Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.09.2011, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 246. DAGUR ÁRSINS 2011 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Léttist um 19 kg á hálfu ári 2. Nauðgunarsenan var skelfilegust 3. Cheerios hvergi bannað 4. Hvar er hann Jörgen?  Björgvin Gíslason gítarleikari mun fagna sextugsafmæli sínu með tón- leikum í Austurbæ á morgun. Einnig er hann að endurútgefa fyrstu þrjár plöturnar sínar. »44 Morgunblaðið/Þorkell Björgvin Gísla fagnar 60 ára afmæli  Auglýsinga- stofan Mother í London mun halda sérstaka sýningu á 18 mín- útna stuttmynd Barkar Sigþórs- sonar í höf- uðstöðvum sínum í næstu viku. Börkur er búsettur í London en myndin gerist í Reykjavík og skartar Birni Thors sem leikur taugatrekktan borgarbúa. Tónlistin er eftir Daníel Bjarnason. Börkur Sigþórsson sýnir í London  Sóley Stefánsdóttir gaf út hina marglofuðu stuttskífu Theater Island í mars í fyrra og tónlistaráhugamenn hafa beðið eftir breiðskífu síðan með öndina í hálsinum. Platan, We Sink, kom út hér á landi og í Evr- ópu í dag en kemur út í Bandaríkjunum í lok mánaðarins. Það er Morr Mu- sic/Kimi sem gefur út. Fyrsta breiðskífa Sóleyjar komin út FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning með köflum en stöku skúrir suðvestantil. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast suðvestanlands. Á sunnudag NA 5-10 m/s norðvestantil, en annars hæg breytileg átt. Dálitlar skúrir og milt í veðri. Á mánudag NA 5-10 á Vestfjörðum en annars suðaustlæg átt, 3-8 m/s. Rigning, sunnan- og austanlands en annars úrkomulítið. Hiti 7 til 14 stig, svalast á Vestfjörðum. Íslandsmeistarar FH í handknattleik karla eru komnir til Ísraels þar sem þeir taka þátt í undankeppni um sæti í Meistaradeild Evrópu. Þeir mæta norsku meisturunum Haslum í dag. Kristján Arason, annar þjálfara FH, segir að þeir séu að búa til nýtt lið vegna mikilla breytinga frá því í fyrra en Hafnfirðingarnir séu staðráðnir í að selja sig dýrt. »2 FH mætir norsku meisturunum í Ísrael Vítaspyrna á 88. mínútu kostaði íslenska landsliðið í knattspyrnu stig þegar það mætti Norðmönnum í Ósló í gærkvöld. Hún var dæmd á Stefán Loga Magnússon sem braut á John Carew. „Þegar hann sá mig koma þá spilaði hann boltanum nánast út í horn, setti út annan fótinn, og þá er ekki mikið sem ég get gert. Því miður,“ sagði Stefán. »1 Sá mig koma og setti út fótinn Björn Bergmann Sigurðarson sló í gegn með 21-árs landsliðinu í fót- bolta gegn Belgum í fyrradag þegar hann skoraði bæði mörkin í sigri Ís- lands. Björn hefur vakið mikla athygli með Lilleström í norsku úrvalsdeildinni og segir að draumurinn sé að spila með ensku liði. »4 Draumurinn er að spila með ensku liði Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Ég var beðinn um að finna fyrir þá fimm hesta og við byrjuðum síðast- liðið haust að leita að réttu hest- unum. Það tók okkur fimm mánuði að finna þá. Enda hefur það gengið rosalega vel. Það hafa ekki verið nein vandræði með þá,“ segir Magn- ús Gíslason, tamningamaður sem búsettur er í Svíþjóð. Íslenskir hestar í umsjón hans og konu hans, Malin Brännlund, hafa í sumar leikið hlutverk í uppsetningu á ævintýrinu um Ronju ræn- ingjadóttur í skemmtigarðinum Ast- rid Lindgrens Värld í Vimmerby í suðausturhluta landsins, heimabæ hins þekkta rithöfundar Astrid Lindgren. Ekkert verið til sparað „Þetta er allt rekið í anda Astrid og til þess að heiðra lífstarf hennar og minningu,“ segir Magnús um skemmtigarðinn en uppsetningin á Ronju ræningjadóttur verður fram- vegis hluti af skemmtigarðinum ásamt fleiri sígildum ævintýrum eft- ir Lindgren sem allir þekkja eins og um Emil í Kattholti, Línu Langsokk, Bróður minn Ljónshjarta og Kalla á þakinu. „Þetta er gríðarleg auglýsing fyrir ís- lenska hestinn,“ segir Magnús um þátttöku íslensku hestanna í upp- setningunni á Ronju ræn- ingjadóttur í Ast- rid Lindgrens Värld. Aðsókn að skemmtigarðinum sé gríð- arlega mikil og nokkur hund- ruð þúsund gesta heimsæki hann á ári hverju. Ekkert hefur verið til sparað að gera uppsetninguna sem glæsi- legasta, segir Magnús, en hún kost- aði um einn milljarð íslenskra króna. „Það var byggður hérna heill kastali úr grjóti með gjá í honum miðjum og öllu tilheyrandi. Þú verður alveg bergnuminn af þessu hvort sem þú ert fullorðinn eða barn. Fullorðna fólkið segir bara „vá“ eins og börn- in.“ 30 ára afmæli Ronju Sex sýningar hafa verið dag hvern í sumar á Ronju ræningjadóttur að sögn Magnúsar og hafa leikararnir sem taka þátt í uppsetningunni skipst á að leika hlutverkin í henni en 24 leikarar koma að henni, allt at- vinnumenn. Uppsetningin á ævintýrinu er í til- efni af því að 30 ár eru liðin í ár frá því að bókin um Ronju kom fyrst út, árið 1981. „Þetta er gríðarleg auglýsing“  Íslenskir hestar í sýningu á Ronju ræningjadóttur Ljósmynd/www.alv.se Ævintýri Byggður var heill kastali úr grjóti fyrir sýningar á ævintýrinu um Ronju ræningjadóttur í skemmtigarð- inum Astrid Lindgrens Värld í Vimmerby í suðausturhluta landsins, heimabæ hins þekkta rithöfundar. Skemmtigarðurinn Ast- rid Lindgrens Värld var opnaður árið 1981 og hefur starf- að allar götur síð- an. Hann er stað- settur í Vimmerby í suðausturhluta Sví- þjóðar þar sem Lind- gren ólst upp. Fyrsti hluti garðs- ins var eftirmynd af Kattholti, heimili prakkarans Emils. Síðan bættist smám saman við hann og kastali Ronju ræningjadóttur er nýjasta viðbótin. Astrid Lindgrens Värld er einn helsti vinnuveitandi á svæðinu en hundruð manna hafa atvinnu af skemmtigarðinum þegar mest er yfir sumartímann. Þá er aðsóknin að garðinum mikil en um 450 þús- und gestir heimsækja hann á ári hverju. Lesa má meira um skemmti- garðinn á heimasíðu hans á slóð- inni www.alv.se ASTRID LINDGRENS VÄRLD 450 þúsund gestir árlega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.