianna og Margareth Madè í hlut- verkum sínum í kvikmyndinni Baarìa eftir Giuseppe Tornatore. MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2011 Fólkið í Kjallaranum – aftur á svið í kvöld Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Tjarnarbíó 5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is The Island (LÓKAL2011) Lau 3/9 kl. 19:00 Sun 4/9 kl. 18:30 Aðeins þessar tvær sýningar! Sýnt í Gamla Bíó 2boys.TV (LÓKAL2011) Lau 3/9 kl. 18:30 Lau 3/9 kl. 21:00 Athugið mjög takmarkaður sætafjöldi! The Eternal Smile (LÓKAL2011) Lau 3/9 kl. 20:00 Sun 4/9 kl. 16:00 Aðeins tvær sýningar! Tanz Mið 7/9 kl. 17:30 Fim 8/9 kl. 21:00 Reykjavík Dance Festival What a feeling + Heilaryk Mið 7/9 kl. 19:00 Fim 8/9 kl. 19:00 Reykjavik Dance Festival Dedication Mið 7/9 kl. 20:00 Fim 8/9 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 18:00 Reykjavik Dance Festival - Sýnt á Kex Hostel Nú nú Fim 8/9 kl. 12:15 Lau 10/9 kl. 17:00 Reykjavik Dance Festival - Sýn á Listasafninu, Hafnarhúsið. Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus The Lost Ballerina Fim 8/9 kl. 15:30 Lau 10/9 kl. 13:30 Lau 10/9 kl. 15:15 Reykjavik Dance Festival - Sýnt á Listasafni Reykjavíkur Retrograde + Cosas Fös 9/9 kl. 19:00 Lau 10/9 kl. 19:00 Reykjavik Dance Festival Court 0.9144m Fim 8/9 kl. 22:00 Fös 9/9 kl. 22:00 Reykjavik Dance Festival ˆ > a flock of us > ˆ Lau 10/9 kl. 13:00 Lau 10/9 kl. 14:15 Lau 10/9 kl. 16:00 Reykjavik Dance Festival - Sýnt á Listasafninu, Hafnarhúsinu Belinda og Gyða + Vorblótið Fös 9/9 kl. 20:30 Lau 10/9 kl. 20:30 Reykjavik Dance Festival Tripping North Lau 10/9 kl. 22:00 Reykjavik Dance Festival Gróska 2011 Fim 15/9 kl. 19:30 Fös 16/9 kl. 19:30 Lau 17/9 kl. 14:30 Höfundahátíð Félags leikrita og handritshöfunda Í tilefni af sjötugsafmæli Gunnars I. Guðjónssonar verður haldin sýning á olíumálverkum hans í sýningarsal Gallerís Gása, Ármúla 38. Sýningin stendur frá 5. til 15. september. Gunnar list, eins og hann er oft kall- aður, er fæddur í Reykjavík. Hann hélt til náms í teikningu og málara- list við skólann Excuela Marssana á Spáni 1972. Hann sneri aftur til Ís- lands 1974 og sama ár hélt hann stóra sýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum. Árið 1981 hélt Gunnar aðra sýningu í boði Menn- ingarstofnunar Bandaríkjanna og hefur síðan haldið margar sýningar. Afmælissýn- ing Gunnars Afmæli Málverk eftir Gunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.